Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 10
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SAMGÖNGUR „Ljóst er að komi til
vinnustöðvunar mun það hafa í för
með sér röskun á innanlandsflugi
og millilandaflugi á umræddu tíma-
bili,“ segir í yfirlýsingu frá Isavia
vegna boðaðra verkfalla hjá um 400
flugvallarstarfsmönnum félagsins.
Þrjú félög starfsmanna á flugvöll-
um sem ekki hefur náðst að semja
við um nýja kjarasamninga hafa
samþykkt að grípa til þriggja tíma-
bundinna vinnustöðvana nú í apríl
og loks til ótímabundins verkfalls
30. apríl takist ekki að ná samn-
ingum. Þetta eru Félag flugmála-
starfsmanna ríkisins, Stéttarfélag
í almannaþjónustu og Landssam-
band slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna. Þetta eru starfsmenn á
öllum flugvöllum landsins og flug-
öryggisverðir á Keflavíkurflugvelli.
„Það er því miður alltof mikið
sem ber í milli,“ segir Kristján
Jóhannsson, formaður Félags flug-
málastarfsmanna ríkisins. Kristján
kveður liðsmenn félaganna þriggja
hafa gefið skýrt til kynna að þeir
myndu fella samninga sem byggðu á
þeirri 2,8 prósent launahækkun sem
Samtök atvinnulífsins byðu.
Tímabundnu vinnustöðvanirnar
eiga að vera 8., 23. og 25. apríl og
standa í fimm klukkutíma í hvert
sinn, frá klukkan fjögur að morgni
til klukkan níu. Mikið er um að
vera í áætlunarflugi á þessum tíma
dags. Þannig eru um 80 brottfarir
og lendingar á Keflavíkurflugvelli
innan þessa tímaramma umrædda
þrjá daga.
„Isavia vinnur að viðbragðsáætl-
un ásamt flugrekstraraðilum sem
miðar að því að takmarka sem mest
röskun á flugi og óþægindi sem
af þeim kunna að hljótast,“ segir í
yfirlýsingu Isavia þar sem flugfar-
þegum er bent á að fylgjast með til-
kynningum á vefsvæðum Isavia,
Keflavíkurflugvallar og flugfélag-
anna um breytingar sem kunna að
verða á flugáætlun þegar nær dragi
boðuðum aðgerðum.
Erfitt er að meta möguleikana á
að samkomulag náist fyrir 8. apríl.
Samkvæmt Isavia eru kröfur stétt-
arfélaga talsvert hærri en samið
hefur verið um á almennum vinnu-
markaði auk þess sem þau vilji gera
samninga til skamms tíma.
„Þá hefur hugmyndum til að
koma til móts við kröfur félag-
anna verið hafnað án efnislegrar
umræðu. Framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins hefur meðal
annars sagt að ekkert í launaþró-
un þessa hóps réttlæti annað en að
fylgja þeirri meginlínu sem aðilar
á almennum vinnumarkaði hafa
þegar samið um,“ segir Isavia.
Þótt vinnustöðvununum eigi að
ljúka klukkan níu umrædda morgna
verður ekki hægt að hefja flug strax
þá, því þar sem flugöryggisverðir
eru ekki við vinnu er engum, hvorki
öðru starfsfólki né farþegum, hleypt
inn í flugstöðina í Keflavík á meðan
stöðvunin stendur. Það mun því líða
nokkur tími þar til fyrstu vélar geta
tekið í loftið eða lent.
Flugfélag Íslands og Flugfélagið
Ernir sem stunda áætlunarflug inn-
anlands myndu einnig verða fyrir
truflunum af vinnustöðvunum.
Ingi Þór Guðmundsson, mark-
aðsstjóri Flugfélags Íslands, segir
að verið sé að skoða hvað sé hægt
að gera svo farþegar verði fyrir
sem minnstri röskun. „Það er lík-
legt að Flugfélag Íslands hefji flug
klukkan níu til allra áfangastaða,“
segir hann.
. gar@frettabladid.is
Áttatíu brottfarir og
lendingar í uppnámi
Þrjú skæruverkföll flugvallarstarfsmanna gætu sett úr skorðum áttatíu lendingar
og brottfarir í utanlandsflugi auk röskunar á innanlandsflugi. Isavia og flugfélög-
in gera áætlun til að lágmarka truflunina sem gæti orðið enn þá meiri í lok apríl.
• Þriðjudaginn 8. apríl 2014. Frá klukkan 04.00 til 09.00.
• Miðvikudaginn 23. apríl 2014. Frá klukkan 04.00 til 09.00.
• Föstudaginn 25. apríl 2014. Frá klukkan 04.00 til 09.00.
• Miðvikudaginn 30. apríl 2014. Klukkan 04.00 hefst allsherjarverkfall sem
stendur þar til annað verður ákveðið.
HVENÆR VERÐA VERKFÖLLIN?
KOMUR OG BROTTFARIR Í KEFLAVÍK AÐ MORGNI 8. APRÍL
Tími Flugnr. Til/Frá
06:15 FI614 New York (JFK)
06:15 FI622 Newark, NY
06:20 FI602 Toronto
06:30 PF107 Alicante
06:30 FI630 Boston
06:35 FI670 Denver
06:40 FI692 Edmonton
06:40 FI741 Liege
06:45 WW201 London Gatwick
06:45 FI680 Seattle
07:00 WW303 Copenhagen
07:00 BBD6810 Dublin
07:20 FI532 Munich
07:25 FI520 Frankfurt
07:35 FI430 Glasgow
07:35 FI306 Stockholm
07:40 FI450 London Heathrow
07:40 FI502 Amsterdam
07:40 FI542 Paris CDG
07:45 FI470 London Gatwick
07:45 FI204 Copenhagen
07:50 FI318 Oslo
08:00 GAF501 St. Johns
08:00 FI338 Stavanger
08:20 EZY1805 Manchester
09:00 EZY1806 Manchester
Heimild/Isavia
Friðrik Már
Baldursson
Göran
Persson
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Ásdís Halla
Bragadóttir
Björgólfur
Jóhannsson
Sigrún Ragna
Ólafsdóttir
Margrét Pála
Ólafsdóttir
Stephane
Garelli
ÁRSFUNDUR ATVINNULÍFSINS 2014
Í HÖRPU – SILFURBERGI – FIMMTUDAGINN 3. APRÍL KL. 14-16
Fundurinn verði sýndur í beinni útsendingu á vef SA.
AUKIN SAMKEPPNISHÆFNI
BETRI LÍFSKJÖR ALLRA
Skráning á www.sa.is SAMTÖK ATVINNULÍFSINS#arsfundur
32. gr.
Stjórn félagsins skal einum mánuði fyrir aðalfund ár hvert auglýsa
frest til framboðs í trúnaðarstöður samkvæmt 22. gr.
Framboðsfrestur skal vera minnst 14 sólarhringar fyrir aðalfund
og skal tillögum skilað til kjörstjórnar RSÍ innan þess tíma.
Tilkynning um framboðsfrest
til stjórnarkjörs
Reykjavík 31. mars 2014.
TÚNIS Tveir lögreglumenn í Túnis
hafa verið dæmdir til að sitja sjö
ár í fangelsi fyrir að hafa nauðg-
að ungri konu. Þriðji lögreglu-
maðurinn fékk tvö ár fyrir að
hafa reynt að kúga fé út úr kær-
asta konunnar.
Nauðgunin átti sér stað í sept-
ember árið 2012. Lögreglumenn-
irnir þrír réðust á konuna og
kærasta hennar í bifreið. Tveir
þeirra nauðguðu konunni, hvor
á eftir öðrum, á meðan sá þriðji
hélt kærasta hennar föstum.
Viðbrögð stjórnvalda voru þau
að ákæra konuna fyrir siðferðis-
brot, en sú ákæra var dregin til
baka eftir að konan hafði skrifað
bók um reynslu sína.
Málið hefur allt vakið heimsat-
hygli og varð að eins konar próf-
máli um það hvernig tekið yrði á
réttindum kvenna í landinu. Árið
áður hafði stjórn landsins hrak-
ist frá völdum vegna uppreisn-
ar almennings í arabíska vorinu
svonefnda.
Lögmaður konunnar, Radhia
Nasraoui, segir dóminn hins
vegar alltof vægan: „Þetta er
hneyksli,” hefur AP fréttastofan
eftir henni. „Þeir neituðu öllu.
Þeir voru jafnvel svo ósvífnir að
segja að hún hafi leitað á þá.” - gb
Dómstóll í Túnis úrskurðar í nauðgunarmáli:
Tveir lögreglumenn
dæmdir í fangelsi
MÓTMÆLI VIÐ DÓMSHÚSIÐ Lög-
maður konunnar segir dóminn allt of
vægan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP