Fréttablaðið - 25.03.2014, Síða 4

Fréttablaðið - 25.03.2014, Síða 4
25. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ÁRLEGA FLYTJA ÍSLENDINGAR INN UM 2.000 TONN AF ILMVÖTN- UM OG ÖÐRUM SNYRTIVÖRUM. Mest árið 2007 frá aldamótum eða 2.167 tonn en 1.800 til 1.900 tonn undanfarin þrjú, fjögur ár. NÁTTÚRA Bleikjustofninn í Mývatni er í sögulegu lágmarki. Veiðistofn bleikju stendur vart undir því nafni lengur og er met- inn um eitt þúsund silungar. Vís- bendingar eru um að urriðastofn- inn, sem sögulega er lítill, standi ekki undir veiði þrátt fyrir miklar veiðitakmarkanir. Ástæður hruns- ins eru taldir samverkandi þættir náttúrulegra breytinga og mann- anna verka. Þetta sýna rannsóknir Guðna Guðbergssonar, sviðsstjóra auð- lindasviðs Veiðimálastofnunar. Guðni er sammála því að varla sé hægt lengur að tala um veiði- stofn bleikju í Mývatni og að staðan sé verulegt áhyggjuefni. Í skýrslu sinni mælir hann með því að sem allra mest verði dregið úr veiði, sem hann segir að sé í raun hvatning til þess að veiði sé alfarið hætt um tíma. Dregið hefur verið úr sókn í bleikjustofninn síðustu þrjú ár. Vegna þess hefði mátt búast við auknum afla en Guðni segir að þær vonir hafi ekki ræst ennþá. Enn fremur er ekkert úr netaveiði undir ís fyrri hluta mars í Mývatni sem bendir til að hagur silungsins sé að vænkast, nema þvert á móti þar sem veiðin var lélegri en undanfarin tvö ár. Mývatn er eitt frjósamasta stöðuvatn á Íslandi, sem setur stöðu silungsins í vatninu í ákveðið samhengi og vekur enn meiri furðu að mati Guðna. Vitað er að silung- astofnarnir fóru illa árin 1988 og 1997 og drapst silungur í stórum stíl úr hungri yfir sumartímann. „Svo er gríðarleg aukning túr- isma við vatnið og kísilgúrvinnsla var í vatninu um langt árabil,“ segir Guðni og vísar til þess að samfellt dæling kísilgúrs úr vatn- inu stóð í þrjá áratugi, en veiði- tölur sýna að um líkt leyti og sú starfsemi hófst byrjaði samdráttur í silungsveiði í vatninu og stóð með nokkrum sveiflum til 2006 þegar aðeins um 2.400 silungar voru skráðir í veiðiskýrslur. „Svo eru menn að tala um Bjarn- arflag og þá hugsar maður með sér hvert verður kornið sem fyll- ir mælinn. Í mínum huga mega menn ekki tefla á tvær hættur með þessa stofna,“ segir Guðni en Landsvirkjun hefur uppi áform um nýja og stærri jarðvarmavirkjun við Bjarnarflag skammt austan Reykjahlíðar. Verulegar áhyggjur hafa komið fram um áhrif virkjun- arinnar á grunnvatnsstreymi til Mývatns og efnasamsetningu þess, sem kunni að raska lífríki vatnsins. svavar@frettabladid.is Bleikja í sögulegu lágmarki Veiðistofn bleikju í Mývatni er orðinn hverfandi lítill. Sérfræðingur Veiðimálastofnunar mælist til að veiði verði tímabundið hætt. Hann setur spurningamerki við virkjanaáform í Bjarnarflagi í ljósi stöðu lífríkisins. NÁTTÚRUFEGURÐ Mývatn er óumdeilt ein mesta náttúruperla Íslands, en fiskistofnar vatnsins eru í hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ■ Heildarveiðin í Mývatni árið 2013 var 2.489 silungar. ■ Út frá afla í vetrarveiði er áætlað að stærð veiðistofns bleikju í upp- hafi veiðitímans 2013 hafi verið 1.058 bleikjur og að 37 prósent þess fjölda hafi því veiðst. ■ Meðalveiði síðustu 113 ára er 27.000 silungar, mest bleikja. Mesta veiði í Mývatni var um 1920 þegar hún losaði 100 þúsund fiska. ■ Í skýrslu Guðna er vikið að því að Mývatn sé nú eitt fárra vatna á Íslandi þar sem silungsveiði er enn stunduð sem hluti af hefðbundnum búskap. Veiði í Mývatni er því rótgróið menningartengt fyrirbæri og það verði að hafa hugfast í samhenginu. Meðalveiði síðustu aldar 27.000 silungar DÓMSMÁL Wow air hefur kært ákvörðun áfrýjunarnefndar sam- keppnismála um að félagið eigi ekki rétt á tileknum afgreiðslu- tímum á Keflavíkurflugvelli til héraðsdóms. Áfrýjunarnefndin felldi í febrú- ar úr gildi ákvörðun Samkeppn- iseftirlitsins um að Wow air ætti rétt á tveimur afgreiðslutímum en Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, hefur sagt að þessir ákveðnu tímar væru forsenda þess að félagið geti hafið flug til Banda- ríkjanna. Hætti félagið tímabund- ið við flug vestur um haf vegna óvissunnar sem var um málið nú í upphafi árs. Fyrirtaka fór fram í málinu í gær en áður hafði dómstjóri Hér- aðsdóms Vestfjarða tekið við mál- inu þar sem allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur voru taldir vanhæfir á þeim grund- velli að dómstjóri hans var skip- aður til formennsku í áfrýjunar- nefnd samkeppnismála. - fbj Wow air leitar til dómstóla vegna úthlutunar lendingar- og brottfarartíma: Dómarar vanhæfir í Wow-máli DEILT FYRIR DÓMI Wow air telur það forsendu fyrir Bandaríkjaflugi að félagið fái aðgang að ákveðnum brottfarar- og lendingartímum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI Alþjóðlega fjármála- tímaritið Global Finance Maga- zine hefur valið Landsbankann sem besta bankann á Íslandi. Til- kynnt var um valið í New York í síðustu viku, að því er fram kemur í tilkynningu Landsbank- ans. „Global Finance greinir frá vali sínu eftir að hafa haft náið samráð við bankamenn, starfs- menn á fjármálamarkaði og greinendur um allan heim. Við matið koma til álita fjárhagsleg- ir þættir sem hægt er að mæla nákvæmlega, jafnt og aðrir þætt- ir sem byggja fremur á huglægu mati,“ segir í tilkynningunni, en til viðbótar er Global Finance í fyrsta sinn sagt byggja val sitt á könnun meðal lesenda blaðsins. - óká Lesendur fengu að kjósa: Landsbankinn sagður bestur SUÐUR-AFRÍKA, AP Reeva Steen- kamp var stundum hrædd við kærasta sinn, Oscar Pistor- ius, sem varð henni að bana í febrúar í fyrra. Þetta kom fram í réttarhöldun- um yfir honum, sem nú standa yfir í Pretoríu, höfuðborg Suð- ur-Afríku. „Ég er hrædd við þig stundum og hvernig þú brjálast við mig og hvernig þú bregst við mér,“ segir í texta- skilaboðum úr síma hennar til hans, en þau voru birt við réttar- höldin í gær. Í öðrum textaskila- boðum kemur fram að Pistorius hafi sagt henni að vinir hans ætl- uðu að taka á sig sökina af byssu- skotum í atviki sem varð um það bil mánuði fyrir lát hennar. - gb Réttað yfir Pistorius: Reeva fylltist stundum ótta OSCAR PISTORIUS BANDARÍKIN Stjórnvöld í Banda- ríkjunum hafa ákveðið að senda herþotur og fleiri hermenn til Úganda til að aðstoða við leitina að Joseph Kony, leiðtoga sam- taka sem bera ábyrgð á þúsund- um morða og hafa neytt þúsundir barna til að taka þátt í hernaði. Um 2.500 hermenn frá nokkr- um Afríkulöndum hafa tekið þátt í leitinni að Kony, sem hingað til hefur tekist að fara huldu höfði í frumskógum landsins ásamt nokk- ur hundruð liðsmönnum sínum. - gb Liðsauki sendur til Úganda: Bandaríkjaher leitar að Kony AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá ROK OG RIGNING um allt sunnan og vestanvert landið á morgun, víða stífur vindur en úrkomulítið norðaustan til. Skammvinn hlýindi en á fimmtudag lægir og kólnar smám saman. Stefnir í bjart og rólegt veður á föstudag og um helgina. 3° 7 m/s 4° 9 m/s 5° 10 m/s 7° 13 m/s 10-20 m/s. Hæg breytileg en stíf SV- átt V-til. Gildistími korta er um hádegi 3° 22° 7° 10° 15° 6° 10° 8° 8° 22° 8° 22° 22° 18° 13° 7° 8° 11° 5° 5 m/s 6° 7 m/s 6° 6 m/s 3° 7 m/s 4° 6 m/s 3° 8 m/s -1° 7 m/s 8° 3° 6° 2° 7° 3° 7° 4° 9° 2° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FIMMTUDAGUR Á MORGUN SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Frábært verð!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.