Fréttablaðið - 25.03.2014, Side 1
NÁTTÚRA „Svo eru menn að tala um
Bjarnarflag og þá hugsar maður
með sér hvert verður kornið sem
fyllir mælinn. Í mínum huga þá
mega menn ekki tefla á tvær hætt-
ur með þessa stofna,“ segir Guðni
Guðbergsson, sviðsstjóri auðlinda-
sviðs Veiðimálastofnunar.
Bleikjustofninn í Mývatni er í
sögulegu lágmarki. Veiðistofninn
stendur vart undir því nafni leng-
ur og er metinn um eitt þúsund sil-
ungar.
Vísbendingar eru um að urriða-
stofn vatnsins, sem sögulega er
lítill, standi ekki undir veiði þrátt
fyrir miklar veiðitakmarkan-
ir síðustu þriggja ára. Ástæður
hrunsins eru taldir samverkandi
þættir náttúrulegra breytinga og
mannanna verka. „Svo er gríðar-
leg aukning túrisma við vatnið og
kísilgúrvinnsla var í vatninu um
langt árabil,“ segir Guðni og vísar
til þess að samfellt dæling kísil-
gúrs úr vatninu stóð í þrjá ára-
tugi, en veiðitölur sýna að um líkt
leyti og sú starfsemi hófst byrjaði
samdráttur í silungsveiði í vatninu
og stóð með nokkrum sveiflum til
2006 þegar aðeins um 2.400 silung-
ar voru skráðir í veiðiskýrslur.
Meðalveiði silungs í Mývatni síð-
astliðna öld er rúmlega 27 þúsund
fiskar. Mest veiddist á þriðja ára-
tug síðustu aldar, og yfir 100 þús-
und silungar á einstökum árum.
- shá / sjá síðu 4
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
14
AÐ GRENNAST HRATTEf eitthvað stendur til á næstunni og fólk vill grennast hratt er það mögulegt með því að breyta mataræðinu. Borða ríkulega af ávöxt-um, grænmeti, eggjahvítu, fisk og fitu-skertum mjólkurvörum. Sleppa sykri og drekka vatn. Sjálfsagi er allt sem þarf.
S alcura DermaSpray inniheldur einstaka náttúrulega formúlu sem styður viðgerðarferli húðarinnar, kemst djúpt ofan í húðina og nærir hana innan frá og út. DermaSpray er þægilegt í notkun, hefur kláðastillandi áhrif, minnkar bólgur og roða. Úðaformið tryggir minni hættu á sýkingum, engan núning og minni óþægindi þegar borið er á húðina. Þetta eru einstakar vörur sem geta hjálpað húð-inni að lækna sig sjálfa.Salcura Dermasprey Gentle er fyrir börn yngri en 12 mánaða og ðkv
eru þurr og/eða sködduð. Það inniheldur
kraftmikið andoxunarefni sem ver húð-frumur gegn skaða, öflugt afeitrunarefni
sem bindur og eyðir eiturefnum og róar
kláða og bólgu. Virk efni í Zeoderm eru Zeolite og Urea.
ALLAR VÖRURNAR ERU ÁN: ■ Stera
■ Parabena
■ Sýklalyfja
■ Alkóhól
FYRIR
ALLA SEM ÞJÁST AF:
EXEMI
SÓRÍASIS
RÓSROÐA
KLÁÐA Í HÚÐ
HEFUR ÞÚ REYNT ALLT?
GENGUR VEL KYNNIR Salcura DermaSpray er 100% náttúrulegt meðferðar-
úrræði í úðaformi sem getur veitt langvarandi bata við m.a. exemi og
sóríasis. Frábær árangur, auðvelt í notkun og engar aukaverkanir.
Nýjar vor vörur streyma inn, Flottar yfirhafnir jakkar, frakkar og þunnar dúnúlpur.Sjáðu myndirnar á /ParisartizkanVerið velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Vertu vinur okkar á Facebook
Buxnadagar!
Stretchbuxur, sparibuxur, gallabuxur Þrjár síddir!
GARDEUR, GERKE, LINDON, GINO, TUZZINú eru vinsælu Lindon buxurnar á 7.980!
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
25. mars 2014
71. tölublað 14. árgangur
Í mínum
huga þá mega
menn ekki
tefla á tvær
hættur með
þessa stofna.
Guðni Guðbergsson,
sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnin
MENNING Önnur ópera um
Ragnheiði biskupsdóttur
frumsýnd í apríl. 20
SPORT Það léttist á Gylfa
Þór Sigurðssyni brúnin með
langþráðu sigurmarki. 26
FLJÓTLEGT
OG ÞÆGILEGT
Paratabs®
SKOÐUN Árni Stefánsson
skrifar grein um grillara og
tolla. 14
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR
STJÓRNSÝSLA Landbúnaðarháskól-
inn á Hvanneyri (LBHI) verður af
innviðafjárfestingu upp á tæpar
300 milljónir króna næstu tvö ár
sem ráðgerð var í tengslum við
sameiningu skólans við Háskóla
Íslands (HÍ). Skólanum er í staðinn
gert að hefja þegar endurgreiðslu
á ríflega 760 milljóna króna fram-
úrkeyrslu fjárlaga síðustu ár.
Aðstandendur skólans hafa bent á
að á móti framúrkeyrslunni komi
eignir í hluta- og skuldabréfum
upp á um um 300 milljónir króna.
Heimildir blaðsins herma að skól-
anum verði gert að standa þegar
skil á þeim fjármunum í ríkissjóð
og síðan eigi að semja um hvernig
staðið verði að endurgreiðslu þess
sem út af stendur.
Fyrirhuguð sameining LBHÍ
og HÍ mætti andstöðu hjá stórum
hluta aðstandenda skólans, sveitar-
stjórn í Borgarfirði og Bændasam-
tökum Íslands, auk þingmanna
Norðvesturkjördæmis. Sjálfstæði
skólans var talið vega þyngra en
mögulegur ávinningur af samein-
ingu. Fram kom í fréttamiðlinum
Skessuhorni í gær að Ágúst Sig-
urðsson, rektor LBHI, hefði fyrir
helgi sent starfsfólki og nemend-
um tilkynningu um að ekki yrði af
sameiningunni. Niðurstaðan væri
honum vonbrigði og ljóst að skól-
inn þyrfti að draga saman seglin.
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra segir niðurstöðuna ekki
hafa áhrif á áform um samein-
ingu annarra háskóla. Hann hafi
hins vegar haft metnað til þess að
styrkja kennslu og vísindastarf á
Hvanneyri með sameiningu við
HÍ. Samlegðaráhrif í rannsókn-
um og kennslu hefðu orðið mikil,
auk þess sem koma hefði átt á
fót nýrri stofnun í matvælarann-
sóknum undir forystu skólans og
í samstarfi við Matís. „En hér tel
ég að hafi því miður orðið ofan á
sjónarmið sem ég tel skammsýn
og hvorki til þess fallin að styrkja
héraðið né nám og vísindastarf-
semi í búvísindum,“ segir Illugi.
Þó sé ekki skynsamlegt að „ganga
yfir heimamenn þannig að stórsjái
á“ og knýja fram sameiningu.
Illugi segir tvo kosti hafa verið
uppi, annars vegar sameiningu og
hins vegar að skólinn lagaði sig að
þeim ramma sem honum hafi verið
settur í fjárlögum. „Ég get ekki
sett meiri tíma í þetta verkefni
vegna þess að liðið er á árið og við
þurfum að halda okkur innan fjár-
laga þessa árs. Því þarf skólinn að
grípa til nauðsynlegra aðgerða
til að ná fram þeirri hagræðingu
sem honum er ætlað,“ segir Illugi.
