Fréttablaðið - 27.01.2014, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 27.01.2014, Blaðsíða 50
27. janúar 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26 Central Park St. Francis LIU Gunnar Ólafsson skotbakvörður 20 ára 9,8 stig í leik Elvar Már Friðriksson leikstjórnandi 19 ára 23,9 stig í leik 7,3 stoðsendingar í leik Bro oklyn Madison Square Garden Heimavöllur New York Knicks Empire state ● Sonur Friðriks Ragnarssonar, fimmfalds Ís- landsmeistara með Njarðvík ● Sonur Svandís- ar Gylfadóttur, fjórfalds Ís- landsmeistara með Keflavík ● Skoraði sigur- körfuna á móti Njarðvík ● Frændi Fals Harðarsonar, fjórfalds Ís- landsmeistara með Keflavík BROOKLYN-BARDAGINN Íslendingarnir Gunnar og Elvar Már munu berjast á ný gegn hvor öðrum með háskólaliðunum St. Francis og LIU. Frelsisstyttan nt ath aM a n Hér mætast skólarnir í „Baráttunni um Brooklyn“ Barclays Center Heimavöllur Brooklyn Nets KÖRFUBOLTI Ekki er langt á milli íþróttahúsanna í Njarðvík og Keflavík. Aðeins léttur göngutúr fyrir ungan strák í toppformi. Svo skemmtilega vill til að aðstæð- ur Njarðvíkingsins Elvars Más Friðrikssonar og Keflvíkingsins Gunnars Ólafssonar breytast ekki mikið þótt þeir haldi næsta vetur á vit ævintýranna hinum megin við Atlantshafið. Þeir sömdu fyrir áramót hvor við sinn háskólann í Brooklyn-hverfinu í New York; Elvar Már við LIU og Gunnar við St. Francis. Þegar betur er að gáð er göngutúrinn ekki mikið lengri milli íþróttahúsanna þar. „Þetta eru gjörólíkir skólar en miklir erkifjendur. Ég held að það sé fimm mínútna labb á milli skólanna og það liggur við bara eins og Njarðvík og Kefla- vík,“ segir Elvar Már, sem hefur verið frábær á tímabilinu. Því til staðfestingar var hann á dögun- um kosinn besti leikmaður fyrri hlutans í Dominos-deildinni. Enginn stríðnispúki í Gunnari Skömmu eftir ógleymanlega leik grannliðanna í lok október fóru þeir Elvar Már og Gunnar saman í skoðunarferð í St. Francis-skól- ann í Brooklyn. Elvar Már spil- aði vel í grannaslagnum, skoraði 17 stig og gaf 12 stoðsendingar, en Gunnar var aftur á móti hetja leiksins. Njarðvíkingar misstu frá sér forystuna í seinni hálf- leik en voru næstum því búnir að stela sigrinum með svaka spretti í lokin. Úrslitin réðust hins vegar þegar Gunnar smellti niður sig- urþristi rétt fyrir leikslok og tryggði Keflavík sigur á nágrönn- unum í sinni fyrstu Reykjanes- bæjarrimmu. „Ég fór með Gunnari til St. Francis stuttu eftir að hann skor- aði sigurkörfuna á móti okkur. Þetta var aðeins rætt en hann er svo hógvær að hann var ekkert að stríða mér mikið á þessu,“ segir Elvar Már. Gunnar segir hins vegar að forráðamenn körfubol- taliðsins í St. Francis hafi verið með það á hreinu hvernig leik- urinn endaði. „Við töluðum ekki um þessa körfu en þjálfarnir úti ræddu um hana og að ég skoraði sigurkörfuna gegn Elvari,“ segir Gunnar. Það var sérstök og skemmtileg upplifun fyrir strákana að fara í skoðunarferðina. „Það er farið með mann nánast eins og kóng,“ segir Elvar Már og bendir á að þeim hafi verið sýnt allt það sem þeir höfðu áhuga á að sjá. Elvar átti ás uppi í erminni Strákunum bauðst báðum skóla- styrkur hjá St. Francis en Elvar átti ás upp í erminni því fram undan var einnig skoðunarferð til nágrannaskólans Long Island University eða LIU. Fljótlega eftir komuna heim úr þeirri ferð var Elvar búinn að ákveða sig. „Þeir voru mjög spenntir fyrir mér því ég er mjög líkur leik- stjórnandanum sem þeir eru með núna. Það hefur klárlega hjálpað til. Mér fannst þetta því ekki vera erfið ákvörðun. Mér leist bara svo vel á þennan skóla og það var ekkert annað í stöðunni. Aðstæð- urnar voru mjög flottar og svo er leikstjórnandi liðsins, sem leik- ur liðsins fer mikið í gegnum, að útskrifast. Ég á að koma og fylla hans skarð. Ég er mjög spenntur fyrir því. Ég skoðaði St. Francis en ég sá fram á meiri möguleika í LIU. Aðstæðurnar voru líka miklu betri þar,“ segir Elvar Már. Gunnar ákvað hins vegar að taka skólastyrknum hjá St. Francis. Hefðu viljað spila saman „Auðvitað hefði ég viljað fá Elvar með mér í St. Francis og hann sagði það við mig að hann hefði langað mikið til að spila með mér. LIU er aðeins stærri skóli og hefur komist lengra í háskóla- boltanum undanfarin ár. Ég skildi hann fullkomlega og hefði gert það sama hefði ég fengið tilboð frá hinum skólanum sem ég fékk reyndar ekki,“ viðurkennir Gunn- ar. „Ég þekki Gunnar mjög vel. Við hefðum alveg viljað fara í sama skóla en ég taldi bara LIU henta mér betur. St. Francis hentar honum vel því báðir skotbakverð- ir liðsins eru að útskrifast næsta vor. Það er möguleiki fyrir hann að fá að spila þar,“ segir Elvar, sem fyllir í skarð Jason Brick- man í LIU-skólanum. Brickman er á góðri leið með að gefa flest- ar stoðsendingar í bandaríska háskólaboltanum annað árið í röð. „Ég vildi líka fara í skóla þar sem ég sæi að ég ætti möguleika á því að spila strax. Ég er vanur því enda búinn að vera spila hátt í 30 mínútur í leik síðustu þrjú árin. Það yrðu mikil viðbrigði að fara að sitja í 30 mínútur á bekknum núna,“ segir Elvar. Mega hittast nema fyrir leik Hann hefur stefnt lengi á banda- ríska háskólaboltann og svo er einnig raunin hjá Gunnari. „Þetta er bara snilld. Það hefur verið markmið hjá mér síðustu tvö til þrjú árin að koma mér út. Ég ætlaði að fara eftir tímabilið í fyrra en svo ákvað ég að taka einn vetur í viðbót á Íslandi. Þetta er miklu betra en ég hugsaði mér, bæði í sambandi við staðsetningu og skólann sjálfan,“ segir Gunnar. „Ég var búinn að vera að skoða skóla úti um allt í Bandaríkjunum og líka á Vesturströndinni. Mig langaði að ná mér í menntun og ég held að þetta sé góð leið til að þroskast sem körfuboltamaður og einstaklingur,“ segir Elvar. „Það er gaman að geta verið svona nálægt hvor öðrum. Við getum því leitað hvor til annars ef það koma erfiðir tímar,“ segir Elvar Már. En hvernig er litið á það að leik- menn erkifjenda verji miklum tíma saman? „Þeir sögðu við Elvar að hann mætti hitta mig nema daginn fyrir leikinn á milli skólanna,“ segir Gunnar í léttum tón en bætir svo við: „Það verður gott að hafa annan Íslending í nágrenn- inu.“ Rándýr menntun í boði „Við þekkjumst í gegnum körf- una og höfum spilað hvor á móti öðrum frá því við vorum tíu ára. Þetta hefur samt breyst aðeins því við vorum ógeðslega litlir þegar við vorum yngri,“ segir Gunnar um vinskap þeirra félaga. Strákarnir sjá fyrir sér skemmti- legan tíma í New York, innan sem utan vallar. „Við erum tíu mínút- ur með lest yfir til Manhattan og svo er nóg um að vera í Brooklyn líka. Það er auðvelt fyrir fólk- ið mitt að heimsækja mig og ég held að það verði mikill kostur,“ segir Elvar. Á síðustu árum er algengt að íslensku strákarnir klári ekki námið úti og komi aftur heim. „Strákar hafa verið mikið að fara út í eitt ár og þetta hefur ekki heillað þá alveg. Ég skoðaði það því vel og reyndi að velja mér skóla sem hentaði mér. Þeir spila evrópskan bolta og spila mikið vegg og veltu (e. pick and roll). Ég held að það henti mér. Ef að það gengur illa þá verður maður bara að vera þolinmóður og leggja harð- ar að sér. Það er stefnan að reyna Líka erkifj endur vestan Atlantshafs Elvar Már Friðriksson og Gunnar Ólafsson eru þrátt fyrir ungan aldur í stórum hlutverkum hjá Kefl avík og Njarðvík í karlakörfunni. Þeir voru báðir í aðalhlutverkum þegar Reykjanesbæjarliðin mættust í Dominos-deildinni fyrr í vetur og verða það vafalítið einnig í kvöld í seinni rimmu liðanna. Strákarnir eru báðir á leiðinni í háskólaboltann í Brooklyn í Bandaríkjunum en örskotsspölur er á milli skólanna. að klára þessi fjögur ár,“ segir Elvar Már. Hann ætlar að nýta sér menntunina vel. „Þetta er rándýr menntun og þetta er ekki gefins. Það er mjög flott að fá þetta.“ Fyrri viðureign Njarðvík- inga og Keflvíkinga í Domnios- deild karla var svaka spennandi og mikil skemmtun fyrir bæði gestina í Ljónagryfjunni sem og þá sem á horfðu heima í stofu. Í kvöld verður vonandi boðið upp á eitthvað svipað en það má búast við góðri mætingu í TM-höllinni á Sunnubrautinni auk þess að leik- urinn er fyrsti mánudagsleikur nýs árs á Stöð 2 Sport. Flautað verður til leiks klukkan 19.15. Óskar Ó. Jónsson ooj@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.