Fréttablaðið - 25.03.2014, Blaðsíða 22
FÓLK|
Save the Children á Íslandi
HEILSA
Bandarísk yfirvöld sem hafa
með öryggi í samgöngum
að gera hafa eytt um einum
milljarði í að þjálfa öryggis-
verði á flugvöllum í því að finna
hryðjuverkamenn með því að
lesa í svipbrigði og aðra líkams-
tjáningu fólks. Gagnrýnendur
aðferðarinnar segja að eng-
inn hryðjuverkamaður hafi
verið stöðvaður með þessum
hætti og að aðferðin hafi ekki
skilað neinu nema óþægindum
fyrir tugi þúsunda ferðalanga á
hverju ári.
Flestir telja sig geta lesið í
líkamstjáningu annarra og halda
að lygarar komi upp um sig með
augngotum eða annarri tauga-
veiklun. Það hefur hins vegar
sýnt sig í rannsóknum að fólk
er lélegt í því að greina lygara
frá þeim sem segja sannleikann.
Lögreglumenn og aðrir sem eiga
að heita sérfræðingar í þessum
efnum eru ekkert endilega betri
í því heldur, þó þeir hafi meiri
trú á hæfileikum sínum.
Nicholas Epley, prófessor í
atferlisfræði við Háskólann í Chi-
cago, segir að líkamstjáning tali
til okkar en einungis með hvísli.
Rannsóknir hafa sýnt fram á
að fólk beri kennsl á lygara í
einungis 47 prósentum tilfella.
Þegar kom að því að greina þá
sem sögðu satt var útkoman
örlítið betri en um 61 prósent
þátttakenda fann þá. Tölurnar
voru enn lægri í þeim rannsókn-
um þar sem þátttakendur þurftu
að taka ákvörðun um hvort fólk
væri að ljúga eða ekki, einungis
út frá líkamstjáningu þess. „Sú
almenna vitneskja að lygarar
komi upp um sig með líkams-
tjáningu virðist vera lítið annað
en tilbúningur,“ segir Maria
Hartwig, sálfræðingur hjá dóm-
stólum New York-borgar.
Þeir sem vilja athuga hversu
góðir þeir eru í að þekkja lygara
frá þeim sem segja sannleikann
geta tekið próf á vísindavef
heimasíðu New York Times,
nytimes.com/science.
LÆVÍSIR LYGARAR
Erfitt getur reynst að greina þá sem ljúga frá þeim
sem segja sannleikann út frá líkamstjáningu.
FLUGVALLAEFTIRLIT Starfsmenn flugvalla eru margir þjálfaðir í að finna hryðjuverka-
menn út frá líkamstjáningu og -burðum þeirra. MYND/GETTY
Margir kannast eflaust við að hafa huggað sig með mat og sumir kenna því jafnvel um óhóf-lega fitusöfnun. Reyndar eru líka til þeir sem
missa alla matarlyst þegar eitthvað bjátar á.
Margir leita í átið hálfómeðvitað þegar reiði, leiði,
hræðsla, stress eða einmanaleiki gerir vart við sig.
Svo virðist sem átinu fylgi ákveðin ró. Það dreifir
athygli frá vandamálinu og erfiðar tilfinningar dofna
um stund. Tilfinningarnar geta átt ýmsar rætur og til
dæmis tengst fjölskyldu, vinnu, fjárhag, heilsu eða
félagslegum samskiptum. Hjá sumum getur tilfinninga-
líf og át orðið svo samtvinnað að fólk sækir kerfis-
bundið í mat um leið og eitthvað bjátar á og forðast
þannig að takast á við vandann. Við þetta skapast
vítahringur og við hann bætist samviskubit yfir óhóf-
legu áti og fylgifiskum þess.
Hér fylgja nokkur ráð til að brjótast út úr víta-
hringnum sem fengin eru af vef Mayo Clinic, mayo-
clinic.org.
Hafðu hemil á stressinu: Ef stress kallar á óhóflegt át
þarftu að reyna að ná tökum á því. Reyndu að draga
úr stressvöldum í lífi þínu. Prófaðu líka þaulreyndar
aðferðir á borð við jóga, hugleiðslu og slökun.
Staldraðu við: Reyndu að átta þig á hvort hungrið
sé af líkamlegum eða tilfinningalegum toga. Ef þú ert
nýbúin/inn að borða reyndu þá að leiða matarlöngun-
ina hjá þér. Líklega ertu bara að reyna að slökkva í
óþægilegum tilfinningum.
Haltu matardagbók: Skrifaðu niður hvað þú borðar
og hversu oft. Skráðu líka hvernig þér líður þegar þú
borðar og hversu svöng/svangur þú raunverulega ert.
Með tímanum sérðu jafnvel eitthvert mynstur á milli
tilfinninga og áts sem þú getur þá tekist á við.
Fáðu aðstoð: Kannski þarftu að takast á við tilfinn-
ingarnar undir niðri. Hinir ýmsu aðilar bjóða aðstoð.
Meðal annars OA-samtökin.
Reyndu að vinna á móti leiða: Margir tala um að
borða þegar þeim leiðist. Reyndu að halda þér upp-
teknum/upptekinni. Hugaðu að áhugamálum þínum,
farðu í göngutúr, horfðu á mynd eða heyrðu í góðum
vini.
Fjarlægðu freistingar: Gættu þess að fylla ekki eld-
hússkápana af huggandi mat sem erfitt er að standast
þegar eitthvað kemur upp á. Þetta eru gjarnan kökur,
kex, snakk og nammi. Veldu frekar ávexti, grænmeti
og létta ídýfu, hnetur, dökkt súkkulaði eða annað
álíka.
Ekki berja á sjálfum/sjálfri þér: Allir eiga það ein-
hvern tíma til að hugga sig eða verðlauna með mat.
Það má bara ekki verða að venju. Það er allt í lagi að
misstíga sig. Leggðu áherslu á litlu skrefin og þær já-
kvæðu breytingar sem þú gerir á matarvenjum þínum.
HUGGUN Í MAT
NOKKUR RÁÐ Tilfinningalíf og át getur orðið það samtvinnað að fólk sækir
kerfisbundið og ómeðvitað í mat um leið og eitthvað bjátar á. Það er óheilla-
vænlegt til lengdar. Hér eru nokkur ráð til að brjótast út úr vítahringnum.
FJARLÆGÐU FREISTINGAR Gættu þess að fylla ekki eldhús-
skápana af óhollum huggandi mat.
Heilsuhótel
Íslands
Lindarbraut 634
235 Reykjanesbær
Sími 512 8040
heilsa@heilsuhotel.is
www.heilsuhotel.is
Heilsuhótel Íslands - Endurnýjanleg orka
„Mér hefur
aldrei liðið
svona vel“.
Svanhildur Guðjónsdóttir, verslunarmaður.
Frábær aðstaða
Á hótelinu eru 50 herbergi. Öll herbergin eru björt og
góð með ljósu parketi á gólfum og sér baðherbergi.
Leikfimisalur, gufubað, infra-rauður saunaklefi, heitur
útipottur og sólbaðsaðstaða bjóðast gestum. Heilsunudd
og ýmsar meðferðir sem vinna gegn einkennum gigtar
eru í boði.
Góð heilsa
Að upplifa og nema hluti sem breytir lífinu með jákvæðum
hætti eru markmið hótelsins. Aukin lífsorka og gleði eru
gæði sem flestir sækjast eftir. Góð heilsa byggir á góðu
mataræði, hreyfingu, hvíld og slökun auk jákvæðni.
Sauna
Kostir infra-rauðra saunaklefa hafa verið rannsakaðir.
Infra-rauð ljós hita likamann með djúphitun sem hefur
góð áhrif á heilsuna, eykur liðleika, minnkar verki, bólgur
og bjúg.
Algengustu einkenni gigtar eru stirðleiki, verkir og bólgur í liðum, vöðvum, sinum
og sinafestum. Á Heilsuhóteli Íslands er lögð áhersla á þætti sem snúa að svefni,
hreyfingu, hvíld og hollu mataræði.
Næsta námskeiði
2. -16. maí