Fréttablaðið - 02.04.2014, Síða 30
| 10 2. apríl 2014 | miðvikudagur
Það þjónar langtímahagsmunum Íslands að hafa viðræðurnar við
Evrópusambandið á ís í nokkur ár. Og eftir atvikum ganga í Evrópu-
sambandið síðar.
Það dylst engum sem skoðar skýrslu Seðlabanka Íslands um
gjaldmiðils- og peningamál frá 2012 að raunhæfasti valkostur
Íslands í peningamálum utan krónu er evran í gegnum Evrópska
myntbandalagið (EMU) með undanfarandi aðild að ESB. En margir
nafntogaðir sérfræðingar hafa samt efasemdir um evruna enda
hafi skuldavandi fjölmargra evruríkja afhjúpað ákveðna bresti í
evrusamstarfinu.
Otmar Issing, fyrrverandi aðalhagfræð-
ingur Evrópska seðlabankans (European
Central Bank, ECB), skrifaði grein í Financ-
ial Times á dögunum þar sem hann fjallaði
um sameiginlega skuldabréfaútgáfu evru-
ríkjanna og færði rök fyrir því að hún væri
mjög óskynsamleg. Þá galt hann varhug við
hugmyndum um sameiginlegt bankabanda-
lag, en þetta tvennt hefur verið talið laga
þá bresti sem eru á samstarfinu í núverandi
mynd.
Varanleg lausn á evruvandanum hefur
verið talin felast í aukinni efnahagslegri
samvinnu þeirra 18 ríkja sem nota gjald-
miðilinn. Þannig hefur verið komið á fót
sameiginlegu bankaeftirliti í Evrópusam-
bandinu og aukinni samvinnu varðandi fjár-
lagagerð, sem er enn mjög umdeilt. En Issing
telur að sú tegund þessarar samvinnu sem
gengur lengst sé í raun andvana fædd. Það sé
ósanngjarnt og óeðlilegt að skattgreiðendur í einu ríki greiði fyrir
óábyrgar lánveitingar í öðrum.
Krafan um að Þjóðverjar leiði björgunarleiðangur evrunnar hefur
falist í því að þeir borgi meira. Að þýskir skattgreiðendur leggi til
meiri fjármuni, eftir atvikum til að kaupa verðlítil skuldabréf ríkja
eins og Spánar og Grikklands. Meira að segja kapítalistinn George
Soros hefur sagt að Þjóðverjar þurfi að borga meira til að tryggja
evruna.
Issing veltir upp þeirri spurningu, í tengslum við sameigin-
lega skuldabréfaútgáfu, hversu óeðlilegt og ósanngjarnt það væri í
augum Spánverja og Portúgala ef skattgreiðendur í þessum löndum
þyrftu að bera kostnaðinn af óábyrgum lánveitingum þýskra banka.
Hávær krafa hefur verið um að Þjóðverjar beri tjónið af óábyrgum
starfsháttum grískra, spænskra og portúgalskra banka og í sumum
tilvikum ríkissjóðs í þessum löndum. Sem er auðvitað sami hlutur-
inn. Þetta gerðist hins vegar ekki nema í takmörkuðum mæli því
Angela Merkel stóð í lappirnar. Bæði heima fyrir og í Evrópusam-
bandinu. En ef skoðuð eru gröf yfir lánveitingar þýska seðlabank-
ans, Bundesbank, til Evrópska seðlabankans eftir bankahrunið þá
sýnir vöxtur þeirra svart á hvítu að Þjóðverjar hafa óbeint verið að
borga.
Róa tókst markaði með „bazooka“-yfirlýsingu Mario Draghi,
seðlabankastjóra Evrópska seðlabankans, í september 2012 um að
bankinn myndi „gera hvað sem er“ til að bjarga evrunni. Evrusam-
starfið og eftir atvikum Evrópusambandið sjálft er því ekki lengur
„brennandi hús“ en það er samt óvissa um framtíðina, þ.e. samsetn-
ingu og skipulag, og hvernig þessari nánu efnahagssamvinnu verður
háttað. Bretar ætla að greiða þjóðaratkvæði um veru sína í Evrópu-
sambandinu 2017 og mjög kvik umræða er á vettvangi stofnana
sambandsins um framtíð þess.
Ef evran er stærsti ávinningurinn sem fylgir aðild Íslands að ESB
og síðar EMU þá er mikilvægt að Íslendingar hafi skýra hugmynd
um hvers konar samstarf þeir ætla að ganga inn í. Vissulega er aðild
að ESB ekki sjálfkrafa aðild að EMU enda þyrfti Ísland að uppfylla
Maastricht-skilyrðin sem Ísland mun ekki uppfylla fyrr en 2030, ef
allar áætlanir standast, að mati Samráðsvettvangs um aukna hag-
sæld. Þá má spyrja sig, ef það er svona langt í þetta, hvað liggur á?
Að framansögðu er ljóst að ákvörðun um að setja viðræður
Íslands við ESB á ís, sem var tekin af síðustu ríkisstjórn Sam-
fylkingar og Vinstri grænna, er skynsamleg og var í raun dulbúin
blessun. Ákvörðun um að slíta viðræðunum endanlega án aðkomu
þjóðarinnar er hins vegar feigðarflan, gengur í berhögg við lýðræð-
isvitund margra kjósenda eftir yfirlýsingar í aðdraganda síðustu
kosninga og þjónar takmörkuðum tilgangi.
Í rúm ellefu ár hef ég starfað sem
framkvæmdastjóri fyrirtæk-
is sem starfar á fjármálamark-
aði. Það hefur gengið ágætlega,
en ég er alvarlega að velta fyrir
mér hvort mér myndi ekki vegna
miklu betur ef ég færi að stunda
ólöglegt samráð.
Á fjármálamarkaði eru – í orði
að minnsta kosti – gerðar miklar
kröfur til stjórnenda slíkra fyr-
irtækja. Sérstaklega átti að hafa
verið hert á þeim í lögum um
fjármálafyrirtæki eftir banka-
hrunið. Þar er t.a.m. sérstaklega
tilgreint að stjórnendur fjármála-
fyrirtækja megi ekki hafa gerst
brotlegir við samkeppnislög.
Enginn skaði – mikill gróði
Á borði eru þessi lög hins vegar
handónýt. Ástæðan er sú að ein-
staklingar eru aldrei dæmdir
fyrir samkeppnislagabrot, held-
ur einungis fyrirtækin sem þeir
stýra. Þannig ganga stjórnendur
um hvítþvegnir og geta ráðið sig
í hvaða stjórnendastöðu í fjár-
málageiranum sem er – jafnvel
bankastjórastöðu – þrátt fyrir að
í starfsemi undir þeirra stjórn
hafi markvisst og ítrekað verið
brotið gegn samkeppnislögum.
Þetta þýðir líka að persónuleg
ábyrgð stjórnenda er engin –
þeir greiða ekki sektir og fá ekki
fangelsisdóma.
Skaðinn fyrir mig persónulega
væri sem sagt enginn ef ég léti
fyrirtæki mitt brjóta samkeppn-
islög. Gróðinn gæti hins vegar
verið umtalsverður. Ég gæti
hækkað verð með samráði sem
þýðir meiri hagnað og hærri laun
fyrir mig (á kostnað neytenda), ég
gæti hrakið þá sem ekki taka þátt
í samráðinu af markaði og tryggt
að stöðu minni verði ekki ógnað.
Hvað er það versta sem gæti
gerst? Mögulega gæti einhver
kvartað við Samkeppniseftirlit-
ið. Þá væri samráðið væntanlega
búið að standa í einhvern tíma –
segjum tvö ár. Þar sem það góða
fólk sem starfar í Samkeppnis-
eftirlitinu hefur úr alltof litlu
að spila færi rannsókn málsins í
langa biðröð og úrvinnslan tæki
enn lengri tíma – jafnan fjögur
til fimm ár með áfrýjun. Þann-
ig myndi fyrirtæki mitt vænt-
anlega ekki fá á sig sekt fyrir
samráð sem ég hæfi í dag fyrr
en árið 2020 – og það er einung-
is EF samráðið kemst upp og
EF Samkeppniseftirlitið finnur
nægilegar sannanir fyrir því.
Og sektin? Hún myndi hlaupa á
einhverjum hundruðum milljóna
– ég treysti mér alveg til að vera
búinn að græða þá upphæð og
meira til með vel útfærðu sam-
ráði í sex ár.
Er þögn FME sama og samþykki?
En ég verð að viðurkenna að ég hef
verið pínulítið efins um hvort þetta
sé svona auðvelt. Þess vegna hef
ég ítrekað reynt að fá fund með
Fjármálaeftirlitinu til að vera
alveg viss um að ég muni persónu-
lega komast upp með að láta fyrir-
tækið mitt fara að stunda ólöglegt
samráð. Þar á bæ hafa menn hins
vegar ekki viljað ræða þessi mál
við mig. Af hverju veit ég ekki –
kannski af því að þá þurfa þeir að
horfast í augu við það að ólöglegt
samráð borgi sig? Er þögn þeirra
nokkuð annað en samþykki á
þeirri tilgátu? Getur verið að þeir
viti að það sé glufa í lögunum en
þeir vilji ekki þurfa að staðfesta
það?
Í rúm ellefu ár hef ég rekið fyr-
irtækið mitt í þeirri trú að það eigi
ekki að brjóta lög. Á þeim tíma hef
ég fylgst með keppinautum mínum
vera dæmda ítrekað fyrir brot á
samkeppnislögum án þess að það
virðist hafa nokkur áhrif á störf
þeirra eða framferði á markaði.
Sumir myndu segja að ég væri svo-
lítið seinn til, en ég er þó allavega
loksins farinn að skilja þetta. Ég
hef allt að vinna – en litlu að tapa
með því að skella mér í samráðið.
Ertu með? (ATH – vinsamlegast
eyddu þessari grein eftir lestur.)
Psssst – ólöglegt samráð?
SKOÐUN
Jóhannes Ingi Kolbeinsson
framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar
Það þjónar langtímahagsmunum Íslands að hafa viðræðurnar
við Evrópusambandið á ís í nokkur ár:
Dulbúin blessun
Ákvörðun um
að slíta viðræð-
unum endan-
lega án aðkomu
þjóðarinnar er
feigðarflan.
Markaðshornið
Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@stod2.is
Ný kvikmynd kynnt við opnun markaðar í New York í gær
ÓVENJULEG UPPÁKOMA Ofurhetjan Kafteinn Ameríka stillir sér upp á gólfi Kauphallarinnar í New York í Bandaríkjunum í
gær eftir að kauphallarbjöllunni hafði verið hringt til marks um opnun markaða. Chris Evans og Sebastian Stan, aðalleikarar
kvikmyndarinnar „Captain America: The Winter Soldier“, og yfirmenn Marvel Entertainment tóku þátt í kynningu myndarinnar
í Kauphöllinni í gær í tilefni af því að sýningar á myndinni eru að hefjast í kvikmyndahúsum. Dow Jones-vísitala iðnaðarvara og
Nasdaq-vísitalan hækkuðu í fyrstu viðskiptum í gær. NORDICPHOTOS/AFP
rvörur
með þér
tra
nna
Reks
- vi