Fréttablaðið - 02.04.2014, Síða 13

Fréttablaðið - 02.04.2014, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. apríl 2014 | SKOÐUN | 13 Fyrir skemmstu lagði Orkustofn- un fram umdeildan lista með 91 virkjanahugmynd og bað verk- efnisstjórn um vernd og nýtingu náttúrusvæða um að meta þær. Forstöðumaður Orkustofnunar kallast orkumálastjóri. Sá sem gegnir þeirri stöðu núna er ekki vel læs á lög, ef marka má yfirlýsing- ar hans um að stofnun hans hafi verið skylt að gera þetta. Í ljós kemur nefnilega að meirihluti hug- myndanna, eða alls 50 hugmyndir, er settur fram að frumkvæði stofnunarinnar sjálfrar. Ekkert orkufyrirtæki bað um mat á þeim. Staðreyndin er sú, þvert á það sem sitjandi orku- málastjóri hefur látið hafa eftir sér, að lög mæla alls ekki fyrir um þetta. Lögin skylda Orkustofnun einungis til að setja fram skil- greindar hugmyndir orkufyrir- tækja. Þær eru miklu færri. Engin lög mæla sumsé fyrir um skyldu Orkustofnunar til að senda verkefnisstjórn sínar eigin virkj- anahugmyndir. Vissulega er sleg- inn sá varnagli í lögum að stofn- uninni sé heimilt að setja fram sínar virkjanahugmyndir. En það er bara heimild. Orkumálastjóri þyrfti því að setja fram rökstuðn- ing fyrir því að stofnun hans ætti að beita þessari lagaheimild um hverja einstaka hugmynd. Það blasir síður en svo við af hverju stofnunin mætti beita henni. Mér finnst merkilegt hversu aðgengi þeirra sem ata aðra auri er greitt að ríkisfjölmiðlum. Nú nýverið var ég bor- inn þungum sökum í Kastljósþætti Sjónvarps- ins, þar sem fréttamaður fer með getsakir á hendur mér í löngu máli, þar sem hann fjallar um kröfu stjórnar Krossgatna um rannsókn á meintri vafa- samri meðferð fjármuna Krossgatna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kastljós fer í slíka veg- ferð gegn mér, en fyrir rúmum þremur árum gerði Kastljós slíkt hið sama, er það flutti mál kvenna sem fóru með fáránlegar ásakanir á hendur mér sem sak- sóknari vísaði síðan frá. Þar fóru Kastljósmenn rangt með og brutu á mér rétt. Fréttamaðurinn lætur þess getið að ég hafi sætt ákæru, reyndar af allt öðrum toga, og telur það upplýsandi fyrir þessa frétt og gerir síðan samanburð sem er fáránlegur. En fréttamað- urinn gætir ekki jafnræðis og upplýsir ekki að ákærandi minn, Guðmundur St. Ragnarsson lög- maður, hefur sætt kæru vegna þjófnaðar, fjárdráttar, fölsunar ársreikninga og fyrir að villa á sér heimildir. Sú aðferð að gera kröfu um rannsókn og senda bólgin bréf í allar áttir er í hæsta máta ámæl- isverð. Af hverju eru þeir ekki spurðir sem að málinu koma og málið leyst með þeim hætti? Þennan undarlega mála- tilbúnað verður að skoða í ljósi þess að sú stjórn sem þetta gerir situr án umboðs. Hún er skipuð af stjórn Krossins sem kosin var á ólöglegum fundi þar sem fjölmargar réttar- reglur voru brotnar. Flest- ir þeirra stjórnarmanna sem þá voru settir inn hafa yfirgefið stjórnina og eru ekki virkir. Einn ósk- aði eftir að segja af sér, en honum er tjáð að það geti hann ekki nema á fundi. Það er að sjálf- sögðu ekki rétt. Enginn ársfundur var haldinn í fyrra þrátt fyrir að ítrekað væri rekið á eftir því og fyrirheit voru gefin um það. Óyndisúrræði Nú er komið að aðalfundi sam- kvæmt samþykktum safnaðarins og ljóst er að þeir sem sitja fyrir á fleti bera mikinn kvíðboga fyrir þeim fundi og reyna með öllum tiltækum ráðum að halda sínu. Tímasetning þessarar beiðni um rannsókn segir eiginlega allt sem segja þarf. Menn hafa gripið til þeirra óyndisúrræða að sverta mig sem þeir mega og vega að mér með þeim hætti að mér verði ekki stætt á því að halda minni baráttu áfram fyrir breytingum í stjórn Krossins. Hér eru menn með augljósum og óábyrgum hætti að misnota fjölmiðla og réttarkerfið til að ná fram annarlegum markmiðum. Það sjá allir sem vilja sjá að stjórn Krossins hefur brotið lög sem og samþykktir safnaðarins með framgöngu sinni. Nú skal búin til smjörklípa til að breiða yfir það. Þessi aðför segir ekkert um mig, en fjölmargt um þá sem að henni standa. Auðvitað ætti að biðja um opin- bera rannsókn á starfsháttum stjórnarmanna í Krossinum sem hafa með ótrúlegum lagaklækj- um, svikum og fláræði barist fyrir annarlegum hagsmunum. Ég held að sú leið sé e.t.v. ekki sú rétta heldur beri að hvetja stjórn Krossins til að fara að lögum og halda aðalfund hið fyrsta. Sá yðar sem syndlaus er … Af slökum lagaskilningi orkumálastjóra ORKUMÁL Sif Konráðsdóttir lögfræðingur FJÁRMÁL Gunnar Þorsteinsson fv. framkvæmda- stjóri Krossgatna ➜ Þessi aðför segir ekkert um mig, en fjölmargt um þá sem að henni standa. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.