Fréttablaðið - 08.05.2014, Page 22

Fréttablaðið - 08.05.2014, Page 22
8. maí 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Það er ekki alltaf sem hlutir eins og árs- reikningar vekja bros eða tilfinningar, eins og stolt. En nú er ég bæði ánægður og stoltur. Uppskera erfiðis síðustu ára birt- ist skýrt í ársuppgjöri borgarinnar fyrir árið 2013, svokölluðum ársreikningi. Afgangur af heildarrekstrinum er jákvæður um 8,4 milljarða króna. Allir hlutar rekstrarins skila jákvæðri niður- stöðu og öll helstu fyrirtæki í eigu borgar- innar. Allar áætlanir standast – og raunar vel það. Það er til marks um trausta fjár- málastjórn í öllum einingum. Það segir einnig mikla sögu að aldrei hafa skuldir verið lækkaðar jafn mikið á einu ári í sögu borgarinnar eða um 35 milljarða króna. Einn mikilvægasti þátturinn í þessari góðu niðurstöðu er björgunaráætlunin í fjármálum Orkuveitunnar, sem kölluð hefur verið Planið. Hún hefur gengið eftir. Það skiptir miklu máli því Orkuveitan þarf að standa undir gríðarstórum afborg- unum af lánum. Starfsfólk og stjórnendur eiga heiður skilinn fyrir góðan árangur í erfiðu verkefni. Samanburður á gjaldskrám og skött- um sýnir að það er hagstæðast fyrir fjöl- skyldur að búa í Reykjavík. Hér er lægst hlutfall fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og lægstar gjaldskrár í leik- og grunn- skólum. Það er mjög mikilvægt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur á undanförn- um dögum lagt áherslu á skuldir borgar- sjóðs sem hafi hækkað um 16 milljarða á síðustu þremur árum. Þá líta þeir fram hjá heildarmyndinni og Orkuveitunni. Mikil- vægi Orkuveitunnar í heildinni sést þó ein- mitt vel á því að 12 af þessum 16 milljörðum sem borgarsjóður tók að láni fór í neyðar- lán borgarsjóðs til Orkuveitunnar. Þegar heildin er skoðuð hafa skuldir lækkað á hverju ári í tíð núverandi meirihluta. Borgin hefur engu að síður haldið uppi framkvæmdastigi með fjárfestingum frá 2010 og aukið atvinnu með margvíslegum leiðum. Þetta hefur unnið gegn hækkun útgjalda vegna fjárhagsaðstoðar, skapað vöxt í atvinnulífinu og tekjur fyrir borgar- sjóð, þótt þetta stórátak hafi líka kostað. Staðan sem birtist í ársreikningum borgarinnar er uppskera borgarstjórnar- meirihluta sem tók við Orkuveitu Reykja- víkur á hliðinni. Þar var 50 milljarða gat í rekstrinum. Hjá borgarsjóði var 5 milljarða gat staðreynd. Nú eru fjármálin í lagi, gjaldskrár og álögur eru lágar og skuldir lækka. Það er mikilvægt að borg- inni verði áfram stjórnað af sömu yfir- vegun, ábyrgð og festu. Góðar fréttir af fjármálum FJÁRMÁL Dagur B. Eggertsson borgarstjóraefni Samfylkingarinnar meiri orku Orkulausnir henta þeim sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki eða svefnvanda. Hentar vel þeim sem vilja byggja upp orku vegna vefjagigtar eða eftir veikindi. Þ orkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtaks- sjóðs Íslands, skrifaði merkilega grein í síðasta tölublað Vísbendingar, sem sagt var frá í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins, í gær. Þorkell segir meðal annars að krónan sé ótrúverðugur gjaldmiðill sem sé of hátt skráður og haldið uppi með höftum. „Íslenska krónan getur ekki orðið framtíðargjaldmiðill og því þurfa stjórnvöld að leggja fram trúverðuga efnahagsstefnu hvernig og hvenær hætta megi notkun minnsta gjaldmiðils í heimi,“ skrifar Þorkell. Hann segir enga framtíðarsýn hjá stjórnvöldum í efnahags- málum sem geti aukið traust á krónunni. „Gjaldeyrishöft þjóðar eru svipuð staða og fyrirtækis sem er í greiðslustöðvun. Allir bíða eftir aðgerðum og fram- tíðarstefnu. Þjóðin er í raun í greiðslustöðvun hvað varðar samskipti við útlönd. Íbúum líður fyrst í stað vel, en þegar fólk áttar sig á því að greiðslugeta sé takmörkuð, hvort sem er í fyrirtæki eða þjóðfélagi, eykst óróleiki og vantrú á yfirstjórn, ef ekkert er að gert. Þannig líður sífellt fleirum í dag.