Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 17
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 2. apríl 2014 | 26. tölublað | 10. árgangur Sjónmælingar í Optical Studio Tímapantanir í síma: Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 F I N G R A F Ö R I N O K K A R E R U A L L S S TA ÐA R ! Erum enn bara hálfdrættingar Umfang kauphallarviðskipta er hér enn lítið í sam- anburði við nágrannaþjóðirnar. Þetta kom fram í máli Höskuldar H. Ólafssonar, bankastjóra Arion banka, við upphaf Kauphallardaga í bankanum í gær. Þeir eru haldnir í fjórða sinn og lýkur í dag. „Á síðasta ári var meðalvelta hlutabréfa í Kaup- höllinni á dag nærri einn milljarður króna, sem samsvarar þreföldun frá árinu á undan. Markaðs- virði skráðra félaga er svo orðið um þriðjungur af vergri landsframleiðslu þannig að markaðurinn er nálægt því hlutfallslega að vera hálfdrætting- ur á við það sem gerist í löndunum sem við berum okkur helst saman við,“ sagði hann. Að þessu sinni kynna 17 félög starfsemi sína á Kaupahallardögum Arion banka, bæði skráð félög og önnur sem stefna á skráningu. - óká Úrvalsvísitölunni breytt í júlí Félögum í úrvalsvísitölu Kauphallarinnar, Nasdaq OMX Iceland, verður fjölgað úr sex í átta í sumar. Breytingin tekur gildi 1. júlí næstkomandi og þá verður nafni og auðkenni vísitölunnar breytt í OMX Iceland 8 (OMX8). „Uppbyggingu íslenska hlutabréfamarkaðarins miðar vel. Nýlegar skráningar hafa breytt mark- aðnum og skráningarhorfur eru góðar. Fjölgun fé- laga í Úrvalsvísitölunni OMX Iceland 8 endur- speglar þá þróun sem hefur orðið á undanförnum árum,“ sagði Magnús Harðarson, aðstoðarforstjóri Kauphallarinnar, í tilkynningu um breytingarnar. - hg EFTIR ENDUR- REISN ÞARF UPPBYGGINGU ➜ Viðtal við Þorkel Sigurlaugs- son, stjórnarformann Fram- takssjóðs Íslands. ➜ Sjóðurinn hefur greitt hlut- höfum sínum 27,5 milljarða í arð frá stofnun árið 2009. ➜ Vilja nýjan sjóð sem leggur áherslu á uppbyggingu inn- viða samfélagsins. SÍÐA 6-7 Stækkun verksmiðju miðar vel Vonast er til að stækkun fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Vopnafirði ljúki innan skamms. Verk- smiðjan hefur starfsleyfi fyrir framleiðslu upp á 850 tonn af hráefni á sólarhring en framleiðsluget- an verður aukin upp í 1.150 tonn. „Þetta er mjög stór framkvæmd. Við bætum við nýjum loftþurrkara, mjölvindu, mjölkæli, eiming- artækjum og pressu,“ segir Sveinbjörn Sigmunds- son, verksmiðjustjóri HB Granda á Vopnafirði, í frétt á heimasíðu sjávarútvegsfyrirtækisins. Verkið hefur að hans sögn að mestu leyti verið í höndum Héðins hf. en ýmsir undirverktakar hafa einnig komið að stækkuninni. - hg

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.