Fréttablaðið - 08.05.2014, Qupperneq 12
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Sökkuldúkur, raka-
varnarplast og þéttiefni
á frábæru verði
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Raka- og vatnsþéttiefnin frá
Múrbúðinni eru vottuð hágæða
vara á sérlega hagstæðu verði.
Rakaþolplast 100m2
kr. 9.990
Framleiðsluaukning á laxi og
regnbogasilungi í Berufirði og Fáskrúðsfirði
Tillaga að matsáætlun (drög)
Fiskeldi Austfjarða hf. auglýsir drög að tillögu að matsáætlun
um framleiðslu á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum samkvæmt
reglugerð nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum. Um er að
ræða allt að 13.000 tonna aukningu á framleiðslu í Berufirði og
Fáskrúðsfirði. Tilkynnt er um drögin í blöðunum Austurglugginn
og Fréttablaðinu þann 8.maí 2014. Almenningi er gefinn kostur á
að kynna sér drögin á heimasíðunni www.icefishfarm.is og gera
athugasemdir við þau til og með 22. maí 2014.
Athugasemdir sendist á netfangið
tt@icefishfarm.com eða í pósti:
Fiskeldi Austfjarða hf
Varðan 1
765 Djúpivogur
SUÐUR-AFRÍKA, AP Fyrir tuttugu
árum vann Afríska þjóðar ráðið,
ANC, yfirburðasigur í fyrstu
þingkosningum landsins eftir fall
aðskilnaðarstjórnar hvíta minni-
hlutans.
ANC hefur æ síðan verið öflug-
asti stjórnmálaflokkur landsins, en
hafði fram að því áratugum saman
barist gegn aðskilnaðarstefnunni.
Fastlega er reiknað með því að
flokkurinn hafi, rétt eins og í öllum
öðrum þingkosningum frá árinu
1994, fengið ríflega sextíu prósent
atkvæða í kosningunum í gær.
Þó bentu skoðanakannanir til
þess að flokkurinn myndi nú í fyrsta
sinn missa aukinn meirihluta sinn á
þingi. Hann fengi sem sagt ekki þrjá
af hverjum fjórum þing mönnum í
þetta skiptið.
Vaxandi gagnrýni hefur gætt í
Suður-Afríku á þessa yfirburða-
stöðu ANC, sem sögð er vera óholl
fyrir lýðræði í landinu.
Enginn flokkur hefur getað veitt
ANC neina samkeppni svo heitið
geti. Lýðræðisbandalagið, sem er
frjálslyndur miðjuflokkur, kemst þó
næst því og var spáð ríflega fimmt-
ungi atkvæða, en aðrir flokkar virt-
ust ætla að halda sig innan við fimm
prósentin.
Ákveðin tímamót urðu einnig í
gær að því leyti að ungt fólk, sem
fætt er eftir að aðskilnaðarstefnan
féll, var nú að taka þátt í kosning-
um í fyrsta sinn. Stjórnvöld hvöttu
kjósendur, sérstaklega þá sem nú
voru að kjósa í fyrsta sinn, til að
taka daginn snemma þar sem búast
mætti við að langar biðraðir mynd-
uðust þegar líða tæki á daginn.
Desmond Tutu, sem var erki-
biskup landsins þegar aðskilnaðar-
stefnan leið undir lok, sagði að íbúar
Suður-Afríku ættu að vera þakk-
látir fyrir að geta kosið sér þing
með friðsamlegum hætti. „Ég er að
hugsa um Úkraínu. Ég er að hugsa
um Suður-Súdan, allt það sem er að
gerast þar,“ sagði hann og minntist
þeirrar erfiðu baráttu gegn hvítu
minnihlutastjórninni sem á endan-
um lauk með sigri lýðræðis.
„Fólk var sett í fangelsi. Fólk
þjáðist. Þannig að við megum ekki
kasta því á glæ. Við verðum að
muna það áfram að við fengum
þetta við afar dýru verði.“
Ekki er búist við að úrslit liggi
fyrir fyrr en á laugardag, þótt
fyrstu tölur hafi verið væntanlegar
í gærkvöld.
gudsteinn@frettabladid.is
Fátt ógnar stöðu
ANC í Suður-Afríku
Desmond Tutu segir þjóðina eiga að vera þakkláta fyrir lýðræðið, sem fékkst með
áratugalangri og erfiðri baráttu. Í þingkosningunum í gær, þeim fimmtu frá árinu
1994, tók í fyrsta sinn þátt heil kynslóð fædd eftir fall aðskilnaðarstefnunnar.
Fólk var
sett í fangelsi.
Fólk þjáðist.
Þannig að við
megum ekki
kasta því á
glæ.
Desmond Tutu,
fyrrverandi erkibiskup.
BIÐRÖÐ Löng biðröð myndaðist við kjörstað í bænum Marikana, þar sem sumir þurftu að bíða í röðinni í allt að fjórar klukku-
stundir. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL „Það getur farið svo
að það tefjist um einhverja daga,
viku eða svo, að fólk geti sótt um
skuldaleiðréttingar. Það breytir
hins vegar engu um að niðurstöður
aðgerðanna munu liggja fyrir eftir
fyrsta september,“ segir Tryggvi
Þór Herbertsson, verkefnisstjóri
skuldaniðurfellinga ríkistjórnar-
innar.
Ríkisskattstjóri telur ekki raun-
hæft að hægt verði að sækja um
leiðréttingu á verðtryggðum
húsnæðis lánum þann 15. maí.
For maður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis er þessu ósam-
mála.
Ríkisskattstjóri segir í umsögn
um frumvarp til leiðréttingar
verðtryggðra húsnæðislána að í
því sé miðað við að leiðréttingin
taki til fasteignaveðlána heimila.
Hugtakið heimili sé hins vegar
vandmeðfarið þar sem lagalega
skilgreiningu skorti á því.
Þá segir enn fremur að frum-
varpið geri ráð fyrir að unnt verði
að sækja um leiðréttingu frá og með
15. maí 2014. Ríkisskattstjóri telur
að gildistaka frumvarpsins þarfn-
ist endurskoðunar í ljósi þess hve
nálægt er komið þeirri dagsetningu.
Ætla megi að umfjöllun Alþingis
taki nokkurn tíma og því umrædd
dagsetning ekki lengur raunhæf.
Frosti Sigurjónsson, for maður
efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, segir að frumvarpið verði
afgreitt úr nefndinni á föstudag.
Umfjöllun um það sé á áætlun.
„Þegar frumvarpið hefur verið
afgreitt frá nefndinni liggja fyrir
allar breytingar sem gerðar verða
á því. Það skiptir því ekki öllu máli
hversu langan tíma umræður um
frumvarpið taka á þingi,“ segir
Frosti. Ríkisskattstjóri hafi því
nægan tíma til að undirbúa málið.
„Við gerum okkar, hann gerir
sitt,“ segir Frosti og er sann-
færður um að það verði hægt að
sækja um skuldaleiðréttingu 15.
maí næstkomandi. - jme
Vikutöf á að hægt verði að sækja um leiðréttingu:
Töfin breytir engu
um niðurstöðuna
„Þegar
frumvarpið
hefur verið
afgreitt frá
nefndinni
liggja fyrir
allar breyt-
ingar sem gerðar verða á
því. Það skiptir því ekki
öllu máli hversu langan
tíma umræður um frum-
varpið taka á þingi.
Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis.