Fréttablaðið - 27.01.2014, Síða 50
27. janúar 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
Central Park
St. Francis
LIU
Gunnar
Ólafsson
skotbakvörður
20 ára
9,8 stig í leik
Elvar Már
Friðriksson
leikstjórnandi
19 ára
23,9 stig í leik
7,3 stoðsendingar
í leik
Bro oklyn
Madison Square
Garden
Heimavöllur New York Knicks
Empire state
● Sonur Friðriks
Ragnarssonar,
fimmfalds Ís-
landsmeistara
með Njarðvík
● Sonur Svandís-
ar Gylfadóttur,
fjórfalds Ís-
landsmeistara
með Keflavík
● Skoraði sigur-
körfuna á
móti Njarðvík
● Frændi Fals
Harðarsonar,
fjórfalds Ís-
landsmeistara
með Keflavík
BROOKLYN-BARDAGINN
Íslendingarnir Gunnar og Elvar Már munu berjast á ný gegn
hvor öðrum með háskólaliðunum St. Francis
og LIU.
Frelsisstyttan
nt ath aM a n
Hér mætast skólarnir í
„Baráttunni um Brooklyn“
Barclays
Center
Heimavöllur
Brooklyn Nets
KÖRFUBOLTI Ekki er langt á milli
íþróttahúsanna í Njarðvík og
Keflavík. Aðeins léttur göngutúr
fyrir ungan strák í toppformi. Svo
skemmtilega vill til að aðstæð-
ur Njarðvíkingsins Elvars Más
Friðrikssonar og Keflvíkingsins
Gunnars Ólafssonar breytast ekki
mikið þótt þeir haldi næsta vetur
á vit ævintýranna hinum megin
við Atlantshafið. Þeir sömdu fyrir
áramót hvor við sinn háskólann í
Brooklyn-hverfinu í New York;
Elvar Már við LIU og Gunnar við
St. Francis. Þegar betur er að gáð
er göngutúrinn ekki mikið lengri
milli íþróttahúsanna þar.
„Þetta eru gjörólíkir skólar
en miklir erkifjendur. Ég held
að það sé fimm mínútna labb á
milli skólanna og það liggur við
bara eins og Njarðvík og Kefla-
vík,“ segir Elvar Már, sem hefur
verið frábær á tímabilinu. Því til
staðfestingar var hann á dögun-
um kosinn besti leikmaður fyrri
hlutans í Dominos-deildinni.
Enginn stríðnispúki í Gunnari
Skömmu eftir ógleymanlega leik
grannliðanna í lok október fóru
þeir Elvar Már og Gunnar saman
í skoðunarferð í St. Francis-skól-
ann í Brooklyn. Elvar Már spil-
aði vel í grannaslagnum, skoraði
17 stig og gaf 12 stoðsendingar,
en Gunnar var aftur á móti hetja
leiksins. Njarðvíkingar misstu
frá sér forystuna í seinni hálf-
leik en voru næstum því búnir að
stela sigrinum með svaka spretti
í lokin. Úrslitin réðust hins vegar
þegar Gunnar smellti niður sig-
urþristi rétt fyrir leikslok og
tryggði Keflavík sigur á nágrönn-
unum í sinni fyrstu Reykjanes-
bæjarrimmu.
„Ég fór með Gunnari til St.
Francis stuttu eftir að hann skor-
aði sigurkörfuna á móti okkur.
Þetta var aðeins rætt en hann er
svo hógvær að hann var ekkert að
stríða mér mikið á þessu,“ segir
Elvar Már. Gunnar segir hins
vegar að forráðamenn körfubol-
taliðsins í St. Francis hafi verið
með það á hreinu hvernig leik-
urinn endaði. „Við töluðum ekki
um þessa körfu en þjálfarnir úti
ræddu um hana og að ég skoraði
sigurkörfuna gegn Elvari,“ segir
Gunnar.
Það var sérstök og skemmtileg
upplifun fyrir strákana að fara í
skoðunarferðina.
„Það er farið með mann nánast
eins og kóng,“ segir Elvar Már og
bendir á að þeim hafi verið sýnt
allt það sem þeir höfðu áhuga á
að sjá.
Elvar átti ás uppi í erminni
Strákunum bauðst báðum skóla-
styrkur hjá St. Francis en Elvar
átti ás upp í erminni því fram
undan var einnig skoðunarferð
til nágrannaskólans Long Island
University eða LIU. Fljótlega
eftir komuna heim úr þeirri ferð
var Elvar búinn að ákveða sig.
„Þeir voru mjög spenntir fyrir
mér því ég er mjög líkur leik-
stjórnandanum sem þeir eru með
núna. Það hefur klárlega hjálpað
til. Mér fannst þetta því ekki vera
erfið ákvörðun. Mér leist bara
svo vel á þennan skóla og það var
ekkert annað í stöðunni. Aðstæð-
urnar voru mjög flottar og svo er
leikstjórnandi liðsins, sem leik-
ur liðsins fer mikið í gegnum, að
útskrifast. Ég á að koma og fylla
hans skarð. Ég er mjög spenntur
fyrir því. Ég skoðaði St. Francis
en ég sá fram á meiri möguleika
í LIU. Aðstæðurnar voru líka
miklu betri þar,“ segir Elvar Már.
Gunnar ákvað hins vegar að taka
skólastyrknum hjá St. Francis.
Hefðu viljað spila saman
„Auðvitað hefði ég viljað fá Elvar
með mér í St. Francis og hann
sagði það við mig að hann hefði
langað mikið til að spila með
mér. LIU er aðeins stærri skóli
og hefur komist lengra í háskóla-
boltanum undanfarin ár. Ég skildi
hann fullkomlega og hefði gert
það sama hefði ég fengið tilboð
frá hinum skólanum sem ég fékk
reyndar ekki,“ viðurkennir Gunn-
ar.
„Ég þekki Gunnar mjög vel. Við
hefðum alveg viljað fara í sama
skóla en ég taldi bara LIU henta
mér betur. St. Francis hentar
honum vel því báðir skotbakverð-
ir liðsins eru að útskrifast næsta
vor. Það er möguleiki fyrir hann
að fá að spila þar,“ segir Elvar,
sem fyllir í skarð Jason Brick-
man í LIU-skólanum. Brickman
er á góðri leið með að gefa flest-
ar stoðsendingar í bandaríska
háskólaboltanum annað árið í röð.
„Ég vildi líka fara í skóla þar
sem ég sæi að ég ætti möguleika á
því að spila strax. Ég er vanur því
enda búinn að vera spila hátt í 30
mínútur í leik síðustu þrjú árin.
Það yrðu mikil viðbrigði að fara
að sitja í 30 mínútur á bekknum
núna,“ segir Elvar.
Mega hittast nema fyrir leik
Hann hefur stefnt lengi á banda-
ríska háskólaboltann og svo er
einnig raunin hjá Gunnari.
„Þetta er bara snilld. Það hefur
verið markmið hjá mér síðustu
tvö til þrjú árin að koma mér út.
Ég ætlaði að fara eftir tímabilið
í fyrra en svo ákvað ég að taka
einn vetur í viðbót á Íslandi. Þetta
er miklu betra en ég hugsaði mér,
bæði í sambandi við staðsetningu
og skólann sjálfan,“ segir Gunnar.
„Ég var búinn að vera að skoða
skóla úti um allt í Bandaríkjunum
og líka á Vesturströndinni. Mig
langaði að ná mér í menntun og
ég held að þetta sé góð leið til að
þroskast sem körfuboltamaður og
einstaklingur,“ segir Elvar.
„Það er gaman að geta verið
svona nálægt hvor öðrum. Við
getum því leitað hvor til annars
ef það koma erfiðir tímar,“ segir
Elvar Már.
En hvernig er litið á það að leik-
menn erkifjenda verji miklum
tíma saman?
„Þeir sögðu við Elvar að hann
mætti hitta mig nema daginn
fyrir leikinn á milli skólanna,“
segir Gunnar í léttum tón en
bætir svo við: „Það verður gott að
hafa annan Íslending í nágrenn-
inu.“
Rándýr menntun í boði
„Við þekkjumst í gegnum körf-
una og höfum spilað hvor á móti
öðrum frá því við vorum tíu ára.
Þetta hefur samt breyst aðeins
því við vorum ógeðslega litlir
þegar við vorum yngri,“ segir
Gunnar um vinskap þeirra félaga.
Strákarnir sjá fyrir sér skemmti-
legan tíma í New York, innan sem
utan vallar. „Við erum tíu mínút-
ur með lest yfir til Manhattan og
svo er nóg um að vera í Brooklyn
líka. Það er auðvelt fyrir fólk-
ið mitt að heimsækja mig og ég
held að það verði mikill kostur,“
segir Elvar.
Á síðustu árum er algengt að
íslensku strákarnir klári ekki
námið úti og komi aftur heim.
„Strákar hafa verið mikið að
fara út í eitt ár og þetta hefur
ekki heillað þá alveg. Ég skoðaði
það því vel og reyndi að velja mér
skóla sem hentaði mér. Þeir spila
evrópskan bolta og spila mikið
vegg og veltu (e. pick and roll). Ég
held að það henti mér. Ef að það
gengur illa þá verður maður bara
að vera þolinmóður og leggja harð-
ar að sér. Það er stefnan að reyna
Líka erkifj endur vestan Atlantshafs
Elvar Már Friðriksson og Gunnar Ólafsson eru þrátt fyrir ungan aldur í stórum hlutverkum hjá Kefl avík og Njarðvík í karlakörfunni. Þeir
voru báðir í aðalhlutverkum þegar Reykjanesbæjarliðin mættust í Dominos-deildinni fyrr í vetur og verða það vafalítið einnig í kvöld í
seinni rimmu liðanna. Strákarnir eru báðir á leiðinni í háskólaboltann í Brooklyn í Bandaríkjunum en örskotsspölur er á milli skólanna.
að klára þessi fjögur ár,“ segir
Elvar Már. Hann ætlar að nýta sér
menntunina vel. „Þetta er rándýr
menntun og þetta er ekki gefins.
Það er mjög flott að fá þetta.“
Fyrri viðureign Njarðvík-
inga og Keflvíkinga í Domnios-
deild karla var svaka spennandi
og mikil skemmtun fyrir bæði
gestina í Ljónagryfjunni sem og
þá sem á horfðu heima í stofu. Í
kvöld verður vonandi boðið upp á
eitthvað svipað en það má búast
við góðri mætingu í TM-höllinni á
Sunnubrautinni auk þess að leik-
urinn er fyrsti mánudagsleikur
nýs árs á Stöð 2 Sport. Flautað
verður til leiks klukkan 19.15.
Óskar Ó.
Jónsson
ooj@frettabladid.is