“ Þorkell talar eflaust fyrir munn margra í viðskiptalífinu, sem botna ekkert í því á hvaða vegferð ríkisstjórnin er við stjórn efnahagsmálanna. Æ fleiri komast að þeirri niðurstöðu að krónan sé ónothæft fyrirbæri. Gjaldeyrishöftin eru mörgum fyrirtækjum gríðarlega óþægur ljár í þúfu. Í Markaðnum í gær var líka grein eftir Brynhildi S. Björns- dóttur, framkvæmdastjóra hjá Hagsýn, sem lýsti erfiðleikunum við framkvæmd gjaldeyrishaftanna, ekki sízt fyrir lítil sprota- fyrirtæki. Hún tók meðal annars dæmið af Skema, fyrirtæki sem vakið hefur mikla athygli og þurfti að stofna dótturfélag í Banda- ríkjunum. Til þess þurfti að millifæra 75 dollara og sextíu sent inn á reikning í Bandaríkjunum. Ferlið tók Skema átta mánuði og lögfræðikostnaðurinn var milljón. Enda segir Þorkell Sigurlaugsson að þrátt fyrir að nýsköpun sé alltaf lausnarorðið, nái ekki margir sprotar að komast á öflugt vaxtarstig. Mörg litlu sprotafyrirtækjanna geti ákveðið að færa sig og vaxa og blómstra erlendis, en ekki í þeim jarðvegi sem býðst á Íslandi. Þessi fyrirtæki fá engin svör um það hvort eða hvenær gjald- eyrishöftum verði aflétt, hvað þá um hvort þau megi gera ráð fyrir að Ísland taki upp nothæfan gjaldmiðil. „Hér þarf öfluga stefnu til vaxtar og stuðnings við þessa starfsemi. Það verður erfitt með þjóð í greiðslustöðvun,“ segir Þorkell. Hann kallar eftir því að ríkisstjórnin noti sumarið til að móta öfluga og trúverðuga efnahagsstefnu. „Ef það gerist ekki verða aðrir að taka við keflinu,“ skrifar formaður Framtakssjóðsins. Margir aðrir í atvinnulífinu eru steinhissa á að ríkisstjórnin hafi lagt jafnmikið á sig við að útiloka eina raunhæfa kostinn á upptöku nýs gjaldmiðils og raunverulegs afnáms gjaldeyris- haftanna á næstu árum, með því að leggja til að aðildarviðræð- unum við Evrópusambandið verði slitið. Eða mun stjórnin vinna jafnötullega að því að í sumar komi fram önnur og trúverðugri framtíðaráætlun? Það virðist ákveðin bjartsýni að gera ráð fyrir því. Hvar er trúverðuga efnahagsstefnan? Þjóð í greiðslustöðvun Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Brennivínsdeildin Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, er allt annað en ánægður með frumvarp ríkisstjórnar- innar til laga um gjaldskrárlækkanir og fleira, þá sér í lagi lækkun á áfengis- og tóbaksgjöldum. Ögmundur ræddi málið á þriðjudagskvöld á Alþingi þar sem hann velti því fyrir sér hvort málið verð- skuldaði þá umræðu sem það hefði fengið á þinginu, sér í lagi ef áhrif þess væru mæld í krónum og aurum, sem væru takmörkuð. Hann velti því einnig upp hvers vegna ríkisstjórnin veldi þessa vöru til að lækka gjöldin á og gaf sér að það væri vegna þess að brenni- vínsdeild Sjálfstæðis- flokksins hefði sent alþingismönnum sennilega upp undir þúsund pósta til að hvetja til lækkunar á áfengi. Eurovision-fordómar Borgarstjórn Reykjavíkur deildi hart um áhorf á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á kvöldfundi í Ráðhúsinu á þriðjudag. Jón Gnarr borgarstjóri vildi að hlé yrði gert á fundinum til að horfa á Pollapönk stíga á svið en Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti sjálf- stæðismanna, vildi ekki slíta fundi. Jón sagði að um vináttu- leysi gagnvart Óttari Proppé, Polla- pönkara, þingmanni og fyrrverandi borgarfulltrúa, væri að ræða. Júlíus sagði hins vegar borgarbúa virta að vettugi og setta í annað sæti á eftir söngvakeppninni. Önnur stemning Þingmenn voru hins vegar í öllu vinalegri stemningu á kvöldfundinum í þinghúsinu. Þar tók Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis og sjálfstæðis- maður, söngvakeppnimálið sér- staklega upp í forsetastóli og óskaði Óttari Proppé, kollega sínum, til ham- ingju með árangurinn fyrir hönd þingsins. fanney@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.