Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 88

Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 88
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 64 „Ég er allt annar maður en fyrir einu til tveimur árum. Ég er klár- lega í besta formi ævi minnar,“ segir Ragnar Nathanaelsson. Mið- herjinn, sem er 218 cm á hæð, fór á kostum í þremur leikjum Þórs Þor- lákshafnar í Domino‘s-deildinni í desember og hefur vakið verðskuld- aða athygli fyrir frammistöðu sína það sem af er leiktíð. Í síðasta leik fyrir jólafrí setti sá hávaxni 27 stig auk þess að taka 22 fráköst. Maður leiksins án nokkurs vafa. Ragnar æfði með A-landsliðinu í sumar og ber þjálfaranum Peter Öqvist vel söguna. „Peter fór mikið í grunninn með mér og sýndi mér heilmikið,“ segir Ragnar. Ekki hafi verið annað hægt en að bæta sig með landsliðinu. Spil- tíminn var af skornum skammti en nýliðinn hefur fullan skilning á því. „Það er enginn að fara að taka byrjunarliðssætið af Hlyni Bær- ings,“ segir Raggi en Hlynur hefur verið í aðalhlutverkinu undir körf- unni með landsliðinu í áratug. Ragnar gekk í raðir Þórs fyrir yfirstandandi leiktíð. Áður lék hann með uppeldisfélaginu Hamri en lið- inu mistókst að komast upp úr 1. deildinni í vor. Þá ákvað Hvergerð- ingurinn að róa á ný mið. „Þegar ég ræddi við Þór gerði ég þá kröfu að fá styrktarþjálfun og aukaæfingar tvisvar til þrisvar í viku,“ segir Ragnar. Hann hafi vilj- að gera hlutina af alvöru til að kom- ast á næsta stig. „Svo ég geti einn daginn tekið byrjunarliðssætið af Hlyni.“ Gústi þurfti að hringja í mömmu Aðeins sex ár eru síðan draga þurfti Ragnar á æfingar. Þá var Ágúst Björgvinsson, núverandi þjálfari Vals, við stjórnvölinn í Hveragerði og reyndi hvað hann gat að fá Ragn- ar á æfingar. „Ég hafði engan áhuga á íþrótt- um yfir höfuð. Maður fylgdist bara með Hamri og mætti á eina og eina æfingu,“ segir Ragnar. Ólíklegt sé að hann hefði byrjað í körfubolta ef ekki hefði verið fyrir þrautseigju Ágústs. „Gústi hringdi í mig á leiðinni á æfingar til að spyrja hvort ég ætl- aði ekki pottþétt að mæta. Ef ég svaraði ekki þá hringdi hann heim og talaði við mömmu,“ segir Ragn- ar. Aðspurður hvað hann hafi haft fyrir stafni áður en hann hellti sér í körfuna af krafti segir Ragnar: „Ég var bara úti í garði að leika mér með spýtur.“ Ragnar, sem er lærður húsa- smiður, segir að áhuginn hafi auk- ist smám saman. Nú snúist lífið um körfubolta og draumurinn sé að komast í atvinnumennsku. Miðað við frammistöðu hans að undan- förnu er ljóst að félög ytra eru farin að fylgjast með kappanum. Öll lið geta notað öflugan 218 cm mann undir körfunni. „Það eru einhverjir byrjaðir að spyrjast fyrir um mig og hafa sam- band. Ég passa mig samt á að vera ekki að pæla í því á miðju tímabili. Ég ætla ekki að vera kominn út áður en ég fer út,“ segir Ragnar ein- beittur. Hann vonast til þess að geta æft með landsliðinu næsta sumar og í kjölfarið geti eitthvað gerst. Ýmist Raggi Nat eða Raggi Frat Gengi Þórsara á leiktíðinni hefur verið upp og niður. Liðið hefur unnið Grindavík í Röstinni en einnig tapað fyrir botnliði Vals. Ragnar segir þjálfarann Benedikt Guðmundsson hafa tvö Þórslið í höndunum sem skipuð séu sömu leikmönnum. „Stundum mætum við brjálaðir til leiks, lokum vörninni og brill- erum eins og gegn Grindavík. Svo mætum við annars hugar í leiki gegn liðum sem við teljum okkur eiga að sigra og þau flengja okkur oftar en ekki,“ segir Ragnar. Leik- menn ætli að vinna í hugarfarinu í jólafríinu og ekki síst hann sjálfur. „Ég hef mætt í tvo eða þrjá leiki þar sem hefur verið alveg slökkt á mér. Ég hef ekki verið þessi Raggi Nat sem fólkið þekkir. Þá kýs Bald- ur Þór að kalla mig Ragga Frat,“ segir kappinn og hlær. Hann hafi ekki mikinn áhuga á að viðurnefnið festist við sig. Hressari maður en Ragnar er vandfundinn. Aðspurður hvort hann geri í því að vera hress eða ekki seg- ist hann oftast nær vera í voðalega góðu skapi. „Ég glími við þann vanda að hugsa ekki alltaf áður en ég tala,“ segir Ragnar og hlær. „Ég er voða- lega fljótur að skjóta á fólk en sem betur fer veit það að 90 prósent af því sem ég segi er í gríni.“ Mest geri hann grín að sjálfum sér en hann leggur mikið upp úr að viðhalda góðri stemningu í ungu Þórsliðinu. Fimm dagar eru til jóla og ætlar Ragnar að njóta alls þess sem verð- ur á boðstólum. Hangikjötið og hamborgarhryggurinn mun renna ljúflega niður en þó er miðherjinn spenntastur fyrir skötunni. Þar spretti upp í honum sveitastrákur- inn. „Ég fer í að lágmarki tvær skötu- veislur á Þorláksmessu. Skata og hákarl er það besta sem ég fæ.“ kolbeinntumi@frettabladid.is Gústi hringdi í mig á leiðinni á æfingar til að spyrja hvort ég ætlaði ekki pottþétt að mæta. Ef ég svaraði ekki þá hringdi hann heim og talaði við mömmu. Kolbeinn Tumi Daðason kolbenntumi@frettabladid.is Raggi Nat fer að lágmarki í tvær skötuveislur á Þorláksmessu Ragnar Nathanaelsson fór hamförum með Þór Þorlákshöfn í Domino’s-deild karla í körfubolta í jólamánuðinum. Sá hávaxni er þegar farinn að fá fyrirspurnir frá erlendum félögum en lætur það ekki trufl a einbeitinguna. Hvergerðingurinn stefnir á að taka byrjunarliðssætið í landsliðinu af Hlyni Bæringssyni einn daginn en Ragnar spilaði sína fyrstu A-landsleiki síðasta sumar. STÓR OG STÆRRI Reynsluboltinn Friðrik Stefánsson virkar smávaxinn í samanburði við Ragnar í baráttunni undir körfunni. MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON Fjöldi stiga og frákasta hefur hækkað í hverjum mánuði Ragnar hefur bætt sig í hverjum mánuði frá því að keppni í Domino‘s-deildinni hófst í október. Tveir síðustu leikir Þórs standa upp úr. Annars vegar sigur á Grindavík í Röstinni þar sem Ragnar skoraði 19 stig og tók 25 fráköst. Hins vegar heimasigur á ÍR þar sem stig þess hávaxna urðu 27 og fráköstin 22. Ragnar er með 16,7 stig að meðaltali í leikjunum ellefu og 13,7 fráköst. Hann er fjórði frákastahæsti leikmaður deildarinnar og í fimmta sæti þegar kemur að framlagi. EINBEITTUR Ragnar einbeitir sér alfarið að körfu- boltanum í vetur með það að mark- miði að komast í atvinnu mennsku næsta haust. MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON ➜ Ragnar er stöðugt að bæta sig 25 20 15 10 12 16,6 Stig Fráköst 12,4 19,3 21,3 10,3 október nóvember desember

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.