Fréttablaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 18
| 2 2. apríl 2014 | miðvikudagur
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
VODAFONE
14,3% frá áramótum
BANK NORDIC
3,3% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
MAREL
-21,4% frá áramótum
N1
-10,1% í síðustu viku
7
5
1
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsins
Miðvikudagur 2. apríl
➜ Fasteignamarkaðurinn í
mánuðinum eftir landshlutum
Fimmtudagur 3. apríl
➜ Vöruskipti við útlönd í mars 2014,
bráðabirgðatölur
➜ Aðalfundur Atlantic Airways
Föstudagur 4. apríl
➜ Gistinætur á hótelum í febrúar
2014
➜ Fjármáladagurinn 2014
Mánudagur 7. apríl
➜ Helstu liðir í efnahagsreikningi SÍ
og gjaldeyrisforði
Þriðjudagur 8. apríl
➜ Fjöldi þinglýstra leigusamninga um
íbúðarhúsnæði eftir landshlutum
➜ Aðalfundur Regins hf. 2014
Miðvikudagur 10. apríl
➜ Efnahagslegar skammtímatölur í
apríl 2014
➜ Aðalfundur Regins hf. 2014
Föstudagur 11. apríl
➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir
➜ Þjóðhagsspá
Eik fasteignafélag á í viðræð-
um um að leigja út hluta nítjándu
hæðar Turnsins á Smáratorgi
undir skrifstofur. Veitingastaðn-
um Turninn nítjánda var lokað í
síðasta mánuði en hann var rek-
inn á nítjándu og tuttugustu hæð
byggingarinnar.
„Við erum með tilboð í leigu á
talsverðum hluta af nítjándu hæð-
inni sem við gerum ráð fyrir að
við munum taka. Það þýðir að það
verður veruleg breyting á húsnæð-
inu. Ég á síður von á því að þarna
verði áfram veitingastarfsemi en
ég þori ekki að fullyrða um það
á þessum tímapunkti,“ segir Vil-
helm Patrick Bernhöft, fram-
kvæmdastjóri eignasviðs Eikar
fasteignafélags.
Turninn nítjánda var í eigu
Betri turns ehf. Samkvæmt árs-
reikningi félagsins fyrir árið 2012
tapaði það 3,4 milljónum króna það
ár og 7,8 milljónum árið 2011. Þor-
steinn Hjaltested, oftast kennd-
ur við jörðina Vatnsenda, er þar
skráður sem framkvæmdastjóri,
stjórnarmaður og eigandi 41 pró-
sents hlutar.
Í ágúst síðastliðnum var gengið
frá kaupum Eikar á fimm fasteign-
um, þar á meðal Turninum, sem
áður voru í eigu SMI ehf.
„Við tókum við rekstrinum á
byggingunni í lok janúar en tókum
við lyklunum af eigendum Betri
turns fyrir tólf dögum,“ segir Vil-
helm.
Betri turn rak meðal annars há-
degisverðarstað á nítjándu hæð-
inni. Þar gátu starfsmenn fyrir-
tækja í húsinu keypt hádegismat
og lokunin hefur því áhrif á aðra
leigjendur í Turninum.
„Við erum að leita lausna varð-
andi mötuneytismál í húsinu. En
við þurfum að meta hvort okkar
hag og okkar hluthafa sé betur
varið með því að vera þarna með
skrifstofur eða veitingastað. Og ef
verðið sem við fáum fyrir skrif-
stofur er hærra en við værum að
fá fyrir veitingastað þá er svar-
ið augljóst,“ segir Vilhelm. Hann
undirstrikar að Eik muni standa
við samninga um leigu á veislusöl-
um undir fermingar og aðrar veisl-
ur í apríl og maí.
„Við munum klára þær bókan-
ir en við fengum Múlakaffi til að
sinna því fyrir okkur.“
Skoða tilboð í leigu á
nítjándu í Turninum
Veitingastaðnum Turninn nítjánda var lokað í síðasta mánuði.
Eik fasteignafélag á í viðræðum um að leigja út hluta húsnæðisins
undir skrifstofur. Félagið tók við rekstri byggingarinnar í janúar.
TURNINN Á nítjándu hæð byggingarinnar var hádegisverðarstaður ásamt veislu-,
ráðstefnu og fundasölum. Veislusalir, bar og setustofa voru á tuttugustu hæðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
ht.is
SELFOSS • REYKJANESBÆR • AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • REYKJAVÍK
Nikon School
námskeið fylgir!
24,2 Megapixla
C-MOS myndflaga
Nikon D3200KIT1855VR
Stafræn SLR myndavél með 24,2 milljón punkta
upp lausn, 24,2 mm CMOS flögu á DX-sniði,
EXPEED 3, ISO 100-6400 (fer í 12800), 3” LCD
skjá, Active D-Lighting, D-Movie FHD hreyfimynd,
umhverfis- og brellustillingum, hraðri raðmyndatöku,
tvöföldu rykhreinsikerfi, HDMI C út ofl.
VR LINSA MEÐ HRISTIVÖRN
STAFRÆN SLR MYNDAVÉL
TILBOÐ
FULLT VERÐ 109.995
99.995
NIKON FERMINGARTILBOÐ
Þráðlaust farsímatengi
að verðmæti 11.990 fylgir!
Nú með nýrri
og léttari
linsu!
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Íslenskar auglýsingar eru
notaðar sem dæmi um vel
heppnaðar auglýsingar eða
auglýsingaherferðir í nýj-
ustu útgáfu bandarísku
kennslubókarinnar Advert-
ising & IMC. Bókin er eitt
helsta kennslurit í mark-
aðsfræðum sem notað er í
bandarískum háskólum og
víðar.
Í bókinni er heill kafli tileink-
aður árveknisátakinu Mottu-
mars, sem Krabbameinsfélagið
hefur staðið fyrir. Í allt eru fimm
íslenskar auglýsingar teknar fyrir
í bókinni; fyrsta Mottumars-her-
ferðin frá árinu 2010, Íslenska
lambakjötið, Honda, Skeljungur og
Sorpa. H:N Markaðssamskipti eiga
heiðurinn að öllum auglýs-
ingunum en Ingvi Jökull
Logason, framkvæmda-
stjóri H:N, er einn þeirra
sem leggja til efni í bókina.
Í bókinni er einnig rætt við
Ingva Jökul um hvernig
hugmyndir verða til.
„Það er mikill heiður að
efni frá íslenskri stofu sé
notað í kennslubók af þessu tagi,“
segir Ingvi Jökull. „Markaðurinn
á Íslandi er að mörgu leyti óvenju-
legur, ekki síst vegna smæðarinn-
ar. Það þýðir að oft eru mælanleg
áhrif auglýsingaherferða frekar
skýr.“
Þetta er í fimmta sinn sem rit-
stjórar Advertising & IMC nota
efni frá H:N Markaðssamskiptum
en útgáfan í ár er sú tíunda í röð-
inni. Ingvi Jökull er eini Íslending-
urinn sem hefur verið fenginn til
að skrifa í hana en hann er jafn-
framt einn af tólf markaðsmönn-
um, víðsvegar að úr heiminum,
sem skipa sérfræðingaráð bókar-
innar. - fbj
Að kenna karlmönnum að þukla á sjálfum sér dæmi um vel heppnaða herferð:
Íslenskar auglýsingar í
kennsluefni í Bandaríkjunum
KENNSLUBÓKIN Fimm íslenskar
auglýsingar eru teknar fyrir í kennslu-
bókinni.
INGVI JÖKULL
LOGASON
Sala á nýjum fólksbílum jókst um
8,9 prósent í mars miðað við sama
mánuð 2013. Alls 1.574 fólksbílar
voru skráðir á fyrstu þremur mán-
uðum ársins en það er aukning um
18,1 prósent.
Þegar tölur Samgöngustofu um
nýskráningar eru skoðaðar sést að
bílaumboðið BL ehf. hefur það sem
af er ári verið með mestu mark-
aðshlutdeildina.
„Við finnum að fólk er aðeins að
fara af stað en mikið þarf að hreyf-
ast í viðbót til að markaðurinn nái
einhverju jafnvægi,“ segir Erna
Gísladóttir, forstjóri BL.
Erna segir sendibíla einnig hafa
selst betur en í fyrra og nefnir
aukningu um 79 prósent á milli
ára.
„Við höfum fundið hægt og
rólega að fyrirtækin eru að reikna
út og hafa meira pláss og sjá fram
á fleiri verkefni. Það er oft fyrsta
merkið og síðan kemur almenning-
ur oft svolítið á eftir,“ segir hún.
„Við finnum að menn eru að
skipta yfir í töluvert sparneytn-
ari og minni dísilbíla og landinn
kannski farinn að hugsa meira út
heildarkostnaðinn.“
- hg
Nýskráningum fólksbíla hefur fjölgað um 18,1% á árinu miðað við sama tíma 2013:
Bílasala jókst um 8,9% í mars
AUKNING Bílaumboðin seldu alls 537
nýja bíla í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Atlantic Airways (DKK) 144,00 -5,9% 0,0%
Bank Nordic (DKK) 110,00 -15,4% 3,3%
Eimskipafélag Íslands 235,00 -10,3% -0,6%
Fjarskipti (Vodafone) 31,15 14,3% 2,5%
Hagar 41,75 8,7% 0,1%
Icelandair Group 17,70 -2,7% -4,3%
Marel 104,50 -21,4% -1,4%
N1 16,50 -12,7% -10,1%
Nýherji 3,49 -4,4% -1,7%
Reginn 16,50 6,1% 0,3%
Tryggingamiðstöðin 29,75 -7,2% 0,2%
Vátryggingafélag Íslands 9,60 -11,0% 2,0%
Össur 252,00 10,0% 0,8%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1.180,87 -6,3% -0,3%
First North Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Century Aluminum 1150,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 19,50 47,2% -6,7%
HB Grandi 30,00 36,4% -3,2%
Sláturfélag Suðurlands 1,22 0,0% 0,0%
Save the Children á Íslandi