Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 4
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 KENNARAVERKFALL Kennaraþing Kennarasambands Íslands (KÍ) var sett á Grand Hóteli í gær. Þingið er haldið í skugga verkfalls fram- haldsskólakennara sem staðið hefur yfir í á þriðju viku. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, vék ekki að kjarabaráttu kennara í ræðu sinni við upphaf þings. Hann sagði að yfirstandandi samninga- viðræður ættu ekki að fara fram í fjölmiðlum eða á ráðstefnu sem þessari. „Það er miklu stærra mál sem hér er verið að ræða. Hér er verið að ræða menntakerfið í heild sinni en ekki bara kjara- deiluna. Ég vil leggja áherslu á almenn atriði sem við eigum að geta náð samstöðu um. Við þurf- um að bæta frammistöðu fram- haldsskólanema,“ sagði hann. „Við þurfum að bæta lesskilning og starfsemina á grunnskólastig- inu þar af leiðandi. Við þurfum að efla heimilin. Þetta eru mikilvæg atriði burtséð frá þeirri kjara- deilu sem nú er uppi. Umræðan um kaup og kjör núna fer fram við samningaborðið.“ Þórður Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, sagði það dapurlegt að setja Kennara- þing þegar stór hluti félagsmanna væri í verkfalli. Hann sagði að stjórnmálamönnum þætti sjálf- sagt að kennarastéttin væri illa launuð og kallaði eftir auknu fjár- magni til skólastarfsins. „Þróunin frá hruni hefur verið sú að kenn- arar dragast aftur úr. Það launa- skrið sem Seðlabankinn er farinn að gera ráð fyrir í sínum viðmið- um er ekki til staðar hjá kennur- um. Við erum tilbúin að setjast niður um ákveðnar kerfisbreyt- ingar en forgangurinn er launa- mál og við verðum að fá botn í þau áður en við stígum í aðra vinnu.“ Guðríður Arnardóttir, formað- ur Félags framhaldsskólakennara, var óánægð með að menntamála- ráðherra hefði ekki talað um yfir- standandi kjaradeilu við setningu þingsins í gær. „Brýnasta verk- efni menntamálaráðherra núna er að beita sér fyrir lausn í kjara- deilu framhaldsskólakennara og koma skólanum til starfa á ný. Ég hef ekki séð mikið af ráðherrum tjá sig né beita sér í þessari kjara- deilu. Þó að fjármálaráðherra haldi um veskið hlýtur það að vera faglegur ráðherra mennta- mála sem á að knýja á um að fá fjármuni inn í sitt ráðuneyti.“ Formaður KÍ lýsti í ræðu sinni yfir áhyggjum af því að fáir sæktu í kennaranám vegna lágra launa. Laun íslenskra kenn- ara væru fyrir neðan meðaltal OECD-ríkjanna. Formaður Félags framhaldsskólakennara tók undir áhyggjurnar, „Hvernig eigum við að laða að hæfa kennara til að sinna kennslu þegar framhalds- skólakennarar eru rétt hálfdrætt- ingar í launum á við kollega sína á Norðurlöndunum? Það hefur verið bent á það í alþjóðaskýrslum að það þurfi að hækka laun íslenskra kennara til að viðhalda nýliðun í stéttinni,“ sagði Guðríður. Kennaraþing KÍ stendur yfir fram á föstudag. snaeros@frettabladid.is Sjálfsagt að launin séu lág Formaður Kennarasambands Íslands segir að stjórnmálamenn skorti þor til að takast á við launamál kennara og þyki sjálfsagt að launin séu lág. Menntamálaráðherra ávarpaði Kennaraþing í gær og vill að sátt náist um styttingu framhaldsskólans og aðrar kerfisbreytingar. Óánægja ríkti með að ráðherra ræddi ekki kjaramál. 1.088 var fjöldi fram-haldsskólakenn- ara og leiðbeinenda veturinn 1999 til 2000. Þeim hefur fjölgað árlega frá þeim tíma og voru 1.656 veturinn 2011 til 2012. KENNARAÞING Illugi Gunnarsson ávarpaði þingið í gær og ræddi almenn sóknarfæri í menntakerfinu. Hann vill stórbæta læsi ungmenna og minnka brottfall úr framhaldsskólum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég hef ekki séð mikið af ráðherrum tjá sig né beita sér í þessari kjaradeilu. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá MILT Í VEÐRI Í dag og næstu daga ríkja S- og SA-áttir, vindur verður yfirleitt hægur, þó má búast við hvassviðri syðst á morgun, einkum undir Eyjafjöllum. Lægir smám saman og á föstudaginn eru horfur á hæglætisveðri um allt land. Hiti breytist lítið. 4° 3 m/s 5° 8 m/s 7° 7 m/s 9° 11 m/s Allhvasst eða hvasst við suður- ströndina, annars hægur vindur. Hægur vindur um allt land. Gildistími korta er um hádegi 16° 28° 9° 23° 15° 6° 22° 9° 9° 22° 20° 22° 20° 22° 18° 19° 10° 22° 6° 6 m/s 8° 6 m/s 7° 5 m/s 3° 4 m/s 8° 2 m/s 4° 2 m/s 3° 10 m/s 8° 6° 4° 3° 5° 6° 5° 5° 7° 5° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN Sturtusett Verð frá kr. 66.900 Gæði fara aldrei úr tísku FRAKKLAND, AP Manuel Valls tók í gær við forsætisráðherraemb- ætti Frakklands af flokksbróður sínum, Jean-Marc Ayrault. Báðir eru þeir sósíaldemókratar rétt eins og François Hollande, forseti landsins. Hollande ákvað að skipta þyrfti um ríkisstjórn eftir að Sósíal- demókrataflokkurinn fékk slæma útreið í sveitarstjórnarkosningum á sunnudag. Reiknað er með að Valls muni kynna nýjan ráðherralista í dag. - gb Hollande skiptir um stjórn: Valls tekur við af í Frakklandi RÁÐHERRASKIPTI Manuel Valls og Jean-Marc Ayrault. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÍSRAEL, AP John Kerry, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt til Ísraels í gær í von um að koma við- ræðum Ísraela og Palestínu- manna af stað á ný. Ýmis merki voru um að hægt yrði að hefja viðræður ef samkomu- lag tækist, sem snerist um að Jonathan Pollard yrði látinn laus úr fangelsi í Bandaríkj- unum í skiptum fyrir hundruð palestínskra fanga í Ísrael. - gb John Kerry flaug til Ísraels: Reynt að bjarga viðræðunum KENNARAVERKFALL Forystu kennara og mennta- málaráðherra greinir á um hvort heppilegt sé að ræða kerfisbreytingar á borð við styttingu framhaldsskólans í kjarasamningum. Illugi Gunnarsson ráðherra segir að stytting framhaldsskólans sé til umræðu í kjaraviðræð- um nú. „Það eru ýmis atriði í kjarasamningum kennara sem hafa áhrif á það hvernig við getum breytt skólakerfinu og þróað það. Meðal annars með styttingu framhaldsskóla.“ Formaður KÍ, Þórður Hjaltested, og formaður Bandalags háskólamanna, Guðlaug Kristjáns- dóttir, sögðu bæði í erindum sínum á Kennara- þingi í gær að kjaraviðræður væru ekki réttur vettvangur til að ræða styttingu framhaldsskólans. „Við þurfum að fá botn í launamálin áður en við ræðum aðrar breytingar,“ sagði Þórður. Undir þetta tekur Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara. „Þú ræðir ekki kerfisbreytingar í menntakerfinu við einhverja eina tiltekna fagstétt. Launa- málin eru forgangsatriði og ráðherra er ekki að byrja á réttum enda.“ - ssb Forysta kennara segir ekki tímabært að ræða styttingu framhaldsskólans: Botn verður að fást í launadeilu ÞÓRÐUR HJALTESTED JOHN KERRY VÍSINDI Allt bendir til að niður- stöður stofnfrumurannsókna sem birtust í janúar síðastliðnum hafi verið byggðar á fölsunum. Þetta fullyrðir rannsóknarnefnd í Japan, og kemur fram í vísindatímaritinu Nature. Rannsóknarnefndin skilaði þeirri niðurstöðu að höfundur- inn Haruko Obokata hafi hagrætt gögnum í rannsóknarvinnunni og sýnt fram á vanrækslu í starfi sem leiðir til þess að niðurstaða rann- sóknarinnar er ekki marktæk. - jm Stofnfrumurannsókn fölsuð: Niðurstöðurnar ómarktækar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.