Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 2. apríl 2014 | FRÉTTIR | 11
DANMÖRK Evrópusambandsborg-
arar eiga rétt á þjónustu dönsku
þjóðkirkjunnar í heimalandi sínu
hafi þeir starfað í Danmörku í
einn mánuð eða lengur. Danskir
prestar eru þess vegna á faralds-
fæti, að því er segir á fréttavef
Kristilega dagblaðsins í Dan-
mörku.
Þar kemur fram að það séu
einkum Austur-Evrópubúar sem
biðja um þessa þjónustu en hana
fá þeir sér að kostnaðarlausu.
Þjónustan felur í sér skírn, hjóna-
vígslu og útför í heimalandinu.
Haft er eftir formanni danska
kirkjuráðsins, Anders Gade-
gaard, að prestum sem reglulega
pakka niður í ferðatösku og halda
til Austur-Evrópu fjölgi stöðugt.
Hann bendir þó á að mikill hluti
„nýja evrópska safnaðarins“ tali
ekki ensku þannig að innan tíðar
verði nauðsynlegt að ráða farand-
presta með sérþekkingu á slav-
neskum málum.
Mor ten Messersch midt ,
fulltrúi Danska þjóðarflokksins
á Evrópuþinginu, segir þessa
þróun hroðalega. Enn einu sinni
komi í ljós slæmar afleiðingar
stækkunar Evrópusambandsins
til austurs og regluverks sam-
bandsins.
Hann segir það
ekki eðlilegt að
Danir hafi yfir-
vald yfir kirkjum
sínum. Hann tekur
það fram að Evr-
ópusambandið sé
orðið alltof valda-
mikið og hvetur Dani til þess að
krefjast þess að fá erlenda presta
til Danmerkur. - ibs
Austur-Evrópubúar nýta sér reglur ESB og fá presta heim til sín frá Danmörku til ókeypis prestsverka:
Danskir prestar í vinnuferðir til A-Evrópu
PRESTSVERK
Danskir prestar fara
reglulega til Austur-
Evrópu til þess að veita þar
gjaldfrjálsa þjónustu.NORÐURLÖND Búist er við að
ástandið í Úkraínu, samstarf
Norðurlanda og Rússlands og við-
fangsefni tengd lýðræðisþróun í
Úkraínu verði til umfjöllunar við
upphaf þemaþings Norðurlanda-
ráðs á Akureyri þann 8. apríl.
Að öðru leyti verður þemaþingið
helgað sjálfbærri nýtingu nátt-
úruauðlinda, að því er segir í
frétt á vef ráðsins.
Rædd verður tillaga um viðmið
fyrir sjálfbæran námurekstur
á Norðurlöndum og ennfremur
áhrif alþjóðlegs samkomulags
sem nýlega var gert um makríl-
veiðar í Norður-Atlantshafi. - ibs
Norðurlandaráð á Akureyri:
Ræða Úkraínu
og makrílveiðar
NORÐURLANDARÁÐ Sjálfbær nýting
náttúruauðlinda verður á dagskrá
þemaþings ráðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HÚSAVÍK Stéttarfélagið Fram-
sýn krefst þess að Vísir í Grinda-
vík endurskoði áform um að loka
starfsstöð fyrirtækisins á Húsa-
vík um næstu mánaðamót.
Fiskvinnsla Vísis er með stærri
vinnustöðum á Húsavík. Vinnsl-
an er búin nýjum og fullkomnum
vinnslulínum. Framsýn segir að
gangi lokunaráformin eftir muni
þau hafa alvarlegar afleiðingar
í för með sér fyrir starfsfólkið,
þjónustuaðila og samfélagið allt
við Skjálfanda.
„Í ljósi þessara staðreynda má
það ekki gerast að fiskvinnslu
verði hætt á vegum fyrirtækisins
á Húsavík. Sá skaði verður ekki
bættur,“ segir í yfirlýsingu frá
félaginu. - jme
Framsýn með yfirlýsingu:
Vilja að Vísir
hætti við lokun
EKKI LOKA Stéttarfélagið Framsýn
vill að ákvörðun Vísis í Grindavík um
að hætta fiskvinnslu á Húsavík verði
endurskoðuð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA
Ný reglugerð tekur gildi
Ný reglugerð um starfsábyrgðartrygg-
ingar hönnuða og byggingarstjóra
hefur verið undirrituð í umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu, að því er segir á
vef Mannvirkjastofnunar.
Ákvæði nýju reglugerðarinnar eru
sögð mun skýrari og ýtarlegri en
sambærileg ákvæði eldri byggingar-
reglugerðar. Reglugerðin tekur gildi
hinn 1. júní næstkomandi.
FRAMTÍÐARREIKNINGUR
GÓÐUR STAÐUR FYRIR FERMINGARPENINGANA
Framtíðarreikningurinn ber alltaf hæstu vexti verðtryggðra
sparireikninga og er laus við 18 ára aldur. Hann er skynsamlegur
staður fyrir fermingarpeningana, svo þeir nýtist í framtíðinni til að
láta draumana rætast. Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
bætum við 5.000 kr. við.*
Hægt er að stofna Framtíðarreikning í næsta útibúi Arion banka.
*Eitt mótframlag fyrir hvert fermingarbarn
18 ÁRA 12/11 2018
LÁTTU FERMINGARPENINGINN
VAXA MEÐ ÞÉR