Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 1
DAGLEGA Til daglegrar inn- töku. 120 græn- metishylki. Inntaka 2-4 hylki á dag. Umboð Celsus ehf. www.celsus.is BORGARFERÐIRFerðasíða Telegraph.co.uk hefur gefið út lista yfir tíu ódýrustu kost-ina þegar kemur að borgarferðum í Evrópu. Austur-Evrópa kemur sterk inn en efst á listanum trónir Búdapest í Ungverjalandi. M argir upplifa að vera þjakaðir af þreytu og doða þrátt fyrir næg-an svefn og gott mataræði. Verk-smiðjusamsett vítamín geta aldrei líkt eftir fjölbreytni lífrænna næringarefna.Spirulina, blágrænn þörungur sem talinn er vera næringarríkasta fæða jarðar þar sem hann inniheldur lif-andi næringarefni og telst fæða. Í spirulinu eru þrettán vítamín, sextán steinefni, tuttugu karótínar, átján am-ínósýrur, blaðgræna, prótín, omega, GLA og hún er rík af auðmeltanlegu járni. Hún gefur hreina orku, ein-beitingu, meiri súrefnismettun, góða líðan og næringu. Rannsóknir sýna að spir ulina er gríðarlega öflug vörn gegn flensu og kvefi og hentar fólki á öllum aldri. Margir nýta sér Life-stream Spirulina sem sitt daglega líf-ræna fjölvítamín.Chlorella afeitrar og er talin öflugasta plantan til að hreinsa líkamann. Chlorella styrkir lifrina og bætir alla líkamslykt, gerir andardráttinn fersk-ari, hreinsar óhreina húð Barley grass kemur á réttu sýrustigi og gerir líkamann basískan. Of súr líkami er algeng afleiðing af vestrænu fæði og talin vera undirrót margra sjúkdóma. Barley grass örvar sog-æðakerfið, styður við heilsu liða, dregur úr liðverkjum og bólgum og lækkar kólesteról. Það jafnar magasýrur og örvar vöxt vinveittrar magaflóru, Einnig er það ríkt af stein-efnum, SOD-ensímum, og B-vítam-ínum. Í Lifestream eru eingöngu not-aðar ferskustu og næringarríkustu blöð plöntunnar sem innhalda mesta næringu. Lifestream notar eingöngu hrein, líf-rænt ræktuð næringarefni í bestu gæðum og vinnsluaðferðirnar tryggja hámarks næringargildi og upptöku. Engin fylliefni, skordýraeitur eða aukaefni. Ultimate Greens fæst í helstu apótekum, heilsubúðum, Hagkaupi og Krónunni. KRAFTMIKIL OFURFÆÐACELSUS KYNNIR Ofurþrenna, Ultimate Greens, í einu glasi, Spirulina, Chlor- ella og Barley grass. Í Spirulina eru yfir 100 lífræn næringarefni. Chlorella hefur hreinsandi áhrif og Barley grass getur gert líkamann basískan. Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my style Nýjar vörur í hverri viku www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 2. apríl 2014 | 26. tölublað | 10. árgangur F I N G R A F Ö R I N O K K A R E R U A L L S S TA ÐA R ! Eru enn bara hálfdrætting r Umfang kauphallarviðskipta er hér enn lítið í sa -anburði við nágrannaþjóðirnar. Þetta kom fram í máli Höskuldar H. Ólafssonar, bankastjóra Arion banka, við upphaf Kauphallardaga í bankanum í gær. Þeir eru haldnir í fjórða sinn og lýkur í dag. „Á síðasta ári var meðalvelta hlutabréfa í Kaup-höllinni á dag nærri einn milljarður króna, sem samsvarar þreföldun frá ári u á undan. Markaðs-virði skráðra félaga er svo orðið um þriðjungur af vergri landsframleiðslu þannig að markaðurinn er nálægt því hlutfallslega að vera hálfdrætting-ur á við það se g rist í löndunum sem við berum okkur helst saman við,“ sagði hann. Að þessu sinni kynna 17 félög starfsemi sína á Kaupahallardögum Arion banka, bæði skráð félög og önnur sem stefna á skráningu. - óká Ú EFTIR ENDUR- REISN ÞARF UPPBYGGINGU ➜ Viðtal við Þorkel Sigurlaugs- son, stjórnarformann Fram- takssjóðs Íslands. ➜ Sjóðurinn hefur greitt hlut- höfum sínum 27,5 milljarða í arð frá stofnun árið 2009. ➜ Vilja nýjan sjóð sem leggur áherslu á uppbyggingu inn- viða samfélagsins. MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Miðvikudagur 12 2 SÉRBLÖÐ Markaðurinn | Fólk Sími: 512 5000 2. apríl 2014 78. tölublað 14. árgangur Sjálfsagt að laun séu lág Formaður Kennarasambands Íslands segir að stjórnmálamenn skorti þor til að takast á við launamál kennara. 4 Dýrt að vera með óþol Tollar eru lagðir á mjólkurlausan ís þótt hann sé ekki framleiddur á Íslandi. 8 Brottfarir og lendingar í uppnámi Skæruverkföll hjá Isavia gætu sett úr skorðum 80 brottföll og lendingar. 10 MENNING Sýning Skálm- aldar, Baldur, er þungarokk með leikrænu ívafi. 20 LÍFIÐ Tina Dickow heldur sína fyrstu tónleika í Íslandi í maí. 22 SPORT Guðmundur Guð- mundsson vildi verja heiður sinn og liðsins. 26 SKOÐUN Gunnar Þorsteins- son skrifar um Krossgötur og smjörklípu. 13 FRÉTTIR MARKAÐURINN Opið allan sólarhringinn í Engihjalla og Vesturbergi Jakki kr. 4.990.- NEXT • KRINGLUNNI • SÍMI 551 3200 NJÓTTU ÞÍN Í EVRÓPU Pálína Njarðvík VEIÐISYSTUR Þær Vilborg og Kristín Reynisdætur fara árlega til veiða í Vífilsstaðavatni við upphaf íslenska veiðitímabilsins. Tugir veiðimanna komu að vatninu í gær í blíðskaparveðri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SJÁVARÚTVEGUR Niðurskurður á fjárframlögum til Hafrannsókna- stofnunar getur haft þau áhrif að aflaráðgjöf stofnunarinnar í ein- stökum tegundum getur orðið undir því sem viðkomandi stofn þolir. Því geta nokkrir tugir milljóna sem sparaðir eru af ríkinu í rann- sóknafé orðið samfélaginu dýrir. Staða stofnunarinnar er alvar- leg vegna tekjusamdráttar og útlit er fyrir að ekki verði mögulegt að sinna grunnrannsóknum, en á þeim byggir aflaráðgjöf á hverjum tíma. „Okkur finnst mjög þrengt að fjármögnun rannsókna núna, og í raun eru slæmar horfur í allri okkar starfsemi. Við teljum þetta bráðnauðsynleg verkefni sem við erum að sinna en samdráttur í fjár- veitingum og sértekjum er farinn að hafa áhrif á okkar kjarnastarf- semi,“ segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Hafrannsóknastofnun fær um 1,4 milljarða króna á fjárlögum fyrir árið 2014, en sértekjur eru áætlaðar 1,1 milljarður. Tekjur Hafrannsóknastofnunar dragast því saman um hátt í 300 milljónir króna frá 2012 eða yfir 10 prósent. Jóhann tekur dæmi. „Við erum komin í krappan dans með vökt- unarrannsóknir; eftirliti með því að stofnar séu nýttir með sjálf- bærum hætti. Eftir því sem meira er gengið á slíkar rannsóknir verður óvissan í okkar mælingum meiri. Það getur hreinlega komið niður á aflaráðgjöf í einstökum tegundum, því eftir því sem við vitum minna þeim mun varfærn- ari þarf ráðgjöfin að vera,“ segir Jóhann og útskýrir að ef ætlunin er að fullnýta fiskistofn þá þurfa mjög nákvæmar upplýsingar að liggja fyrir, ef ekki á illa að fara. „Þetta er grundvallaratriði og byggir á nútíma sjálfbærnisvið- miðum og okkar skyldum í því ljósi. Á alþjóðavettvangi er skýr krafa um sjálfbærar veiðar, að áhættan sé ekki óþarflega mikil við nýtingu þessara stofna,“ segir Jóhann. „Vottun um sjálfbærar fiskveiðar leikur sífellt stærra hlutverk og því getur þetta jafnframt komið niður á mark- aðssetningu afurðanna til við- bótar við minni veiðar en mögu- legar væru ef rannsóknum yrði sinnt vel. Það er því afar brýnt að tryggja betur rekstrargrunn rannsóknanna, ekki aðeins í ár eða á næsta ári, heldur til lengri fram- tíðar.“ svavar@frettabladid.is Fjársveltið gæti reynst dýrt Niðurskurður til Hafrannsóknastofnunar kemur niður á nauðsynlegum grunnrannsóknum. Án þeirra gæti aflaráðgjöf orðið undir því sem nytjategundir þola með tilheyrandi tekjutapi fyrir fólk og fyrirtæki í landinu. Úthald rannsóknaskipanna tveggja, Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæ- mundssonar, er stærsti útgjaldaliður Hafrannsóknastofnunar og erfitt að draga verulega úr kostnaði í rekstri án þess að leggja öðru skipinu hluta úr ári. Eins og staðan er núna verður úthaldsdögum skipanna tveggja fækkað úr 340 eins og þeir voru í fyrra í um 200 í ár. Úthaldsdögum fækkað um 140 daga í ár VEIÐI „Við mætum á hverju einasta ári. Það er einfaldlega skylda,“ segir Vilborg Reynisdóttir, for- maður Stangveiðifélags Hafnar- fjarðar, sem mætti ásamt Kristínu systur sinni að Vífilsstaðavatni snemma í gærmorgun. Gærdagurinn markaði upphaf stangveiðitímabilsins hér á landi og tugir manna sóttu vatnið heim í blíðuveðri. Strax um morguninn voru tólf veiðimenn mættir og þöndu flugustangirnar, að sögn Vilborgar og þegar leið á daginn skiptu þeir tugum sem kíktu til að ná úr sér veiðihrollinum. „Ég hef aldrei fengið neitt á þessum fyrsta degi veiðitíma- bilsins,“ segir Vilborg hlæjandi, en hún sér ekki hvaða máli það skipti og gleðst yfir því að biðin er á enda. Aðeins höfðu menn spurnir af því að ein bleikja hefði látið glepj- ast, en ungur veiðimaður sleppti henni að lokinni viðureign. - shá Veiðimenn fjölmenntu að Vífilsstaðavatni í gær en fátt segir af aflabrögðum: Tugir veiðimanna og ein bleikja Ég hef aldrei fengið neitt á þessum fyrsta degi veiðitímabilsins. Vilborg Reynisdóttir formaður Stangveiðifélags Hafnarfjarðar FÓLK Meirihluti ráðherra í ríkis- stjórn Íslands er með iPhone- síma, eða fimm. Hinir fjórir eru með snjallsíma frá Samsung. Ráðherrarnir eru afar mis- virkir á samfélagsmiðlum. Til að mynda eru Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurð- ur Ingi Jóhannsson ekki virk á Twit- ter. Hanna Birna Kristjánsdóttir er langöflugust á miðlinum með tæp þúsund tíst. Á Face- book er það hins vegar Bjarni Benedikts- son sem trónir á toppnum en rúmlega átta þúsund manns líkar við síðuna hans. lkg / sjá síðu 22 Símar íslensku ráðherranna: iPhone með vinninginn Bolungarvík 4° SSA 3 Akureyri 8° SA 2 Egilsstaðir 7° SSA 5 Kirkjubæjarkl. 6° SA 6 Reykjavík 7° SA 7 Milt í veðri Í dag eru horfur á SA-strekkingi allra syðst, annars hægari vindi. Skúrir á stöku stað S- og V-til en bjart með köflum norðanlands. 4 Eftir endurreisn er upp- bygging nauðsynleg Viðtal við Þorkel Sigurlaugsson, fram- kvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands. Sjóðurinn hefur viðrað hugmyndir um nýjan sjóð sem legði áherslu á upp- byggingu innviða samfélagsins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.