Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 36
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 36TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
UNNAR JAKOBSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnuhlíðar
fyrir frábæra umönnun.
Bent Bjarnason Helga Helgadóttir
Anna Þórdís Bjarnadóttir Stefán R. Jónsson
Jakob Unnar Bjarnason Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGER ÞÓRÐARSON
lést miðvikudaginn 11. desember sl.
Högni Óskarsson Ingunn Benediktsdóttir
Ásgeir Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín og amma okkar,
FJÓLA H. HALLDÓRSDÓTTIR
lést 27. nóvember síðastliðinn.
Við þökkum þeim sem sýndu okkur samúð
og hlýhug á þessum erfiðu tímum, sérstakar
þakkir til starfsfólks þjónustuíbúðanna í
Lönguhlíð 3 og starfsfólks Landspítalans, 13E. Einnig sérstakar
þakkir til Helgu Soffíu Konráðsdóttur sóknarprests.
Hafdís Ingvarsdóttir
Ingvar Örn Hilmarsson
Svana Fjóla Hilmarsdóttir
Birna Svanhvít Hilmarsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar yndislega sonar og bróður,
TÓMASAR ÞÓRS ÞORGILSSONAR
Tröllaborgum 12, Grafarvogi.
Þorgils Garðar Gunnþórsson
Helga Steinunn Hauksdóttir
Steinar Darri Þorgilsson
Við færum innilegar þakkir öllum þeim
sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður, tengdasonar og afa,
EINARS SIGURÐSSONAR
matreiðslumeistara
Svöluási 1a, Hafnarfirði.
Hjartans þakkir til allra sem önnuðust hann í veikindum hans og
þá sérstaklega til starfsfólks á krabbameinsdeild Landspítalans.
Guð gefi ykkur gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Fanney Ottósdóttir
Halldóra Einarsdóttir Hólmar Egilsson
Einar Einarsson Björg Össurardóttir
Helgi Einarsson Helga Íris Ingólfsdóttir
Halldóra Sæmundsdóttir og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GARÐAR SIGURÐSSON
fv. prentsmiðjustjóri,
Mávahlíð 4, Reykjavík,
lést laugardaginn 7. desember á Land-
spítalanum. Útför hans fer fram frá
Háteigskirkju föstudaginn 27. desember kl. 15.00.
Sigurður Egill Garðarsson
Karl Friðrik Garðarsson Áslaug Guðjónsdóttir
Guðrún Garðarsdóttir Snæbjörn Kristjánsson
Gunnlaugur Garðarsson Sigríður Halldórsdóttir
Kristín Fríða Garðarsdóttir Ólafur Fannberg
Anna María Garðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
ÁSTA INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR
frá Höfða í Fljótshlíð,
verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju
laugardaginn 21. desember kl. 14.00.
Erna M. Sveinbjarnardóttir Jón S. Garðarsson
Sigurlín Sveinbjarnardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁKI STEFÁNSSON
skipstjóri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn
14. desember. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 27. desember
kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþökkuð en
þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sigurlaug Magnúsdóttir
Þóra Ákadóttir Ólafur B. Thoroddsen
Stefán Ákason Ólína Rakel Þorvaldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HALLFRÍÐUR ÁSMUNDSDÓTTIR
frá Kverná í Grundarfirði,
síðar Háaleitisbraut 151 í Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
16. desember. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju á
Þorláksmessu kl. 11. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Finnbogi Grétar Kristinsson
Ásmundur Kristinsson Svava Loftsdóttir
Kristinn Finnbogason
Friðrik Heiðar Ásmundsson Hildur Helga Sævarsdóttir
Loftur Ásmundsson Bergdís Heiða Eiríksdóttir
og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð
við andlát ástkærra
foreldra okkar,
GUÐNÝJAR
MAGNÚSDÓTTUR
OG
SIGURGEIRS
HALLDÓRSSONAR
frá Öngulsstöðum, Eyjafjarðarsveit.
Innilegar þakkir fær starfsfólk Furuhlíðar fyrir einstaka
umönnun síðustu árin.
Börn, tengdabörn og fjölskyldur.
Sonur minn og bróðir okkar,
HALLDÓR SÆMUNDSSON
frá Patreksfirði,
andaðist 15. desember í Fögruhlíð, Skálatúni.
Aðalheiður Kolbeins
systkini og fjölskyldur þeirra.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN GUÐJÓNSSON
framkvæmdastjóri,
Skúlagötu 40B, Reykjavík,
lést á Landakotsspítala þ. 16. desember.
Jóhannes Kristinsson Þorbjörg Jónsdóttir
Elín Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
STEINGRÍMUR SIGFÚSSON
loftskeytamaður,
Stóragerði 36, Reykjavík,
lést þann 3. desember sl. Útförin fór fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Vilhelm Björn Steingrímsson
Birna Steingrímsdóttir
„Það var magnað að syngja með Dame
Kiri Te Kanawa og mikill heiður,
þetta er eins og að syngja með Carr-
eras,“ segir söngvarinn Andri Björn
Róbertsson. Hann kom fram á tón-
leikum með Dame Kiri Te Kanawa,
sem er líklega ein þekktasta sópran-
söngkona allra tíma, í Cadogan Hall
í London um síðustu helgi. Þau hafa
þekkst í fimm ár og hefur hann notið
leiðsagnar hennar.
Andri Björn var að skrifa undir
samning um að syngja í tveimur
nýjum óperum sem settar verða upp
í samstarfi Aldeburgh Music, Royal
Opera House Covent Garden og Opera
North. „Hlutverkin sem ég syng eru
samin með mína rödd í huga og þetta
verður gríðarlega spennandi verk-
efni þar sem sýningar verða í Lin-
bury Studio Theatre í Covent Garden,
Aldeburgh og í Leeds.“
Andri Björn býr í London en stund-
ar nám við The National Opera Stud-
io. Stofnunin er rekin af sex stærstu
óperuhúsunum í Bretlandi, sem eru
Royal Opera House, Opera North,
Scottish Opera, Welsh National Opera,
Glyndebourne og English National
Opera. „Það er gríðarlega mikil sam-
keppni um að komast inn og í ár eru
13 söngvarar og fjórir píanistar sem
stunda þar nám. Námið er mjög krefj-
andi og til mikils er ætlast af þeim
sem þar eru,“ útskýrir Andri Björn.
Hann syngur á Jólasöngvum Kórs
Langholtskirkju í kvöld og annað
kvöld og á sunnudag, verður þar ein-
söngvari ásamt Þóru Einarsdóttur og
Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Jón
Stefánsson stjórnar. Miðasala er á
midi.is. gunnarleo@frettabladid.is
Söng með þekktustu
sópransöngkonu í heimi
Söngvarinn Andri Björn Róbertsson er að gera það gott í London þar sem hann býr og
nemur. Hann kemur fram með Kór Langholtskirkju í kvöld og um helgina.
SYNGUR HEIMA Andri Björn Róbertsson söngvari kemur fram með Kór Langholtskirkju í
kvöld og um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL