Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 6
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvað bíða mörg mál umræðu á Alþingi? 2. Hvar er Japönum bannað að veiða hval? 3. Hvað er Hjalti Nordal Gunnarsson tónskáld gamall? SVÖR: 1. Rúmlega 80. 2. Í Suður-Íshafi nu. 3. 15 ára. VELFERÐARMÁL Skoðað verður á næstunni hvort ný stjórnsýslu- stofnun verði sett á stofn til að hafa umsjón með verkefnum ríkis- ins á sviði félagsþjónustu og barna- verndar. Einnig myndi stofnunin hafa eftirlitshlutverk til að tryggja gæði þjónustunnar sem verið er að veita í málaflokkunum. Eygló Harðardóttir félagsmála- ráðherra kynnti hugmyndina á rík- isstjórnarfundi á mánudaginn síð- astliðinn. „Vinna við mótun fjölskyldu- stefnu hefur lengi verið í gangi í ráðuneytinu. Umfjöllun um úrræði fyrir börn í vanda og ábending- ar, sem við höfum fengið um að tryggja þurfi betur gæði og eftirlit í félagsþjónustunni almennt, varð til þess að ég taldi rétt að skipa starfshóp til að beina sjónum að þeim málum. Hópurinn mun skoða hvernig megi útfæra þetta betur og þá sérstaklega hugmyndina um nýja stjórnsýslustofnun sem tæki við þessu eftirlitshlutverki,“ segir Eygló. Hún segir að horft sé til danskr- ar fyrirmyndar en þar í landi starfar stofnunin Socialstyr elsen undir félagsmálaráðuneytinu. Ýmis verkefni sem hafa verið í höndum Barnaverndarstofu eða eru unnin innan velferðarráðu- neytisins í tengslum við félags- þjónustu sveitarfélaga munu þá flytjast yfir til þessarar nýju stofnunar. Verkefnin eru túlkun laga, umsýsla og ráðgjöf við þá sem þjónusta börn, fatlað fólk, aldraða og innflytjendur auk Íslendinga í vanda erlendis. „Sveitarfélögin hafa verið í auknum mæli að taka við verk- efnum á sviði félagsþjónustunn- ar og hafa að mínu mati sinnt því mjög vel. Ríkið þarf aftur á móti að tryggja að það sé gott eftir- lit og gæði í þjónustunni sem er veitt um allt landið. Þetta er viða- mikið verkefni og við þurfum að vanda okkur því við erum með við- kvæmustu einstaklingana í samfé- laginu undir. Starfshópurinn mun því leita leiða til að ríkið geti stutt sem best við sveitarfélögin, eflt þau enn frekar, og þetta er ein hugmyndin,“ segir Eygló og bætir við að einnig verði lögð áhersla á snemmtæka íhlutun vegna vanda barna og unglinga þar sem horft verði til samstarfs við heilbrigðis- ráðherra. erlabjorg@frettabladid.is Tryggja eftirlit með félagsþjónustunni Félagsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi skipun starfshóps til að endur- skoða velferðarþjónustu við börn og barnafjölskyldur. Hugmynd um nýja stjórn- sýslustofnun sem hefur umsjón með félagslegum verkefnum ríkisins er á borðinu. BÖRN Stofnunin mun meðal annars hafa eftirlit með þjónustu sveitarfélaganna í barnaverndarmálum og veita þjónustuaðilum ráðgjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/ Þetta er viðamikið verkefni og við þurfum að vanda okkur því við erum með viðkvæmustu einstakling- ana í samfélaginu undir. Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra. STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin er búin að afgreiða á annað hundrað mála frá því hún kom til valda fyrir tæpu ári, samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið fékk í Stjórnar- ráðinu. Lagafrumvörp eru 110, auk þess hefur stjórnin afgreitt á annan tug þingsályktunartillagna. Ef allt er skoðað hefur ríkis- stjórnin afgreitt á milli 120 og 130 mál. Á þingmálalista ríkisstjórnar- innar voru 173 mál þegar listinn var birtur í haust. Hann var endur- skoðaður fyrir vorþing. Það styttist í að Alþingi fari í sumarfrí, einungis er um tugur þingfundadaga eftir og mörg stór mál bíða, þar á meðal skuldaleið- réttingarfrumvarp ríkisstjórnar- innar og frumvarp um séreignar- sparnað, að öllu óbreyttu verður mælt fyrir þeim í dag. Í gær biðu 40 frumvörp fyrstu umræðu á Alþingi, 51 frumvarp var til umfjöllunar í nefndum og 16 biðu annarrar umræðu. Frum- vörp sem ekki næst að afgreiða á yfirstandandi þingi, flytjast ekki yfir til næsta þings, heldur þarf að endurflytja málið. - jme Rúmlega 170 mál voru á upphaflegum þingmálalista ríkisstjórnarinnar: Búið að afgreiða 110 frumvörp FJÖLDI FRUMVARPA Ríkisstjórnin hefur afgreitt á annað hundrað mála, bæði stór og smá, síðan hún komst til valda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KRÍMSKAGI, AP Anders Fogh Ras- mussen, framkvæmdastjóri NATO, tilkynnti að bandalag- ið hefði slitið öllu samstarfi við Rússland. Þetta kom fram á fundi Atl- antshafsbandalagsins í gær. Ekki var tekin ákvörðun um hvort bandalagið myndi veita Úkraínumönnum aðstoð í varnarmálum. Moskvustjórn hefur varað við samskiptum við bandalagið því það gæti valdið enn meiri örðugleikum í sam- skiptum ríkjanna. Þetta var í fyrsta sinn frá því að Krímskagi var innlimaður í Rússland, sem ráðherrar frá öllum aðildaríkjunum funduðu um málið. Gunnar Bragi Sveins- son utanríkisráðherra sat fund- inn fyrir hönd Íslands. Á síðustu dögum hefur fjölgað í herliði Rússa við landamæri Úkraínu og hefur það skapað hræðsluástand á svæðinu. Her- flugvélar frá NATO stunda her- æfingar í Eystrasaltsríkjunum. Á mánudag heimsótti Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, Krímskaga. Þetta var fyrsta heimsókn frá svo háttsettum rússneskum emb- ættismanni síðan skaginn var innlimaður í rússneska ríkja- sambandið. Medvedev lagði áherslu á að íbúar Krímskaga ættu ekki að líða neitt tap í kjölfar inn- limunarinnar heldur einungis hagnast. - kóh Ráðherrar Atlantshafsbandalagsins funduðu um málefni Krímskaga í gær: NATO slítur öllu samstarfi við Rússa KRANSLAGNING Medvedev tók þátt í minningarathöfn um heimsstyrjöldina seinni í heimsókn sinni á Krímskaga. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP VEISTU SVARIÐ? Fæst án lyfseðils Verkir í hálsi og öxlum?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.