Fréttablaðið - 02.04.2014, Síða 20
| 4 2. apríl 2014 | miðvikudagur
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Fylgstu með fyrirtækinu í snjall-
símanum eða spjaldtölvunni
Hágæða eftirlitsmyndavélakerfi frá Aver er ódýr og einföld lausn fyrir fyrirtæki.
Fylgstu með í spjaldtölvunni eða farsímanum, hvenær og hvar sem þú ert.
Kerfið býðst nú á frábæru verði, frá 179.000 kr.
Komdu og skoðaðu í glæsilegri verslun okkar að Askalind 1.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
40
47
9
Fjarskiptafélagið Síminn
hefur selt Síminn Dan-
mark, dótturfélag Símans
í Danmörku, til Telia Dan-
mark, dótturfélags sænska
fjarskiptarisans TeliaSo-
nera.
Kaupverðið er trúnaðar-
mál. Salan hefur ekki veru-
leg áhrif á efnahag Símans
en mun hafa jákvæð áhrif á sjóð-
streymi, samkvæmt til-
kynningu félagsins.
Síminn Danmark var
stofnað í kjölfar kaupa Sím-
ans á tveimur fjarskipta-
fyrirtækjum í Danmörku
árið 2007. Félagið hefur sér-
hæft sig í lausnum á fyrir-
tækjamarkaði og tekjur
þess námu 83,4 milljónum
danskra króna á síðasta ári, tæplega
1.750 milljónum íslenskra króna.
Um 2.880 fyrirtæki eru í viðskipt-
um við félagið.
„Salan á Síminn Danmark er liður
í þeirri stefnu okkar að einbeita
okkur að starfseminni á Íslandi,
sem kom meðal annars fram í skipu-
lagsbreytingunum sem gerðar voru
á samstæðunni í febrúar síðastliðn-
um,“ segir Orri Hauksson, forstjóri
Símans, í tilkynningunni. - hg
Dótturfélag sænska fjarskiptarisans TeliaSonera hefur keypt Síminn Danmark:
Síminn seldi danskt dótturfélag
ORRI HAUKSSON
„Samstarfið við Portúgal lofar
mjög góðu og með þessari ferð
og erindum íslenskra ráðgjafa-
fyrirtækja þá kann að vera að
samskipti landanna aukist á
næstu árum,“ segir Jónas Ket-
ilsson, verkefnisstjóri hjá Orku-
stofnun.
Hann var á sunnudag staddur
á Asóreyjum í Portúgal ásamt
íslenskri sendinefnd sem fylgdi
Ragnheiði Elínu Árnadóttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
þegar samstarfsáætlun Þróun-
arsjóðs EFTA á sviði jarðvarma
á Asóreyjum var kynnt.
„Það kom skýrt fram á tví-
hliða fundi forseta heimastjórn-
ar Asór eyja og iðnaðarráð-
herra að það væri sterkur vilji
af þeirra hálfu að nýta þekk-
ingu Íslendinga á sviði jarðhita
til raforkuvinnslu og einnig til
beinnar nýtingar,“ segir Jónas.
Hann segir fundarmenn einnig
hafa rætt reynslu heimamanna
af nýtingu vindorku.
Í frétt á heimasíðu atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneyt-
isins segir að ráðherra hafi
einnig fundað með aðstoðar-
orkumálaráðherra Portúgals,
Artur Trindale, um mögulega
samvinnu ríkjanna á sviði orku-
mála. Þar sé meðal annars horft
til aðkomu Þróunarsjóðs EFTA.
„Tveir portúgalskir nemendur
munu koma til Íslands í vor og
sækja sex mánaða nám Jarðhita-
skólans og einnig verða haldin
sér námskeið á Asóreyjum, en
megináhersla samstarfsáætl-
unarinnar er að reisa þriggja
megavatta jarðvarmavirkjun á
eyjunni Terc eira,“ segir Jónas.
- hg
Iðnaðarráðherra kynnti jarðvarmaverkefni í Portúgal:
Vilja nýta þekkingu
Íslendinga á jarðhita
Í PORTÚGAL Íslenska sendinefndin og fulltrúar umhverfis- og orkumálaráðuneytis
og heimastjórnar Asóreyja funduðu á eyjunni Terceira. MYND/ORKUSTOFNUN
Sanpower Group, ein stærsta fyr-
irtækjasamstæða sem er í einka-
eigu í Kína, á í viðræðum sem eru
langt komnar um kaup á bresku
verslanakeðjunni House of Fras-
er, á 450 milljónir punda, eða sem
svarar ríflega 84,4 milljörðum
íslenskra króna. Frá þessu var
greint í fjölmiðlum í Bretlandi í
vikunni.
Highland Group, félag í eigu
þrotabúa gamla Landsbankans
(LBI hf.) og Glitnis banka, eru sögð
eiga 49 prósent í House of Fraser.
Verði af sölunni renna því tæplega
41,4 milljarðar króna til Highland
Group.
Félagið var í eigu BG Holding,
dótturfélags Baugs, en íslensku
bankarnir föllnu gengu þar að
veðum snemma árs 2009.
Fram kom í tilkynningu gamla
Landsbankans í febrúarbyrjun
2009 að tekinn hafi verið yfir 34,9
prósenta eignarhlutur í HoF. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins er sá
eignarhlutur óbreyttur og hlutur
Glitnis því 14,1 prósent. Hlutur
þrotabúa bankanna, gangi salan
á House of Fraser eftir, yrði því
sem svarar 29,5 og 11,9 milljörð-
um króna.
Sanpower Group er í eigu kín-
verska auðjöfursins Yuan Yafei og
er með starfsemi á sviði fjármála,
eignaumsýslu, fjölmiðla, sam-
gangna og upplýsingatækni. Um 30
þúsund manns í 100 fyrirtækjum
vinna hjá samstæðunni sem veltir,
að sögn The Scots man, sem svarar
938 milljörðum króna á ári.
Í umfjöllun Guardian er frá því
greint að Don McCarty, stjórn-
arformaður HoF, sem fer með
fimmtungshlut í félaginu, hafi
þegar samþykkt boð Sanpower
og leggi að öðrum hluthöfum að
gera það líka. Vísað er til umfjöll-
unar Sunday Times í þeim efnum,
en blaðið greindi fyrst frá því að
viðræður stæðu yfir um kaup San-
power Group á HoF.
The Scotsman segir að skoski
fjárfestirinn Sir Tom Hunter eigi
yfir tíu prósenta hlut í HoF og
gæti við söluna fengið í sinn hlut
nærri 50 milljónir punda, eða um
og yfir sem svarar níu milljörð-
um króna.
Komi til þess verður blásin af
fyrirhuguð skráning HoF í Lund-
únakauphöllina síðar á þessu ári.
Frá því hefur verið greint að stefnt
hafi verið að því að 450 milljónir
punda fengjust í almennu hluta-
fjárútboði HoF fyrir skráningu.
Heimildir Guardian herma að
bankamenn frá Rothschild, HSBC
og Numis, haldi áfram að undir-
búa útboðið og markaðsskráningu
félagsins, samhliða því sem við-
ræðum verður haldið áfram um
söluna til Sanpower Group.
HOUSE OF FRASER Vörur voru seldar í HoF fyrir 1,2 milljarða punda í fyrra, eða 225
milljarða króna. MYND/VISMEDIA
LBI hf. fengi 29,5 og
Glitnir 11,9 milljarða
Tilboð auðjöfurs í House of Fraser kann að raska áætlunum um
skráningu. Sanpower Group vill kaupa á jafnvirði 84,4 milljarða
króna. Stjórnarformaðurinn vill selja. LBI hf. og Glitnir eiga 49%.
EFNAHAGSMÁL
Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is
Marta Guðrún Blöndal
hefur verið ráðin lög-
fræðingur Viðskipta-
ráðs Íslands (VÍ).
Hún mun sinna lög-
f r æ ð i le g r i r á ð g j öf
gagnvart framkvæmda-
stjóra og stjórn, um-
sagnagerð, skýrslu-
skrifum og fleiri verk-
efnum.
Í tilkynningu VÍ um
ráðninguna segir að
Marta hafi áður starf-
að sem fulltrúi á Juris
lögmannsstofu og sem
starfsmaður upptöku-
nefndar. Hún hafi að
mestu starfað á sviði
eignaréttar, samkeppn-
isréttar og félagaréttar.
- hg
Viðskiptaráð Íslands hefur ráðið nýjan lögfræðing:
Marta Blöndal til VÍ
MARTA GUÐRÚN
BLÖNDAL