Fréttablaðið - 02.04.2014, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 2. apríl 2014 | SKOÐUN | 13
Fyrir skemmstu lagði Orkustofn-
un fram umdeildan lista með 91
virkjanahugmynd og bað verk-
efnisstjórn um vernd og nýtingu
náttúrusvæða um að meta þær.
Forstöðumaður Orkustofnunar
kallast orkumálastjóri. Sá sem
gegnir þeirri
stöðu núna er
ekki vel læs á
lög, ef marka
má yfirlýsing-
ar hans um að
stofnun hans
hafi verið skylt
að gera þetta.
Í ljós kemur
nefnilega að
meirihluti hug-
myndanna, eða
alls 50 hugmyndir, er settur fram
að frumkvæði stofnunarinnar
sjálfrar. Ekkert orkufyrirtæki bað
um mat á þeim. Staðreyndin er
sú, þvert á það sem sitjandi orku-
málastjóri hefur látið hafa eftir
sér, að lög mæla alls ekki fyrir um
þetta. Lögin skylda Orkustofnun
einungis til að setja fram skil-
greindar hugmyndir orkufyrir-
tækja. Þær eru miklu færri.
Engin lög mæla sumsé fyrir um
skyldu Orkustofnunar til að senda
verkefnisstjórn sínar eigin virkj-
anahugmyndir. Vissulega er sleg-
inn sá varnagli í lögum að stofn-
uninni sé heimilt að setja fram
sínar virkjanahugmyndir. En það
er bara heimild. Orkumálastjóri
þyrfti því að setja fram rökstuðn-
ing fyrir því að stofnun hans ætti
að beita þessari lagaheimild um
hverja einstaka hugmynd. Það
blasir síður en svo við af hverju
stofnunin mætti beita henni.
Mér finnst merkilegt
hversu aðgengi þeirra
sem ata aðra auri er
greitt að ríkisfjölmiðlum.
Nú nýverið var ég bor-
inn þungum sökum í
Kastljósþætti Sjónvarps-
ins, þar sem fréttamaður
fer með getsakir á hendur
mér í löngu máli, þar sem
hann fjallar um kröfu
stjórnar Krossgatna um
rannsókn á meintri vafa-
samri meðferð fjármuna
Krossgatna. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Kastljós fer í slíka veg-
ferð gegn mér, en fyrir rúmum
þremur árum gerði Kastljós
slíkt hið sama, er það flutti mál
kvenna sem fóru með fáránlegar
ásakanir á hendur mér sem sak-
sóknari vísaði síðan frá. Þar fóru
Kastljósmenn rangt með og brutu
á mér rétt.
Fréttamaðurinn lætur þess
getið að ég hafi sætt ákæru,
reyndar af allt öðrum toga, og
telur það upplýsandi fyrir þessa
frétt og gerir síðan samanburð
sem er fáránlegur. En fréttamað-
urinn gætir ekki jafnræðis og
upplýsir ekki að ákærandi minn,
Guðmundur St. Ragnarsson lög-
maður, hefur sætt kæru vegna
þjófnaðar, fjárdráttar, fölsunar
ársreikninga og fyrir að villa á
sér heimildir.
Sú aðferð að gera kröfu um
rannsókn og senda bólgin bréf í
allar áttir er í hæsta máta ámæl-
isverð. Af hverju eru þeir ekki
spurðir sem að málinu koma og
málið leyst með þeim hætti?
Þennan undarlega mála-
tilbúnað verður að skoða
í ljósi þess að sú stjórn
sem þetta gerir situr án
umboðs. Hún er skipuð af
stjórn Krossins sem kosin
var á ólöglegum fundi þar
sem fjölmargar réttar-
reglur voru brotnar. Flest-
ir þeirra stjórnarmanna
sem þá voru settir inn
hafa yfirgefið stjórnina og
eru ekki virkir. Einn ósk-
aði eftir að segja af sér,
en honum er tjáð að það geti hann
ekki nema á fundi. Það er að sjálf-
sögðu ekki rétt.
Enginn ársfundur var haldinn í
fyrra þrátt fyrir að ítrekað væri
rekið á eftir því og fyrirheit voru
gefin um það.
Óyndisúrræði
Nú er komið að aðalfundi sam-
kvæmt samþykktum safnaðarins
og ljóst er að þeir sem sitja fyrir
á fleti bera mikinn kvíðboga fyrir
þeim fundi og reyna með öllum
tiltækum ráðum að halda sínu.
Tímasetning þessarar beiðni
um rannsókn segir eiginlega allt
sem segja þarf. Menn hafa gripið
til þeirra óyndisúrræða að sverta
mig sem þeir mega og vega að
mér með þeim hætti að mér verði
ekki stætt á því að halda minni
baráttu áfram fyrir breytingum
í stjórn Krossins.
Hér eru menn með augljósum
og óábyrgum hætti að misnota
fjölmiðla og réttarkerfið til að ná
fram annarlegum markmiðum.
Það sjá allir sem vilja sjá að
stjórn Krossins hefur brotið lög
sem og samþykktir safnaðarins
með framgöngu sinni. Nú skal
búin til smjörklípa til að breiða
yfir það.
Þessi aðför segir ekkert um
mig, en fjölmargt um þá sem að
henni standa.
Auðvitað ætti að biðja um opin-
bera rannsókn á starfsháttum
stjórnarmanna í Krossinum sem
hafa með ótrúlegum lagaklækj-
um, svikum og fláræði barist
fyrir annarlegum hagsmunum.
Ég held að sú leið sé e.t.v. ekki
sú rétta heldur beri að hvetja
stjórn Krossins til að fara að
lögum og halda aðalfund hið
fyrsta.
Sá yðar sem syndlaus er …
Af slökum
lagaskilningi
orkumálastjóra
ORKUMÁL
Sif Konráðsdóttir
lögfræðingur
FJÁRMÁL
Gunnar
Þorsteinsson
fv. framkvæmda-
stjóri Krossgatna
➜ Þessi aðför segir ekkert
um mig, en fjölmargt um
þá sem að henni standa.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is