Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 1
LÖGREGLUMÁL Þrettán eiga aðild að samkeppnislagabrotum BYKO, Húsasmiðjunnar og Úlfsins sam- kvæmt ákæru sem gefin hefur verið út. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Hann segir embættið ekki búa yfir upplýsingum um hversu margir af þeim sem málinu tengjast eru enn starfandi hjá fyrirtækjunum. Rannsóknin, sem varðar ólöglegt verðsamráð, hefur staðið í rúm þrjú ár, en hátt í fjörutíu voru handteknir vegna hennar árið 2011 og húsleitir gerðar hjá fyrirtækjunum. Í tilkynningu sem Guðmundur H. Jónsson, forstjóri BYKO, sendi frá sér í gærkvöldi kemur fram að alls hafi fimm úr starfsliði BYKO verið til rannsóknar. Samkvæmt ákvörðun stjórnar fyrirtæk- isins hafi einn starfsmað- ur, sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra fag- sölusviðs, verið sendur í leyfi á meðan emb- ættið rannsakaði meint brot. Ákæra sérstaks saksóknara er sögð valda stjórnendum BYKO miklum von- brigðum, fyrirtækið hafi ávallt haft samkeppnislög og aðra laga- umgjörð rekstursins í heiðri. „Það er einlæg von stjórnenda BYKO að dómstólar muni komast að þeirri niðurstöðu að ákæra saksókn- ara eigi ekki við rök að styðjast,“ segir þar. Þá segir Guðmundur að í málum þeirra sem ekki hafi verið sendir í leyfi séu „meintar sakir að mati BYKO þess eðlis að ekki sé ástæða til sérstakra aðgerða af hálfu fyrirtækisins.“ Samkvæmt heimildum blaðsins höfðu stjórn og stjórnendur Húsasmiðjunnar litlar fregnir af ákærunum í gærkvöldi og lá ekki fyrir hversu margir af þeim sem nú hafa verið ákærðir væru þar enn starfandi. Húsasmiðjan var seld danska fyrirtækinu Bygma Gruppen A/S í desember 2011. Þá var skaðabótaábyrgð vegna meintra samkeppnis lagabrota skilin eftir í eignarhaldsfélagi Landsbankans. - óká FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 22 GRÍSK TÓNAGLEÐI Í HÖRPUGrísk tónagleði tekur völdin í Hörpu annað kvöld kl. 20.00 í til- efni af Evrópudeginum. Caput-hópurinn verður með mögnuð verk eftir gríska tónskáldið Nikos Skalkottas og gríska hljóm- sveitin Pringipessa Orchestra leikur lög eftir þjóðlagaskáldið Vasílis Tsitsánis. Enginn aðgangseyrir. N ancy Georgsdóttir er 46 ára þriggja barna móðir. Hún hefur verið með stöð-uga verki vegna grindargliðnunar um árabil. „Þegar ég var tvítug eignaðist ég mitt fyrsta barn. Á svipuðum tíma var ég greind með vefjagigt og grindargliðnun sem versnaði með hverju barni. Síðasta barnið átti ég þegar ég var 32 ára en þá var ég búin að ganga á milli lækna og reyna ýmislegt til að bæta ástandið. Meðal annars fór ég í nálastungur, verkja- og sterasprautur og reyndi ýmis verkjalyf sem sum voru ávana-bindandi og mér fannst sljóvga mig frekar en að draga úr verkj-unum. Ég var því orðin bæði þreytt á stöðugum verkjum og endalausum verkjalyfjum.“ BATI EFTIR AÐEINS SEX DAGA„Svo vel vildi til að maðurinn minn las grein um Nutrilenk Gold í tímariti og hvatti mig til þess að prófa. Ég hugsaði með mér að það gæti svo sem ekki skaðað og byrjaði á að taka tvær á morgn-ana. Ég hefði aldrei trúað þvíað b ti LAUS VIÐ VERKI VEGNA GRINDARGLIÐNUNARGENGUR VEL KYNNIR Nutrilenk Gold hefur hjálpað fjölmörgum Íslendingum sem þjást af verkjum og stirðleika í liðum. Það hjálpar til við uppbyggingu brjósks og getur komið í veg fyrir frekari liðskemmdir. GÓÐUR BATINancy segist finna mikinn mun á sér eftir að hún byrjaði að taka inn Nutrilenk. HVA Ný sending fráPulz Jeans Aladin buxur, goll TÆKIFÆRISGJAFIR Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is - mikið af frábærum tilboðum 10% afsláttur Vertu vinur á Facebook Skoðið laxdal.isYfirhafnir VATTJAKKAR - NÝ SENDING Laugavegi 63 • S: 551 4422 SÉRBLAÐ Fólk Sími: 512 5000 8. maí 2014 107. tölublað 14. árgangur MENNING Ræða Ísland í Danaveldi og norðurslóðir sem nýjan heimshluta. 30 SPORT Stelpurnar okkar mæta Sviss í kvöld í topp- slag í undankeppni HM. 46 FLJÓTLEGT OG ÞÆGILEGT MENNING „Þetta er svolítið stór áfangi í mínu lífi og ég er komin þangað sem ég gjarnan vildi vera til að koma mér á heims- markaðinn,“ segir næring- arþerapistinn Þorbjörg Haf- steinsdóttir sem gerir það gott í Banda- ríkjunum. Metsölu bók hennar, 10 árum yngri á 10 vikum, er komin á banda- rískan markað og rokselst. Þorbjörg hefur ekki undan að svara erlendum fjölmiðlum en The Times birti opnuviðtal við hana í apríl þar sem hún var kölluð skandi navíska orku- gyðjan. - mm / sjá síðu 50 Kanar hrifnir af Þorbjörgu: Kölluð orku- gyðja í Times ÞORBJÖRG HAF- STEINSDÓTTIR SKOÐUN Guðbjörg Sveins- dóttir lýsir eftir stefnu í geð- heilbrigðismálum. 23 LÍFIÐ Nýjasta æðið á Íslandi er svonefndur popping-dans. 38 Bolungarvík 5° NA 7 Akureyri 6° NA 6 Egilsstaðir 5° NA 6 Kirkjubæjarkl. 8° A 4 Reykjavík 9° SA 4 Það kólnar örlítið hjá okkur með NA-áttinni og verður hiti 3-14stig, áfram mildast SV- og V-lands. 4 ÆFA Á MÖLINNI Yngri flokkar Breiðabliks fá ekki leyfi frá Kópavogsbæ til að æfa á grasi fyrr en í júlí í fyrsta lagi. Daði Rafnsson, yfirþjálfari hjá Breiðabliki, sést hér á malarvellinum sem bíður krakkanna næstu vikurnar. Sjá síðu 44 FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL STJÓRNSÝSLA Dráttur á lækkun opin- berra gjalda á áfengi, tóbak, og elds- neyti sýnir áhugaleysi ríkisstjórn- arinnar á að ljúka málinu að mati Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ. Pétur H. Blöndal alþingis maður segir gjöldin ekki lækka nógu mikið. „Þetta hefur tekið fleiri fleiri mánuði og þessi seinkun er að rýra þessar aðgerðir verulega því það gefur augaleið að almenningur í landinu er ekki enn farinn að njóta lægri gjalda,“ segir Gylfi. Hann gagnrýnir að frumvarp fjármálaráðherra um gjaldskrár- lækkanir hafi ekki enn verið afgreitt á Alþingi. Ríkisstjórnin samdi við aðila vinnumarkaðarins um lækkanirnar við gerð kjara- samninga í desember. Þá hafði verið tilkynnt um þriggja prósenta hækkun á gjöldunum frá ára mótum en í frumvarpinu hækka þau ein- ungis um tvö prósent. Breyting- arnar áttu upphaflega að taka gildi 1. febrúar en málið hefur tafist og nú er stefnt að gildistöku 1. júní næstkomandi. Pétur H. Blöndal, alþingis maður og framsögumaður meirihluta efna- hags- og viðskiptanefndar í málinu, segist viss um að frumvarpið verði afgreitt fyrir þinglok. Umfjöllun um málið í þinginu hafi tekið of langan tíma miðað við umfang aðgerðanna. „Ég er alltaf sammála öllum skatta- lækkunum. Hins vegar er ég með efasemdir um hvað þetta er lítið. Ef þetta á að virka þarf að lækka gjöld talsvert svo þau hafi áhrif á verðlag. Þetta er hluti af kjarasamningum og sumir aðilar vinnumarkaðarins líta stíft á svona smáskammtalækn- ingar,“ segir Pétur. - hg / sjá síðu 18 Gjöldin sögð lækka of lítið og of seint Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gagnrýnir seinagang við afgreiðslu frumvarps fjármálaráðherra um gjaldskrárlækkanir. Pétur H. Blöndal alþingismaður segir gjöldin ekki lækka nógu mikið. Viss um að frumvarpið verði afgreitt fyrir þinglok. 89 aurar Verð á einum lítra af bensíni lækkar um tæpa krónu. ALÞINGI Af hálfu stjórnarandstöð- unnar kemur ekki til greina að semja um lok þingstarfa nema að fyrir liggi afdrif þingsályktunar- tillögu utanríkisráðherra um slit á viðræðum við Evrópusambandið. Því er haldið fram að þing flokkur Sjálfstæðisflokks vilji að tillagan verði dregin til baka, en að það vilji framsóknar- menn ekki. Birgir Ár- manns son, for- maður utan ríkis- mála nefndar, hefur sagt að ekki sé raunhæf- ur möguleiki að klára umfjöllun um tillöguna fyrir áætlað þinghlé 16. þessa mánaðar. Sigrún Magnúsdóttir, þingflokks- formaður Framsóknarflokks, segir rangt að málið hamli þinglokum. Að hennar mati eigi utanríkismála- nefnd að halda áfram umfjöllun um málið í sumar og vinna úr umsögn- um sem borist hafa. - jme / sjá síðu 6 ESB-tillaga hamlar þinglokum: Skoða á um- sagnir í sumar SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR Starfsmannavelta mikil Á rúmu ári hafa fimm lykilstjórn- endur hætt störfum hjá flugfélaginu Wow air. Forstjórinn segist gera miklar kröfur. 20 Söfnun vekur spurningar Líf- sýnasöfnun Landsbjargar fyrir Íslenska erfðagreiningu er sögð vekja siðferðilegar spurningar. 2 Lánafélög sögð veikja banka Hagfræðingur segir ganga gegn yfir- lýstum markmiðum um að minnka bankakerfið að gera bönkum að stofna sérstök húsnæðislánafélög. 4 Fékk heilablæðingu í fríinu Anna Sigrún Baldursdóttir, sem starfar á skrifstofu forstjóra Landspítalans, fékk að reyna bandarískt heilbrigðis- kerfi. 8 Ákært vegna samkeppnislagabrota BYKO, Húsasmiðjunnar og Úlfsins: Þrettán ákærðir fyrir verðsamráð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.