Skipuleggja þurfi námsframboð og
aðra þætti fyrir næsta haust þann-
ig að fast land sé undir fótum varð-
andi starfsemi skólans. Þá hafi
hann kallað eftir því við rektor á
Hvanneyri að útfært verði mjög
hratt hvernig skólinn standi skil
á þeim fjármunum sem hann hafi
fengið umfram fjárheimildir síð-
ustu ár. „Skilaboð fjárlaganefndar
eru mjög skýr í þeim efnum.“
Málefni skólans voru rædd í
óundirbúnum fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær. - óká
Silungastofnar í Mývatni mælast í sögulegu lágmarki og lagst er gegn veiðum:
Veiðistofn svo gott sem horfinn
FAGNAÐARLÆTI Gleðin var við völd þegar mæðgunum Susönnu Ortiz de Suarez og Johönnu Suarez var kynntur
úrskurður innanríkisráðuneytisins um að þær hefðu fengið dvalarleyfi hérlendis. Susanna sést hér faðma dóttur sína, Mary Luz,
sem kom hingað sem flóttamaður árið 2007. Úrskurður innanríkisráðuneytisins snýr við úrskurði Útlendingastofnunar sem
synjaði konunum um hæli fyrr í þessum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Segir skammsýni ráða för
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri þarf að draga verulega saman seglin til að halda sig innan fjárlaga og endur-
greiða framúrkeyrslu síðustu ára. Menntamálaráðherra hefur kallað eftir áætlun þar að lútandi hjá rektor skólans.
TÓNLIST Ólafur Arnalds tón-
listarmaður er tilnefndur til
bresku Bafta-verðlaunanna fyrir
tónlistina í sjónvarpsþáttunum
Broadchurch. Ólafur sá um alla
tónlistina í þáttunum en hann
samdi um 4
klukkustundir
af efni. Verð-
launaafhending-
in er í London
28. apríl.
„Þessi tilnefn-
ing opnar ein-
hverjar dyr
fyrir mig og nú
getur maður
farið að leika sér með stóru
krökkunum. Þættirnir hafa líka
verið mjög vinsælir, sýndir í hátt
í 100 löndum, svo ég hef fengið
mikið af tilboðum í kjölfarið á
þeim vinsældum.“ - áp/sjá síðu 30
Segir tilnefningu opna dyr:
Kominn í hóp
með þeim stóru
ÓLAFUR
ARNALDS
LÍFIÐ Mæna, tímarit út-
skriftarnema í grafískri
hönnun, kemur út í dag. 22
Bolungarvík 3° SV 7
Akureyri 4° SSV 6
Egilsstaðir 6° V 6
Kirkjubæjarkl. 5° V 5
Reykjavík 5° SV 10
HVESSIR SEINT Suðvestanstrekkingur
V-til og skúrir eða slydduvél en annars
hægari og úrkomulítið. Vaxandi
suð austan átt og úrkoma seinnipartinn. 4
Hér tel
ég að hafi því
miður orðið
ofan á sjónar-
mið sem ég tel
skammsýn og
hvorki til þess
fallin að styrkja héraðið, né
nám og vísindastarfsemi í
búvísindum.
Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra
Aðeins
2.400
silungar voru skráðir í
veiðiskýrslur árið 2006. Til
samanburðar er meðalveiði
síðastliðna öld rúmlega 27
þúsund fi skar.
2.400
Tíu læknar áminntir
Frá árinu 2008 hafa þrír læknar verið
sviptir læknaleyfi. Oftast vegna áfengis-
og/eða lyfjamisnotkunar. 6
Braut á dætrum sínum Karlmaður
var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir
að brjóta á tveimur dætrum sínum í
þrígang. Hann var jafnframt dæmdur
fyrir vændiskaup. 2
Brot á Árósarsamningnum Land-
vernd telur að hugmyndir stjórnarfor-
manns Landsnets um að ekki megi kæra
úrskurði ráðuneytisins brjóti í bága við
alþjóðasamþykktir. 12
Rússar reknir úr G8 G7-ríkin voru
sammála um að framferði Rússa
í Úkraínu kallaði á brottrekstur úr
bandalaginu. 13