Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 2

Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 2
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Hörður, eruð þið að færa björg í bú? Já, þetta bjargar okkur alveg. Landsbjörg mun á næstu vikum taka þátt í að safna lífsýnum frá 100 þúsund Íslend- ingum fyrir hönd Íslenskrar erfðagreiningar. Hörður er formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. VÍSINDI Vísindasiðanefnd var ein- huga um að heimila lífsýnasöfnun Íslenskrar erfðagreiningar hjá 100 þúsund Íslendingum með aðkomu Slysavarnafélagsins Lands bjargar. Þetta segir formaður nefnd- arinnar, Kristján Erlendsson. Vísindasiðanefnd fékk rann- sókn Íslenskrar erfðagrein ingar til skoðunar fyrir nokkrum vikum en þegar aðkoma Landsbjargar var ljós tók nefndin málið aftur til skoðunar. „Þetta var fyrst og fremst beiðni um breytingu á aðferð við að safna og við sáum enga sérstaka ástæðu til að stöðva það.“ Kristján segir upplýst samþykki þátttakenda lykilatriði í heimild vísindasiðanefndar. „Þátttak endur sjálfir taka sýnið, ganga frá því og láta það í hendur rannsóknaraðila. Það breytir því ekki að fólk hefur í fyrsta lagi leyfi til að taka ekki þátt, taki fólk þátt hefur það leyfi til að hætta við hvenær sem er og krefjast þess að þeirra sýni verði eytt.“ Persónuvernd fékk upplýs ingar um rannsóknina frá Íslenskri erfðagreiningu á þriðjudag, sama dag og hún var kynnt almenn- ingi, og er hún nú til skoðunar hjá stofnuninni. Í lögum um persónu- vernd og meðferð persónuupplýs- inga kemur fram að ef vinnsla á viðkvæmum persónuupplýsingum byggist á upplýstu samþykki þátt- takenda falli hún ekki undir leyfis- skylda vinnslu. Salvör Nordal, forstöðu maður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir ýmsar siðfræði- spurningar vakna og skoða verði sérstaklega þá aðferð sem beitt er við söfnun lífsýnanna. „Eitt af meginprinsippum varðandi þátt- töku einstaklinga í vísindarann- sóknum er að fólk gefi upplýst og óþvingað samþykki. Það má setja spurningarmerki við það hvort þetta skilyrði sé uppfyllt því það er verið að setja mikla pressu á fólk með því að gera þetta að átaki fyrir björgunarsveitirnar. Það má ætla að það geti sett fólk í þvingaða stöðu.“ Hún segir rann- sóknaraðferðina afar óvenjulega. „Ég hef aldrei heyrt af því að blandað sé saman fjáröflun fyrir björgunarsveitir og því að vera með söfnun fyrir vísindarann- sókn. Auðvitað er fólki gefið tæki- færi til að senda gögnin en þegar björgunarsveitarmaðurinn birtist á tröppunum er kannski einfald- ara að afhenda sýnin.“ Hún segir að gefa hefði mátt meiri tíma til að kynna rannsóknina almenningi. „Maður hefði viljað að það væri almennileg umræða svo fólk gæti áttað sig betur á því hvað er verið að gera áður en einhver birtist á tröppunum,“ segir Salvör. snaeros@frettabladid.is Söfnun á lífsýnum vekur spurningar Margar siðfræðispurningar vakna vegna söfnunar Landsbjargar á lífsýnum fyrir Íslenska erfðagreiningu. Vísindasiðanefnd var einhuga í afstöðu sinni til rann- sóknarinnar og þótti aðkoma björgunarsveitarinnar ekki hafa hamlandi áhrif. ÞJÓÐIN KRUFIN TIL MERGJAR 100 þúsund Íslendingar, 18 ára og eldri, hafa verið beðnir um að taka þátt í rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar. Um er að ræða umfangsmestu rannsókn sem Íslensk erfðagreining hefur ráðist í. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KRISTJÁN ERLENDSSON SALVÖR NORDAL ÚKRAÍNA, AP Vladimír Pútín Rúss- landsforseti sagði í gær að rúss- neskt herlið væri farið frá landa- mærum Úkraínu. Jafnframt skorar hann á uppreisnarmenn í austurhluta landsins að fresta kosningum, sem boðaðar höfðu verið sunnudaginn 11. maí. Þetta sagði hann á fundi með Didier Burkhalter, forseta Sviss, í Moskvu í gær. Pútín segir þetta nauðsynlegt til að skapa for sendur fyrir viðræðum um ástandið í landinu. Hann ítrekaði jafnframt fyrri ásakanir sínar um að ólga síðustu vikna væri alfarið hópum öfgahægrimanna að kenna, og sakaði Úkraínustjórn um að hafa ekkert gert til að afvopna þessa hópa. Í síðustu viku sendi Úkraínu- stjórn hersveitir til austurhluta landsins. Til átaka hefur komið síðustu daga og tugir manna látið lífið. Uppreisnarmennirnir virt- ust í gær ekki ætla að verða við áskorun Pútíns um að fresta kosn- ingunum. - gb Pútín hvetur uppreisnarmenn í Úkraínu til þess að fresta kosningum: Rússaher fer frá landamærum GRÁIR FYRIR JÁRNUM Úkraínskir her- menn gæta stjórnsýsluhúss í borginni Mariupol, en þeir náðu húsinu úr höndum uppreisnarmanna í gær. NORDICPHOTOS/AFP SKÓLAMÁL Í gær veitti Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hvatn- ingarverðlaun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. Alls fengu ellefu skólar og frístundamiðstöðvar verðlaunin í ár. Á meðal verð- launahafa var leikskólinn Garðaborg fyrir stuðning við pólskumæl- andi börn í leikskólum Reykjavíkur. Félagsmiðstöðin Eldborg fékk einnig verðlaun fyrir að styrkja sjálfsmynd kvíðinna stúlkna í fyrsta og öðrum bekk. Verðlaunin eru veitt árlega fyrir nýbreytni og þróunarverkefni í skóla- og frístunda- starfi í Reykjavík. - ih Skólar og frístundamiðstöðvar í Reykjavík fá hvatningu: Jón Gnarr verðlaunar nýbreytni FRÁ AFHENDINGU VERÐLAUNA Í GÆR Fulltrúar frá verkefninu Stelpustuð með Jóni Gnarr borgarstjóra. MYND/REYKJAVÍKURBORG HEILBRIGÐISMÁL Þrjú hundruð millj- ónir króna, sem Landspítalinn fékk í bráðaviðhald á byggingum sínum, verða að mestu notaðar í að lag- færa utanhúss eina hlið á hverri af þremur stærstu byggingunum. „Þegar það er svo margt sem bíður þá er ein- faldlega skoðað hvar lekur mest inn og þar er farið í við gerðir,“ segir Páll Matt- híasson, forstjóri Landspítalans. „Það á að ráðast í að laga hliðarnar fyrir þessar þrjú hundruð milljónir á þessu ári.“ Að sögn Páls er búið að reikna út að um 4,4 milljarða króna þurfi í bráðaviðhald á húsum spítalans. Þrjú hundruð milljónir fengust úr ríkissjóði fyrir þetta ár. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær leitar Landspítalinn leiða til að fjármagna endurnýjun húsnæð- isins, enda voru 54 prósent þess byggð fyrir árið 1970. Gjörgæslan á Hringbraut er til að mynda í húsi sem byggt var á árunum 1926-1930. „Þú myndir ekki treysta barninu þínu í bíl sem er smíðaður 1930 en það þarf að leggjast inn á gjörgæslu á Landspítalanum sem er í þannig húsi,“ segir Páll. „Aðeins átta pró- sent af húsnæði spítalans hafa verið reist á síðustu 25 árum og því löngu orðið tímabært að endurnýja húsa- kostinn.“ - fb Um 4,4 milljarða króna þarf í bráðaviðhald á byggingum Landspítalans: Þrjár hliðar fyrir 300 milljónir PÁLL MATTHÍASSON LSH VIÐ HRINGBRAUT Forstjóri Land- spítalans segir að 4,4 milljarða króna þurfi í bráðaviðhald. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSMÁL Lögmannsstofan Vox hefur hafið samstarf við franska lögmanninn Olivier Aumaitre. Aumaitre hefur fengið sam þykktar skaðabætur úr hendi TUV Rhein- land, vottunaraðila PIP-brjósta- fyllinga, fyrir um 1.700 konur og nema bæturnar samtals tæplega hálfri milljón króna. Aumaitre mun halda kynningu á blaðamannafundi á morgun á Hilton Reykjavík Nordica þar sem farið verður yfir mögulegan ávinning þess fyrir íslenskar konur að ganga inn í málsókn hans gegn fyrirtækinu. - bá Heldur kynningu á Nordica: Vox í samstarfi við Aumaitre HEILBRIGÐISMÁL Að óbreyttu stefn- ir í verkfall hjá stéttarfélaginu SFR og Sjúkraliðafélagi Íslands næsta mánudag frá átta til fjögur. Þetta segir í tilkynningu á vef SFR. Félögin hafa sameiginlega átt í kjaraviðræðum við Samtök fyrir- tækja i velferðarþjónustu en sam- kvæmt tilkynningunni hefur lítið þokast í samningsátt. Aðilar að Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu eru meðal annars dvalarheimilin Hrafnista, Grund og Sóltún. - bá Viðræður ekki borið ávöxt: Stefnir í verk- fall sjúkraliða SAMGÖNGUR Landsmenn fóru tæp- lega 1,9 milljónir ferða um Hval- fjarðargöng á síðasta ári, eða að meðaltali 5.171 ferð á hverjum degi. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Elsu Láru Arnardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi. Umferð um göngin hefur lítið aukist á síðustu árum. Alls voru farnar 5.070 ferðir á dag árið 2011 og 5.007 árið 2012. Enn er því tals- vert í að umferðin verði jafn mikil og árið 2007, þegar 5.579 bílar óku um göngin að meðaltali á degi hverjum. - bj Um 5.200 í Hvalfjarðargöng: Lítil fjölgun síðustu árin SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.