Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 18

Fréttablaðið - 08.05.2014, Side 18
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18 „Þetta mál er búið að vera í þessum dæmalausa tómagangi og áhuga- leysi ríkisstjórnar og þingnefndar að ljúka þessu máli er eftirtektar- vert,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Gylfi gagnrýnir að frumvarp fjármálaráð- herra sem á að lækka gjöld á áfengi, tóbak og eldsneyti hefur ekki enn verið afgreitt á Alþingi. Ríkis- stjórnin samdi við aðila vinnu- markaðarins um lækkanirnar við gerð kjara- samninga í desember. Þá hafði verið tilkynnt um þriggja pró- senta hækkun á gjöldunum frá ára mótum en í frumvarpinu hækka þau einungis um tvö pró- sent. Breytingarnar áttu upphaf- lega að taka gildi 1. febrúar en málið hefur tafist og nú er stefnt að gildistöku 1. júní næstkomandi. „Þetta hefur tekið fleiri fleiri mánuði og þessi seinkun er að r ý ra þess a r aðgerðir veru- lega því það gefur augaleið að almenning- ur í landinu er ekki enn farin að njóta lægri gja lda . Hins vegar var það okkar tillaga í upp- hafi að nota þessa fjármuni til að lækka gjaldtöku í heilbrigðiskerf- inu sem er farin að taka út yfir allan þjófabálk,“ segir Gylfi. Gjöld á áfengi og bensín lækka of lítið og of seint Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gagnrýnir seinagang við afgreiðslu frumvarps um gjaldskrárlækkanir. Pétur H. Blöndal alþingismaður segir gjöldin ekki lækka nógu mikið. Frumvarpið verði afgreitt fyrir þinglok. Í ÁTVR Áfengis- og tóbaksgjöld lækka um eitt prósent í frumvarpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA PÉTUR H. BLÖNDAL GYLFI ARNBJÖRNSSON Rekstrarvörur - vinna með þér 1 króna 89 aurar Verð á einum 0,5 l. bjór sem er 5 prósent að styrkleika mun lækka um eina krónu. Verð á einum lítra af bensíni mun lækka um 0,89 krónur. Pétur H. Blöndal, alþingis maður og framsögumaður meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar í málinu, segist viss um að frum- varpið verði afgreitt fyrir þing- lok 16. maí. Hann segir málið hafa fengið of langa umfjöllun í þinginu miðað við umfang aðgerðanna. „Ég er alltaf sammála öllum skattalækkunum. Hins vegar er ég með efasemdir um hvað þetta er lítið því ef þetta á að virka þarf að lækka gjöld talsvert svo þau hafi áhrif á verðlag. En þetta er hluti af kjara- samningum og sumir aðilar vinnu- markaðarins líta stíft á svona smá- skammtalækningar,“ segir Pétur. Hann bætir við að verðbólga hér á landi hafi verið undir 2,5 prósentum frá áramótum þó að til gjaldskrár- lækkananna hafi ekki komið. Pétur segir aðgerðirnar koma til með að lækka skatta um tvö til þrjú hundruð milljónir króna. Erf- itt verði að fylgjast með því hvort lækkanirnar skili sér út í verðlagið. „Það er ekki nokkur lifandi vegur að fylgjast með því. Þú ert með frjálsa álagningu til dæmis á bensíni og þegar menn fá tilboð um afslátt af bensíni upp á tíkall á lítra þá hverfur þetta gjörsam- lega.“ haraldur@frettabladid.is Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest 150 þúsund króna sekt sem Neytendastofa lagði á eig- anda verslunarinnar Buy.is. Neytendastofa lagði stjórnvalds- sekt á eiganda verslunarinnar fyrir ósanngjörn ummæli gagnvart iStore og eiganda hennar. Um mælin voru talin ómálefnaleg og til þess fallin að kasta rýrð á iStore og hafa þannig áhrif á ákvörðun neytenda um að hafa viðskipti. Í frétt á vef Neytendastofu segir að um endurtekin brot hafi verið að ræða. Eigandi Buy.is kærði ákvörð- unina til áfrýjunarnefndarinnar og krafðist þess að sektin yrði felld úr gildi. - hg Neytendastofa sektaði fyrir ósanngjörn ummæli: Sekt á Buy.is staðfest HÖFÐABORG Neytendastofa er til húsa við Borgartún í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Fyrstu fjóra mánuði ársins bárust Neytendasamtökunum alls 2.796 erindi. „Er það töluverð aukning miðað við fyrra ár og má reikna með að heildarfjöldi erinda verði um 8.500 á árinu ef fer sem horfir,“ segir á vef sam- takanna. Fram kemur á síðu samtakanna að flest erindin, nærri þriðjungur eða 897, hafi verið vegna vöru- kaupa. Rúmur fjórðungur erinda var svo vegna þjónustukaupa, 22 prósent erinda voru almenns eðlis og fimmtungur vegna húsaleigu. Þá kemur fram að Evrópska neytendaaðstoðin – ECC Ísland hafi það sem af er ári annast milligöngu í 15 deilumálum milli seljenda og neytenda. Þá hafa aðstoðinni borist tæplega 30 annars konar erindi. „Er það nokkur fjölgun frá fyrri árum, en í flestum tilvikum er um að ræða deilur vegna leigu á bílaleigu- bílum eða vegna seinkunar eða aflýsingar á flugi.“ Leigjendaaðstoðin fékk svo 582 erindi fyrstu fjóra mánuði ársins. Það er líka sögð töluverð fjölgun miðað við fyrri ár. - óká Neytendamálum fjölgar: Hafa fengið 2.796 erindi Í VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI Þriðjungur mála sem Neytendasamtökunum berast er vegna vörukaupa og rúmur fjórðungur vegna kaupa á þjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Átakið Hjólað í vinnuna hófst í gærmorgun í tólfta sinn. Þátt- takendum var boðið að hjóla við í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, þiggja bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands stendur fyrir Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaða- keppni um allt land, dagana 7.-27. maí. Meginmarkmiðið er sagt að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfis- vænum og hagkvæmum. - fb Hjólað í vinnuna í tólfta sinn: Hjólreiðar hafa aukist til muna HVERNIG HAFA LÆKKANIRNAR ÁHRIF Á VÖRU- VERÐ? BJÓR BENSÍN Bestu kaup Guðmundar Steingrímssonar alþingis- manns eru svört ítölsk kaffivél af gerðinni Delonghi Magnifica. „Ég keypti hana á Suðurlandsbraut og kaffið er alveg ótrúlega gott,“ segir Guðmundur ánægður. „Maður hlakkar til að vakna á morgnana og fá sér kaffibolla. Þetta er náttúrlega besti kaffibolli dagsins og sameiginlegt tilhlökkunarefni okkar hjóna. Við fjár- festum í þessu eftir mikla umhugsun og sjáum ekki eftir því. Við ákváðum að gefa hvort öðru ekki jólagjöf sem kostaði neitt og kaupa frekar kaffivél.“ Guðmundur segir verstu kaupin einnig hafa verið sín fyrstu kaup. „Það var þegar ég ákvað barnungur að kaupa jólagjöf handa foreldrum mínum í fyrsta skipti. Mér fannst svona eiturgrænt símaborð úr plasti fyrir síma og penna alveg ógeðslega flott og ég fór sérstaklega í verslunina Magasín í Kópavogi til að kaupa þetta. Ég gaf foreldrum mínum þetta í mikilli einlægni en svo skömmu eftir jólin hvarf þetta borð og ég sá það aldrei aftur. Með árunum hef ég verið að fatta hvað þetta var óskaplega ósmekklegt símaborð.“ - hg NEYTANDINN Guðmundur Steingrímsson Ítölsk kaffivél bestu kaup Guðmundar GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON Barnungur brenndi Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, sig á eiturgrænu síma- borði úr plasti.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.