Fréttablaðið - 02.04.2014, Page 8
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
VIÐSKIPTI Innflutningi á ís, sem
ekki er framleiddur úr kúa-
mjólk, er stjórnað með bæði
verð- og magntollum. Um er að
ræða svokallaðan „non-dairy“-ís,
til dæmis soja- og möndluís. Ann-
ars vegar er lagður 30 prósenta
verðtollur á innflutningsverð og
hins vegar 110 króna magntoll-
ur á hvert kíló sem flutt er inn.
Afleiðingin er sú að ísinn er dýr
og úrvalið lítið og stopult í versl-
unum.
„Við viljum að skjólstæðingar
okkar geti notið sömu réttinda
og aðrir, þó ís sé auðvitað ekki
endilega það sem maður ráðlegg-
ur fólki að borða á hverjum degi
þá er það réttlætismál að okkar
fólk geti fengið sér ís án þess að
borga svona rosalega fyrir það,“
segir Fríða Rún Þórðardóttir, for-
maður Astma- og ofnæmisfélags
Íslands.
Tollar sem lagðir eru á ísinn
eru verndartollar sem eiga að
vernda innlenda mjólkurfram-
leiðslu. Hins vegar er „non-
dairy“-ís ekki framleiddur úr
kúamjólk eða öðrum innlendum
landbúnaðarafurðum. Það er
því engin innlend búvörufram-
leiðsla sem þarfnast verndar
enda er engin framleiðsla á þess-
um vörum hér á landi.
Fríða segir að í félaginu séu
alls um 960 félagsmenn og af
þeim sem eru með fæðuóþol
eru flestir með mjólkuróþol eða
mjólkurofnæmi. Aðilar með slíkt
óþol eða ofnæmi þurfa að forðast
alfarið vörur sem innihalda kúa-
mjólk þar sem ofnæmisviðbrögð-
in geta verið alvarleg og jafnvel
lífshættuleg. Eftir stendur að
þeir sem eru með mjólkuróþol
verða að greiða mjólkurtolla af
ís, þrátt fyrir að geta ekki neytt
mjólkur og þrátt fyrir að ísinn sé
alls ekki búinn til úr mjólk.
Brynhildur Pétursdóttir, þing-
maður Bjartrar framtíðar, er
meðal flutningsmanna frum-
varps um niðurfellingu tolla
og vörugjalda á staðgengdar-
vörur kúamjólkur. Í frumvarp-
inu segir meðal annars að verð
á staðgengdarvöru mjólkur virð-
ist vera allt að því þrefalt verð
kúamjólkur. Verulegt tilefni sé
til þess að draga úr þessum mun
enda ekki réttlátt að refsa fjár-
hagslega þeim sem af einhverj-
um ástæðum kjósa að neyta ekki
mjólkur.
„Ég veit ekki til þess að það
sé einhver andstaða við þetta
frumvarp og við leggjum mikla
áherslu á að það fari út úr nefnd-
inni. Þó þetta sé lítið skref þá er
það mikilvægt,“ segir Brynhild-
ur. fanney@frettabladid.is
➜ 30 prósenta verðtollur er
lagður á innflutningsverð á
„non-dairy“ ís. Einnig
er lagður 110 króna
magntollur á hvert kíló
sem flutt er inn.
Allir þingmenn Sjálfstæðisflokks, utan ráðherra, hafa lagt
fram tillögu til þingsályktunar um mótun viðskiptastefnu
Íslands. Í henni ályktar Alþingi að fela ráðherra að móta
viðskiptastefnu sem hafi að markmiði að
jafna samkeppnisstöðu innlendrar versl-
unar gagnvart erlendri og lækka vöruverð
til hagsbóta fyrir neytendur. Stefnan verði
lögð fyrir Alþingi í formi þingsályktunar-
tillögu fyrir 1. júlí 2014.
„Ég held að það sé skýr vilji fyrir því
bæði í þjóðfélaginu og á þinginu að við
séum með skilgreinda viðskiptastefnu.
Það sjá allir fáránleika núverandi ástands,“ segir Guð-
laugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Í tillögunni segir að tilgangur hennar sé að auka veg
innlendrar verslunar og neytenda. Liður í að ná þeim
markmiðum er að endurskoða fyrirkomulag skatta-
mála, þar með talið tolla og vörugjalda. Ísland er ekki í
tollabandalagi og hafa stjórnvöld fullt forræði á að lækka
tolla. Fram til þessa hefur stefna stjórnvalda verið að
lækka ekki tolla nema á grundvelli gagnkvæmra ívilnana
í gegnum Alþjóðaviðskiptastofnunina, EFTA eða með
tvíhliða samningum.
„Þetta snýr að samkeppnisstöðu þjóðarinnar og verð-
lagi á Íslandi og við erum ekki að hegna neinum öðrum
en almenningi og fyrirtækjum ef við erum með hindranir
inn á innlendan markað,“ segir Guðlaugur og bætir við:
„Þeim þjóðum sem hafa gengið hvað lengst í viðskipta-
frelsi hefur alla jafna vegnað mun betur. Einföldun er
lykilorðið.“
Vilja lækka vöruverð til hagsbóta fyrir neytendur
Dýrt að vera með óþol eða ofnæmi
Tollar eru lagðir á mjólkurlausan ís þrátt fyrir að slíkur ís sé ekki framleiddur á Íslandi. Formaður Astma- og ofnæmisfélagsins segir það
vera réttlætismál að fólk sem er með óþol eða ofnæmi geti notið þess að fá sér ís án þess að þurfa að greiða fyrir það hátt verð.
VERNDAR-
TOLLAR „Non-
dairy“-ís er ekki
framleiddur úr
kúamjólk eða
öðrum inn-
lendum land-
búnaðarvörum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVÍÞJÓÐ Fataframleiðandinn
Champion í Svíþjóð vildi ekki
ráða konu til starfa vegna sam-
kynhneigðar hennar. Í starfsum-
sókn í gegnum ráðningarstofu
greindi konan frá kynhneigð
sinni. Hún var kölluð í viðtal á
ráðningarstofuna en fyrirtækið
hafnaði henni.
Ráðningarstofan hætti sam-
starfi við Champion og konan
kærði fyrirtækið með aðstoð
stéttarfélags fyrir mismunun.
Champion, sem í fyrstu neit-
aði sök, hefur nú samþykkt
að greiða konunni 60 þúsund
sænskar krónur í bætur. - ibs
Fataframleiðandi mismunar:
Lesbía fékk
ekki starf
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður
skuldara fær heimild til að beita
dagsektum ef stjórnvöld, fyrir-
tæki eða samtök draga úr hömlu
að veita upplýsingar sem emb-
ættinu eru nauðsynlegar til að
rækja lögbundið hlutverk sitt.
Eygló Harðardóttir, félags- og
húsnæðismálaráðherra, hefur
lagt frumvarp þessa efnis fram
á Alþingi.
Umboðsmaður skuldara hefur
í dag ekki úrræði til að knýja
upplýsingaskyldan aðila til að
afhenda þær upplýsingar sem
hann hefur óskað eftir þrátt
fyrir ótvíræða lagaskyldu. - jme
Nýtt frumvarp á Alþingi:
Umboðsmaður
má dagsekta
FÆR HEIMILD Umboðsmaður skuldara
fær heimild til að beita dagsektum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN