Fréttablaðið - 25.03.2014, Page 30

Fréttablaðið - 25.03.2014, Page 30
25. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22 Mæna, tímarit um grafíska hönnun á Íslandi, er gefið út af útskriftarnemum úr Listahá- skólanum í dag. „Þetta er fimmta útgáfa Mænu. Að sjálfsögðu hljómar það frekar yfirþyrm- andi í fyrstu að 20 hönnunarnem- ar með mismikið egó og afar mis- munandi skoðanir fari saman í slíka útgáfu en ótrúlegt en satt þá gekk samvinnan vonum framar og engin vinslit urðu við vinnslu blaðsins,“ segir Krista Hall, einn nemenda að baki útgáfunni, létt í bragði. Þema blaðsins í ár er tækni. „Við sem útskriftarnemar í graf- ískri hönnun þurfum að vera leiðandi í þeim straumum sem í gangi eru í hönnunarheimin- um hverju sinni,“ segir Sigríður Hulda Sigurðardóttir, annar nem- andi í Listaháskólanum. „Við tölum oft um að við séum með ákveðinn pervertisma fyrir pappír, litum og áferð og okkur fannst við svo sannarlega ná að fullnægja þeim pervertisma með þessu sexí tímariti,“ segir Krista, en þau eyddu miklum tíma í Gunnari Eggertssyni við papp- írsval. „Við misstum okkur úr gleði inni á flennistórum pappírs- lagernum hjá honum. Svo hefði ég ekki getað ímyndað mér að lyktin af nýprentuðu tímariti gæti verið svona fáránlega góð eða lengri dvöl í prentsmiðjunni Odda svona gefandi,“ bætir hún við. Blaðið er gefið út í 500 eintök- um og er hvert eintak sett saman í höndunum. „Það þýddi fjórtán klukkutíma af færibandavinnu og hvorki meira né minna en sjö hundruð og fimmtíu metra af teygju sem klippt var niður og notuð til að festa tímaritið saman. Þá var líka eins gott að við værum öll vinir ennþá því þessir fjórtán tímar tóku aðeins á taugarnar en á uppgjafaraugna- blikunum var bara hækkað í tón- listinni og dansað smá meðan teygjurnar voru þræddar í blað- ið,“ segir Krista, en útgáfuhóf Mænu er haldið í Dansverkstæð- inu klukkan fimm í dag. olof@frettabladid.is LÍFIÐ Pervertismi fyrir pappír og litum Mæna, tímarit um grafíska hönnun, kemur út í dag. „Við mættum bara fyrst í gær að skoða tankinn og taka til,“ segir Vilhelm Þór Neto, meðlimur Stúd- entaleikhússins, en leikhópurinn er að undirbúa nýtt verk sem nefn- ist einfaldlega Djammið er snilld. Það var leikstjórinn Tryggvi Gunnarsson sem skrifaði verkið í samstarfi við leikhópinn. „Sagan er unnin úr ýktum sögum af djamminu og reynslu okkar allra af íslensku djammi,“ segir Vilhelm og bætir því við að samskipti kynjanna séu einnig viðfangsefni sem þreifað verður á í leikritinu. „Verkið er tilbúið, við eigum bara eftir að renna í gegnum það í þessum nýju aðstæðum,“ segir Vilhelm en sýningin verður sett upp í einum af gömlu vatnstönk- um Perlunnar. „Síðan á brunavarnaeftirlitið eftir að koma og sjá hvort allt gangi ekki upp,“ segir Vilhelm en hópurinn er mjög spenntur að fá að njóta sín á svona óvenjulegu sviði. „Tanknum verður líklegast skipt í tvennt, áhorfendur öðrum megin og leikhópurinn hinum megin,“ segir Vilhelm en leikhópurinn ætlar að reyna að skapa ákveðna stemningu á vettvangnum. „Við viljum hafa svona fyrir- partístemningu þarna, verkið fjallar um djammið og við viljum að áhorfendum líði eins og þeir séu hluti af partíinu,“ segir Vil- helm. „Eitt af vandamálum okkar núna er hversu mikið það ómar í tanknum,“ segir Vilhelm en Stúd- entaleikhúsið leitar til fólks til þess að fá afnot af einhvers konar tjöldum sem hægt er að nota til þess að dempa hljóðið. Stúdentaleikhúsið stefnir að frumsýningu 4. apríl og segir Vil- helm undirbúning ganga vel. „Við hvetjum alla áhugamenn um íslenskt djamm til þess að sækja sýninguna,“ segir Vilhelm. baldvin@365.is Djamm er snilld í Perlunni Stúdentaleikhúsið vinnur nú að uppsetningu leikritsins Djammið er snilld og vill leikhópurinn að áhorfendum líði eins og þeir séu hluti af partíinu. STÚDENTALEIKHÚSIÐ Setur upp sýningu í einum af gömlu vatnstönkunum í Öskjuhlíðinni. Að sjálfsögðu hljómar það frekar yfirþyrmandi í fyrstu að 20 hönnunarnemar með mismikið egó og afar mismunandi skoðanir fari saman í slíka útgáfu. MISMIKIÐ EGÓ Þrátt fyrir allt segir Krista engin vinslit hafa orðið við vinnsluna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ . Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu. Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn. MAZDA. DEFY CONVENTION. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. * Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn. 5 stjörnu öryggi!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.