Fréttablaðið - 02.04.2014, Page 40
2. apríl 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
„Ég leik húsvörðinn og kem fyrir
í tveimur senum. Ég fíla hlutverk-
ið. Ég fæ að hafa áhrif á hina kar-
akterana. Ég fékk tíma til að þróa
persónuna mína og gæða hana
miklum persónuleika því ég hef
svo stuttan tíma á sviðinu,“ segir
Bandaríkjamaðurinn Christian
Kevinson. Hann er skiptinemi í
Borgarholtsskóla og tekur þátt í
uppfærslu skólans á leikritinu The
Breakfast Club í leikstjórn Ísgerð-
ar Gunnarsdóttur. Leikritið verður
frumsýnt í skólanum á fimmtudag-
inn og leikur Christian á íslensku
þótt hann tali málið ekki reiprenn-
andi.
„Íslenska er áskorun. Skilningur
minn er orðinn mjög mikill en ég
get ekki tjáð mig mikið. Að leika á
íslensku var að sumu leyti auðvelt
fyrir mig því ég gat unnið mikið að
tjáningu minni og að byggja upp
karakterinn en ekki fest mig of
mikið í tungumálinu. En þetta var
tvímælalaust áhugavert ferli.“
Leikritið er byggt á samnefndri
kvikmynd sem frumsýnd var árið
1985 og er ein af stóru, klassísku
myndunum frá níunda áratug síð-
ustu aldar.
„Það var ekki séns að ég ætlaði
að missa af því að leika í leikritinu.
Þetta er frábært tækifæri. Ég hef
ekki leikið mikið áður og ég met þá
reynslu að geta gert eitthvað sem
er utan við þægindahringinn. Ég
hef séð kvikmyndina og er mikill
aðdáandi hennar. Hún er fyndin
og hún kennir manni líka margar
góðar lexíur,“ segir Christian.
Christian er sautján ára og býr í
Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann
er búinn að vera á Íslandi í sjö
mánuði og flýgur aftur heim í lok
júní. Hann hefur notið dvalarinn-
ar á landinu.
„Mér finnst ég vera mjög vel-
kominn í skólanum. Ég elska
Ísland en, ég ætla ekki að ljúga –
þetta hefur stundum verið erfitt.
Auðvitað bý ég hjá yndislegri fjöl-
skyldu en maður þarf að treysta
á sig sjálfan á erfiðu stundunum.
Það er erfitt að vera á framandi
stað með ókunnugu fólki sem
talar mál sem maður skilur ekki
til fulls. Mér finnst ég hafa öðlast
betri skilning á sjálfum mér.“
Christian segir framtíðina
óráðna en hann dreymir um að
fara aftur í nám erlendis.
„Ég ætla að taka tvö ár í
háskóla í heimabæ mínum og
safna pening. Síðan vonandi eftir
tvö ár get ég flutt til útlanda og
lært meira. Mig langar mikið að
ferðast. Ég stefni á að læra ljós-
myndablaðamennsku, ræðu-
mennsku eða að vera nuddari.
Eða allt þrennt.“
liljakatrin@frettabladid.is
Skiptinemi leikur á íslensku
Bandaríkjamaðurinn Christian Kevinson leikur húsvörð í leikritinu The Breakfast Club sem Borgarholtsskóli
frumsýnir á fi mmtudag. Hann segir það vissulega hafa verið mikla áskorun að leika á íslensku.
EKKI STRESSAÐUR Christian segist ekki kvíða frumsýningunni heldur sé hann meira spenntur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Ricky Gervais
@rickygervais
1. apríl
„Ég vorkenni fólki
sem þarf að segja einhverjum
virkilega slæmar fréttir í dag.“
Cristiano
Ronaldo
@Cristiano
1. apríl
„Hver áskorun er nýtt tækifæri!
Verið hugrökk þegar þið stígið
á völlinn. #riskeverything
@nikefootball“
STJÖRNURNAR Á
TWITTER
Connie Britton
@conniebritton
31. mars
„Takk fyrir æðislegar
móttökur allir. #whatsahash-
tag?“
Það er erfitt að vera
á framandi stað með
ókunnugu fólki sem talar
mál sem maður skilur
ekki til fulls. Mér finnst
ég hafa öðlast betri
skilning á sjálfum mér.
Christian Kevinson
ANDRI & EDDA VERÐA BESTU VINIR ZWEI LEBEN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NOAH 6, 8, 9
HNETURÁNIÐ 2D 6
3 DAYS TO KILL 10:25
DALLAS BUYERS CLUB 8
NOAH
NOAH LÚXUS
GRAND BUDAPEST HOTEL
HNETURÁNIÐ 2D
ÁHNETUR NIÐ 3D
DEAD SNOW - RED VS DEAD
Ý Í ÍÆVINT RI HR. PBODYS SL. TAL 2D
RIDE ALONG
GRAND BUDAPEST HOTEL
HNETURÁNIÐ 2D
DEAD SNOW - RED VS DEAD
ONE CHANCE
SAVING MR. BANKS
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D
KL. 5 - 8 - 10.15
KL. 5 - 8
KL. 5.45 - 8
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30
KL. 10.15
KL. 3.30 - 5.45
KL. 8
Miðasala á:
KL. 5.45 - 8 - 9 - 10.15
KL. 5.40
KL. 8 - 10.15
KL. 8 - 10.20
KL. 6
KL. 5.50
100 / 100 NEW YORK TIMES
FR- ÉTTABLAÐIÐ
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
VILLAGE VOICETHE PLAYLIST
THE HOLLYWOOD REPORTERL.K.G - FBL.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Sólin vermdi á mér kinnarnar og ég fylgdist hugfangin með gulum krók-
usunum stinga sér upp úr moldinni við
húsvegginn. Hjólaði húfulaus niður í
bæ. Með sólgleraugun á nefinu spíg-
sporaði ég um göturnar á strigaskóm
og tók kaffið með mér út. Hlustaði á
útlensku á hverju horni. Bjóst hálf-
partinn við því að rekast á Calv-
in Klein á vappi, vissi af honum
í bænum. Bærinn var troðinn af
brosandi fólki og það leyndi sér
ekki, vorið var að koma.
MIG VAR farið að lengja eftir
einmitt þessari upplifun, að drekka
kaffi með sólgleraugu. Það er engu
líkt. Lét myndbirtingar fólks
sem skroppið hafði til útlanda
undanfarnar vikur fara í
taugarnar á mér á Face-
book. Algjörar vor-mont-
myndir, af fólki á peysunni
utandyra, með drykki utan-
dyra, með sólgleraugu og
varalit og jakkann á hand-
leggnum. Brosandi og glatt
fólk í vorinu í útlöndum. Á
meðan gekk á með éljum fyrir utan
gluggann minn.
EN ekki þennan daginn. Þó ekki væri
peysufært nema í skjóli, skein sólin og
húfan var óþörf, hvað þá vettlingarn-
ir. Ég hengdi þvottinn út á svölunum og
drakk annan bolla af kaffi meðan ég
horfði á hann þorna. Og af því mig hafði
einmitt verið farið að lengja svo óskap-
lega eftir þessari upplifun, tók ég mynd.
UM leið og ég hafði myndfest blaktandi
þvott og birt samviskusamlega á Facebook
sá ég þar myndir úr sveitinni minni norðan
heiða. Þar gægðust snúrustaurarnir upp
úr margra metra djúpum snjósköflunum,
svona dálítið eins og krókusar. Ég skoð-
aði myndir af bíl sem horfið hafði með öllu
undir snjó svo þurfti að moka sig niður á
hann með skóflu. Þar teygðu skaflarnir sig
upp á húsþök og snjóruðningar í vegkönt-
um náðu upp á miðja bíla.
„ER þetta á Íslandi?“ skrifaði systir
mín við eina af myndunum mínum og ég
skammaðist mín dálítið. Ég hafði gerst sek
um vor-mont.
Vor-mont af verstu sort