Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 6

Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 6
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvaða fyrirtæki hlaut samfélags- viður kenningu Byggðastofnunar í ár? 2. Hvar verður fyrsta atvinnuleikhúsið á Snæfellsnesi? 3. Hver er forstöðumaður Listhúss Kópavogs? SVÖR: 1. Norðursigling á Húsavík. 2. Á Rifi . 3. Arna Schram. Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 23. maí 2014 kl. 16:00 í sal Tannlæknafélags Íslands, Síðumúla 35. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins. Upplýsingar um fundinn og ársreikning má nálgast á vef sjóðsins www.landsbankinn.is/ltfi. Stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands. SAMGÖNGUR Árangurslaus sátta- fundur var í kjaradeilu flugmanna hjá Icelandair í gær. Sættir virðast ekki í sjónmáli. „Þetta horfir mjög þunglega og gengur mjög hægt,“ segir Hafsteinn Pálsson, for maður FÍA. Hann segir allar líkur á að verkfall hefjist á morgun. Flugmenn Icelandair hafa boðað til 12 tíma verkfalls klukkan sex í fyrramálið takist ekki samn ingar. Í framhaldinu eru boðuð fimm tímabundin verkföll fram í næsta mánuð auk yfirvinnubanns sem tekur gildi klukkan sex í fyrra- málið. Verkfall gæti það raskað áætlunum um 7.000 farþega strax á morgun. Icelandair sendi tilkynn- ingu til Kauphallarinnar vegna tjóns sem félagið gæti orðið fyrir vegna aðgerða flugmanna. Tjónið er sagt geta numið allt að 1,7 millj- örðum króna. Illugi Gunnarsson, starfandi innanríkisráðherra, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að setja lög á verkfallsaðgerðir flug- manna. „Það er fylgst vel með þróun mála. Við vonum að samningar tak- ist áður en verkfall skellur á,“ segir Illugi. Komi til lagasetningar þurfi Alþingi ekki langan tíma til að setja lög til að binda endi á aðgerðirnar. Hafsteinn Pálsson, formaður FÍA, segir að flugmenn hafi rætt hugsanlega lagasetningu á yfirvof- andi verkfall en segir enga ástæðu til að óttast það. „Við getum ekki verið hræddir við það. Það verður bara að koma í ljós.“ - jme Innanríkisráðherra segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um lagasetningu um verkfallsaðgerðir: Allar líkur á verkfalli flugmanna á morgun ENGIN SÁTT Fari flugmenn Icelandair í verkfall í fyrramálið verður veruleg röskun á flugi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNMÁL Stjórnarandstaðan á Alþingi segir ekki til umræðu að semja um þinglok nema ljóst sé hver örlög þingsályktunartillögu utan- ríkis ráðherra um slit á viðræðum við ESB verða. Stjórnarandstaðan heldur því fram að Sjálfstæðisflokkurinn vilji að tillagan verði dregin til baka en það vilji framsóknarmenn ekki. Einar K. Guð- finnsson, forseti Alþingis, segir að staðan varð- andi þinglok sé enn fremur óljós. Birgir Ármannsson, for- maður utan ríkis- mála nefndar, hefur sagt að það sé ekki raunhæfur möguleiki að klára umfjöllun um tillöguna fyrir áætlað þinghlé 16. maí. „Menn eru að vinna sig í átt að ákveðinni niðurstöðu og svo verður að koma í ljós hvort það tekst,“ segir Birgir. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að ef það eigi að semja um þinglok verði að leggja slitatillöguna til hliðar á yfir- standandi þingi. „Það verður svo að ná sátt um aðkomu þjóðarinnar að málinu,“ segir Árni Páll. Guðmundur Steingrímsson, for- maður Bjartrar framtíðar, segir að hans flokkur sé ekki mikið fyrir að tefja mál. Hann segir ESB-málið þó það stórt og umdeilt að það væri rugl að taka það út úr nefndinni. „Slit á viðræðum við ESB eru algerlega út í hött og um það fjallar tillagan. Það er því rétt að svæfa hana í utanríkismálanefnd. Við verðum að fá loforð fyrir því að til- lagan verði ekki borin fram aftur í haust,“ segir Guðmundur. Hann segir að það eigi að nota sumarið til að ná sáttum um málið, það sé vel hægt, til dæmis á grundvelli þess sem kemur fram í stjórnar sáttmálanum. Katrín Jakobsdóttir, for maður Vinstri grænna, tekur undir að það verði að ná sátt um afdrif til- lögunnar og málsmeðferð ef það eigi að semja um þinglok. Í her búðum VG minna menn á að flokkurinn hafi lagt fram þings ályktunar- tillögu til sátta í málinu. Sigrún Magnúsdóttir, þingflokks- formaður Framsóknarflokksins, segir það rétt að ekki verði samið um þinglok nema endanlegar lyktir fáist í ESB-málið. Hún segir að að hennar mati eigi utanríkismálanefnd þingsins að halda áfram umfjöllun um þings- ályktunartillöguna í sumar og vinna úr þeim umsögnum sem borist hafa. johanna@frettabladid.is ESB-tillagan þvælist fyrir þinglokum Stjórnarandstaðan er einhuga um að ekki verði samið um þinglok nema sam- komulag takist um afdrif ESB-slitatillögunnar. Þingflokksformaður Framsóknar telur best að málið verði unnið áfram í sumar innan utanríkismálanefndar. ÞINGLOK Stjórnarandstaðan segir ekki koma til greina að semja um þinglok nema sátt takist um afdrif ESB-slitatillögu utanríkisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP BIRGIR ÁRMANNSSON Það verður að ná sátt um aðkomu þjóðarinnar að málinu. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. Við verðum að fá loforð fyrir því að tillagan verði ekki borin fram aftur í haust. Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. STJÓRNMÁL Píratar í Reykjavík ætla að setja stefnu- mál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar inn á vefinn Betri Reykjavík til að vita hvaða hlutar stefn- unnar hljóta mestan hljómgrunn meðal kjósenda. Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata, segir að með þessum hætti vilji Píratar nálgast kjós endur betur. „Það yrði töluverð þátttaka í þessu en við gerum okkur grein fyrir því að það er alltaf bara ákveðinn hluti kjósenda sem tekur þátt.“ Stefna Pírata snýr að miklu leyti að bættri þjón- ustu við börn og vilja Píratar sérstaklega auka aðgengi barna að hestamennsku. „Við erum ekki að tala um að flytja Skagafjörð suður. Hestanámskeið eru rosalega dýr fyrir börn og þetta snýst aðallega um fjárhagslega þáttinn og að efla aðgengi fyrir alla,“ segir Þórgnýr Thoroddsen, sem skipar annað sæti listans. Oddviti Pírata er bjartsýnn á að fylgi þeirra muni aukast á næstu vikum. „Við höfum aldrei mælst með minna fylgi en svo að við náum einum manni, stefnan er að ná tveimur eða þremur og við erum sannfærð um að við getum náð það langt með góðri, málefna- legri og skemmtilegri baráttu,“ segir Halldór. - ssb Píratar í Reykjavík gefa ekki upp með hverjum þeir vilja mynda meirihluta: Ætla að ná þremur mönnum inn STEFNUMÁLIN KYNNT Píratar leggja áherslu á börn og þjóðar- atkvæðagreiðslu um framtíð flugvallarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJARADEILUR „Það er eftir að ræða launaliðinn. Það er verið að skoða grundvöll fyrir nýju vinnumati fyrir grunnskólakenn- ara og í því sambandi er meðal annars horft til kjarasamnings framhaldsskólakennara,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. Hann segir samningagerðina þokast áfram. Samninganefndir grunnskólakennara og sveitar- félaganna hittast nú nánast dag- lega. Grunnskólakennarar hafa boðað þrjú eins dags verkföll í þessum mánuði, það fyrsta er þann 15. og svo á vikufresti út mánuðinn. Ólafur segir að grunnskóla- kennarar haldi kröfum sínum til streitu um að laun þeirra verði leiðrétt til samræmis við þær stéttir sem þeir miða sig við. Þ a ð e r u háskólamennt- aði r sta rfs - menn ríkisins og framhalds- skólakennarar. Þeir síðasttöldu sömdu um allt að 29 prósenta hækkun launa á samningstímanum og grunn- skólakennarar telja að þeir eigi að fá álíka hækkanir. Þeir benda á að menntun framhaldsskóla- kennara og grunnskólakennara sé orðin áþekk. - jme ÓLAFUR LOFTSSON Stöðug fundarhöld í deilu kennara og sveitarfélaganna: Ekki búið að ræða launaliðinn VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.