Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 02.04.2014, Qupperneq 36
Hljómsveitin Skálmöld spilar plöt- una Baldur á sviðinu og svo koma þrír trúðar og hjálpa henni að flytja söguna af Baldri. Þeir koma inn á milli laga, segja frá því sem er um að vera, leika atburðarásina og karakterana í verkinu og segja frá örlögum Baldurs í gegnum allt verkið,“ útskýrir Halldór Gylfason leikstjóri þolinmóður þegar hann fær þá spurningu, örugglega í hundraðasta skipti, hvað hann sé að vilja með trúða í þungarokks- sýningu. „Þetta er hart og flott og groddalegt rokk og svo koma einlæg, opin barnsleg hjörtu inn á milli. Mjólka dramað, fara inn í harminn og gleðina af fullri alvöru. Það er engum hlátur í huga enda fjallar sagan um dauða og harm og trúðar eru einna bestir í því að túlka harm.“ Spurður hvernig gengið hafi að púsla þessum andstæðum saman segir Halldór það hafa gengið ótrúlega vel. „Þessir strákar í Skálmöld eru svo næs. Miklir fag- menn, góðir í samstarfi og til í allt. Opnir fyrir öllum pælingum. Auð- vitað höfðu þeir áhyggjur af því að við ætluðum að fara að vera með fíflalæti og rugl. Eitthvert grín og sprell með trúðslátum. En það er alls ekki pælingin. Við berum mjög djúpa virðingu fyrir verk- inu og fyrst og síðast er þetta svo sannarlega ekkert grín.“ Halldór segist hikstalaust flokka sýninguna sem tónleika en ekki leiksýningu. „Þetta eru tónleikar, þeir spila plötuna alla í gegn, en trúðarnir hjálpa þeim. Við skulum segja að þetta séu tónleikar með leikrænu ívafi.“ fridrikab@frettabladid.is Þungarokkstónleikar með leikrænu ívafi Skálmöld hefur lagt undir sig stóra svið Borgarleikhússins og þar verður verk hennar, Baldur, frumsýnt á föstudagskvöldið. Leikstjórinn, Halldór Gylfason, seg ir óralangt frá því að verið sé að slá verkinu upp í grín þótt trúðar komi við sögu. SKÁLMÖLD „Þetta eru tónleikar, þeir spila plötuna alla í gegn, en trúðarnir hjálpa þeim.” MYND/LÁRUS SIGURÐSSON Höfundar og flytjendur Björgvin Sigurðsson, Baldur Ragnarsson, Gunnar Ben, Jón Geir Jóhannsson, Snæbjörn Ragnars- son, Þráinn Árni Baldvinsson Leikstjórn Halldór Gylfason Leikmynd & búningar Móeiður Helgadóttir Lýsing Gísli Bergur Sigurðsson AÐSTANDENDUR MENNING 2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR „Stærsti vandinn við ritun sög- unnar var sá að grunnskólanem- endur eru á misjöfnum aldri og hafa kannski ólíkar þarfir þess vegna. Ég reyndi að leysa það með því að hafa aðalpersónuna á óræðum aldri og vona að allir geti tengst henni,“ segir Þórarinn Eldjárn rithöfundur um söguna Blöndukútur í Sorpu sem lesin verður fyrir öll grunnskólabörn í dag klukkan 9.10. Jafnframt verð- ur sagan flutt á Rás 1 svo þjóðin getur lagt við hlustir. „Sagan var pöntuð af samtökun- um IBBY. Hið sama hefur verið gert á undanförnum árum, þá hafa sögur eftir Benedikt Erlings- son, Kristínu Helgu Gunnarsdótt- ur og Ragnheiði Gestsdóttur verið lesnar. Nú var komið að mér,“ segir Þórarinn og getur þess að 2. apríl sé alþjóðadagur barnabók- arinnar sem hefur verið fagnað á fæðingardegi H. C. Andersen frá árinu 1967. Þótt Þórarinn vilji skiljanlega ekki gefa of mikið upp um efni sögunnar segir hann hana lýsa ferð drengs á endurvinnslustöð. Þar verði fyrir honum ákveð- in atriði sem leiði af sér dálitla atburðarás. „Boðskapurinn er sá að benda á hversu gaman er að fara á svona gámastöðvar því þar er margt að sjá og hægt að komast að ýmsum sannindum.“ Spurður hvað hann sé annars að bjástra segir Þórarinn: „Ég sit bara við skrif, er að vinna í smá- sögum og með skáldsögu í takinu. Svo er að koma út ljóðabók eftir mig í þessum mánuði og önnur í haust. Í þeirri sem kemur núna eru sum ljóðin háttbundin og önnur ekki en sú sem kemur í haust er barnaljóðabók, rímuð og stuðluð í bak og fyrir.“ gun@frettabladid.is Aðalpersónan er á óræðum aldri Smásagan Blöndukútur í Sorpu eft ir Þórarin Eldjárn verður fl utt fyrir öll grunnskólabörn landsins í dag klukkan 9.10 og einnig á Rás 1. Sagan er gjöf frá IBBY. SKÁLDIÐ Þórarinn hlaut barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi á síðasta ári fyrir sitt mikla framlag til barnamenningar. Nú skrifaði hann sögu að beiðni IBBY sem flutt verður víða í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Skoðaðu úrvalið á Bilaland.is NÝLEGIR OG LÍTIÐ EKNIR GERÐU FRÁBÆR KAUP! VW TOURAN Nýskr. 09/12, ekinn 8 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 3.690 þús. Rnr. 281536. Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is CHEVROLET CRUZE Nýskr. 05/13, ekinn 9 þús. km. bensín, beinskiptur. Rnr. 120272. LAND ROVER FREELANDER 2S Nýskr. 05/13, ekinn 6 þús km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 7.990 þús. Rnr. 191269. HYUNDAI i20 CLASSIC Nýskr. 08/10, ekinn 62 þús km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.690 þús. Rnr. 130998. OPEL ASTRA ENJOY TURBO Nýskr. 09/08, ekinn 62 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.890 þús. Rnr. 130991. NISSAN QASHQAI SE Nýskr. 06/11, ekinn 68 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.190 þús. Rnr. 151477. HYUNDAI SANTA FE II LUX Nýskr. 07/11, ekinn 54 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 5.390 þús. Rnr. 281538. Frábært verð 2.590 þús. Ekinn aðeins 9 þús. km. Ekinn aðeins 8 þús. km. Ekinn aðeins 6 þús. km. TÖKUM NOTAÐAN UPPÍ NOTAÐAN! GERÐU FRÁBÆR KAUP! ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.