Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.03.2014, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 25.03.2014, Qupperneq 19
 | FÓLK | 3 Við lifum í samfélagi þar sem hraði, áreiti og tímaleysi eru daglegt brauð flestra landsmanna. Þetta verður til þess að minni tími gefst til þess að hugsa um heilsu og næringu. Oftar en ekki er auðveldara að skella einhverju einföldu og fljótlegu í sig á milli þess sem við reynum að sinna öllum verkefnum dagsins. Það er ekki að ástæðulausu að skyndibitakeðjur eru á hverju horni. Margir upplifa streitu í krefjandi samfélagi sem þessu. Það má því áætla að mörg heilsu- farsvandamál nútíma samfélags megi rekja til streitu. Fjölmiðlavefurinn Sverigeradio hefur greint frá því að streita sé algengasta orsök veikindaleyfis í Svíþjóð. Streita kostar þar af leiðandi sænska samfélagið næstum 3 milljarða á ári. UPPLÝSINGAÖLD Við lifum á upplýsingaöld. Læknar og aðrir sérfræðingar standa frammi fyrir þeirri kröfu að fylgjast stöðugt með þeim fjölda rann- sókna sem gerðar eru í heiminum í dag. Þeir verða að fylgjast með þróuninni, enda banka upp á ný og ný heilsufarsvandamál í nútíma samfélagi og sífellt koma fram nýjar upplýs- ingar um mögulegar lausnir þeirra. Með stór- auknum aðgangi að upplýsingum í gegnum veraldarvefinn fylgist almenningur líka mun betur með. Margir gúgla heilsufarsvandamál sín áður en þeir leita læknis og eftir að þeir fá greiningu á kvillum sínum. Þetta getur auð- vitað verið tvíeggjað sverð. Margt sem finna má á netinu er óáreiðanlegt en þar er líka að finna réttar og gagnlegar upplýsingar sem gera fólki kleift að taka meiri ábyrgð á eigin heilsu með aukinni vitneskju. Hallgrímur Magnússon læknir hefur komið fram opinberlega og frætt fólkið í landinu um mikilvægi magnesíums. Það lá því beint við að heimsækja þennan áhugaverða lækni til Hveragerðis, þar sem hann starfar sem heim- ilislæknir, og spyrja hann nánar út í þetta ferðalag fræðslunnar um magnesíum. Hann segir okkur frá því að ráðstefna á vegum „Magnesium Health Institute“ hafi verið hald- in í 12. sinn í nóvember á síðasta ári. Þar koma saman læknar og aðrir sér- fræðingar, bæði frá Evr- ópu og Bandaríkjunum og bera saman bækur sínar um þriðja mikil- vægasta efni manns- líkamans, magnesíum. Hann tekur það fram að þessar rannsóknir um magnesíum séu óháðar lyfja- og fæðu- bótarefnaframleiðend- um og því langt frá því að vera gerðar í hagn- aðarskyni. Þetta snú- ist um það að halda lýðnum heilbrigðum og koma í veg fyrir sjúkdóma í kjölfar nútíma lifnaðarhátta. Þegar slegið er upp „Magnesium rese- arch“ á viðurkenndum leitarsíðum eins og PubMed koma í ljós 39.608 niðurstöður. FRUMKVÖÐULL Hallgrímur Magnús- son lagði stund á sérnám í svæfinga- lækningum í Svíþjóð á níunda áratugnum og kynntist þar magn- esíum í fyrsta skipti. Hann segir okkur frá því að óléttum konum hafi þar verið gefið magnesíum í æð til þess að lækka blóðþrýstinginn með góðum árangri. Fólki hefur verið gefið magnesíum við ýmsum heilsufarsvandamálum um allan heim. Í Kanada hefur magnesíum t.d. verið gefið í stað verkjalyfja, segir Hallgrímur. Þrátt fyrir að magnesíum sé víða notað í lækninga- skyni hefur það einhvern veginn ekki náð fótfestu hér á landi en Hallgrímur byrjaði að gefa magnesíum í æð árið 2009. Þess má geta að Hallgrímur byrjaði að bjóða upp á nálastungur á Íslandi árið 1987 og þótti það á sínum tíma hneyksli. Í dag er það viður- kennd aðferð sem stunduð er í samráði við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk og því má segja að Hallgrímur Magnússon læknir sé frumkvöðull á þessu sviði líka. Hallgrímur segir nokkrar ástæður fyrir því að hann mæli með inntöku magnesíums. Í fyrsta lagi segir hann að magnesíum í fæð- unni hafi minnkað mikið frá því sem áður var. Nútíma ræktunaraðferðir hafi því miður orðið þess valdandi að jarðvegurinn hefur ekki fengið þá hvíld og þau skilyrði sem hann þarf til þess að gefa af sér magnesíumríka fæðu eins og áður. Í öðru lagi þarf ekki mikið til þess að líkam- inn ráðist á magnesíumbirgðir líkamans og þurfi meira. En einmitt sykur, koffín, hveiti og sum lyf henda út magnesíum úr líkamanum. Þegar við verðum stressuð þarf líkaminn meira magnesíum en ella. Hann segir að við streituástand losi líkaminn magnesíum og sink út í æðakerfið til þess að minnka álagseinkenni. Þannig er gengið á magnes- íumbirgðir líkamans sem getur m.a. leitt til þess að orkuframleiðsla minnkar en hver ein- asta fruma þarf á magnesíum að halda til að framleiða orku. Hallgrímur bendir einnig á að Coca-Cola inniheldur fosfórsýru sem dregur frá okkur bæði magnesíum og kalk. Hann segir að áfengi hafi svipuð áhrif. HENTAR FLESTUM Hallgrímur læknir mælir með Slökun fyrir flesta. Hann segir að það virki betur á líkam- ann að taka inn magnesíum í vatni eins og gert er með Slökun. Það á greiðari leið inn í kerfið en töflurnar en nýting í töflum og hylkjum er að meðaltali 10% en Slökun 60- 85% Hann segir að Slökun geti hentað flest- um, börnum, unglingum, fullorðnum, öldr- uðum og barnshafandi konum. Það sé lítil hætta á því að taka of mikið af Slökun. Aftur á móti er hægt að fá í sig of lítið magnesíum, og vill Hallgrímur meina að það sé nokkuð algengt. Hallgrímur segir að erfitt sé að mæla magnesíumskort með hefðbundnum blóð- prufum vegna þess að aðeins 1% af magnes- íum sem við notum er í blóðvökva en 66% eru í beinagrind og 33% í hjarta og vöðvum. Sem þýðir að eina mælingin sem hægt er að styðjast við sé blóðpróf sem mæli stöðu magnesíums í rauðum blóðkornum en þess háttar próf eru mjög dýr. Þegar byrjað er að taka inn Slökun er gott að hafa í huga að byrja á smáum skammti og auka hann smátt og smátt. Þetta er vegna þess að hjá sumum geta stórir skammtar af magnesíum valdið skammtíma niðurgangi. Þetta er ekki hættulegt og hjá sumum er þetta gott vegna hægðatregðu en með því að leyfa líkamanum að venjast við í smáum skömmtum komum við í veg fyrir þennan hvimleiða fylgifisk. Einnig skal þess getið að skammtastærðir getur þurft að laga að þörfum hvers og eins og að sjálfsögðu taka börn minni skammt en fullorðnir. HÖF.: Anna Kolbrún Jensen, félagsfræðingur BLÖNDUN Hvernig á að blanda Slökun: Gott er að nota kalt vatn, betra er að nota volgt vatn en best er að leysa Slökun upp í heitu vatni. Fyrir börn er líka hægt að blanda í safa. www.hreinslokun.is http://mammaveitbest.is https://www.facebook.com/Mamma- VeitBestEhf MIKILVÆGI MAGNESÍUMS Í NÚTÍMASAMFÉLAGI MAMMA VEIT BEST KYNNIR vinsælasta og fljótvirkasta magnesíum-fæðubótarefnið á Íslandi síðastliðin 8 ár. SLÖKUN er leyst upp í vatni og á þannig greiðari leið gegnum kerfi líkamans. HALLGRÍMUR Þ. MAGNÚSSON læknir. MAGNESÍUM Magnesíum sem bætiefni hefur reynst mörgum vel við ýmsum vandamálum svo sem sina- drætti, fótapirringi, svefnleysi, höfuðverk, tíðaverkjum, þynnku og hægðatregðu. Einnig reiði, gremju og vægu þunglyndi með því að auka framleiðslu á seratóníni. ■ Hver einasta fruma notar magnesíum til að framleiða orku og er nauðsynlegur samverkandi þáttur fyrir hundruð efnahvarfa í líkam- anum. ■ Magnesíum er nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi vöðva og taugakerfis. ■ Streita eykur þörf líkamans fyrir magnesíum. ■ Magnesíum og kalk vinna náið saman og mikilvægt er að jafnvægi sé milli þeirra. Margir borða fæðu sem inniheldur mun meira kalk en magnesíum og því ákveðin hætta á að ójafn- vægi geti myndast sem getur leitt af sér æðakölkun og kölkun líffæra. ■ Erfitt getur reynst að fá nóg magnesíum úr fæð- unni bæði vegna þess að fæstir borða nóg af þeirri fæðu sem inniheldur mest magnesíum eins og grænt grænmeti og vegna þess að jarðvegur sem maturinn okkar er ræktaður í er oft snauður af þessu mikilvæga steinefni sökum nútíma ræktunaraðferða.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.