Fréttablaðið - 08.05.2014, Qupperneq 24
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24
Kortagrunnur 2012: Samsýn ehf.
Mars 2014
Útfært af BG/Hnit hf.
Haustið 2012 skrifaði
undir ritaður tvær greinar
um samgöngumál og birt-
ust þær í Verktækni, blaði
verk- og tæknifræðinga.
Nú í aðdraganda sveitar-
stjórnarkosninga og vegna
breyttra forsendna leyfi
ég mér að rifja upp til-
lögur mínar varðandi
þessi tvö stóru samgöngu-
mál og er hér fyrri grein
mín um Reykjavíkurflug-
völl.
Framtíð hans hefur verið í
umræðunni síðan ég man eftir
mér og erum við þá að ræða um
rúmlega hálfa öld. Staða flugvall-
arins núna er sú að nefnd hefur
verið skipuð undir forsæti Rögnu
Árnadóttur til að finna lausnir
varðandi framtíð flugvallar-
ins. Sú nefnd skoðar væntanlega
gamlar og nýjar til lögur
og leitar að nýjum til-
lögum og er ég hér að von-
ast til að mín tillaga verði
skoðuð líka.
Valkostur A4
Tillaga mín um Reykja-
víkurflugvöll gengur út
á að þar verði tvær flug-
brautir til frambúðar og
engu að síður flytjist flug-
völlurinn að mestu leyti úr
Vatnsmýrinni. Til grundvallar til-
lögu minni er skýrslan „Reykja-
víkurflugvöllur – Úttekt á fram-
tíðarstaðsetningu, apríl 2007“
unnin af Samráðsnefnd samgöngu-
ráðuneytisins og Reykjavíkur-
borgar. Þar er fjallað um valkosti
A1, A2 og A3, en ég legg til val-
kost A4, sem er blanda af valkosti
A1 (þar er núverandi norðvestur-
suðausturbraut framlengd út í sjó
um rúmlega hálfan km) og val-
kosti A3 (þar er byggð ný norður-
suðurbraut) og er valkostur A4
sýndur á meðfylgjandi mynd.
Hér vil ég telja upp helstu kosti
þessarar tillögu, áfanga í bygg-
ingu og gróft áætlaðan kostnað
sem byggir á uppfærðum kostn-
aði úr áðurnefndri skýrslu:
1. Reykjavíkurflugvöllur verður
áfram aðalinnanlandsflugvöllur
landsmanna.
2. Reykjavíkurflugvöllur getur
áfram verið varaflugvöllur fyrir
millilandaflug.
3. Stór hluti Vatnsmýrar verður
byggingarhæft land (gróft áætlað
um tveir þriðjuhlutar svæðisins).
4. Núverandi mannvirki nýtast
eins og best verður á kosið og
samgöngumiðstöð fær góðan stað.
5. Tillögu A4 er auðvelt að byggja
í tveimur aðaláföngum án þess að
trufla innanlandsflugið að ráði.
Áfangar og kostnaður
Áfangarnir tveir eru eftirfarandi
og er kostnaður þeirra áætlaður
út frá áðurnefndri skýrslu:
1. áfangi: Bygging nýrrar norður-
suðurflugbrautar. Áætlaður
kostnaður er um 4 milljarðar kr.
við landgerð og fyllingar og um
1 milljarður kr. við flugbrautir
og flughlöð, samtals um 5 millj-
arðar kr. Framkvæmdatíminn
gæti verið árin 2018 til 2020 til að
mæta ósk Reykjavíkurborgar um
að loka norður-suðurflugbrautinni
fyrr en seinna.
2. áfangi: Lenging núverandi
norðvestur-suðausturbrautar um
rúman hálfan km til norð vesturs.
Áætlaður kostnaður er um 3 millj-
arðar kr. við landgerð, um 0,5
milljarðar kr. við flugbrautir og
um 1 milljarður kr. við vegstokka
undir flugbrautir, samtals um
4,5 milljarðar kr. Framkvæmda-
tíminn gæti verið á árunum 2025
til 2030 til að mæta ósk Reykja-
víkurborgar um að fá sem mest
landrými í Vatnsmýrinni við lok
gildis tíma Aðalskipulags Reykja-
víkur 2010-2030.
Til viðbótar ofangreindum
kostnaði kemur allur kostnaður
við nýja samgöngumiðstöð, nýja
aðstöðu Flugfélags Íslands, endur-
nýjun á búnaði sem hefur verið
illa viðhaldið undanfarið o.fl.
og má segja að slíkur kostnaður
komi til óháð því hvar aðalinnan-
landsflugvöllur Íslands verður í
framtíðinni. Þessi kostnaður er
auk þess líklega í lágmarki í til-
lögu A4.
Uppgröftur úr húsgrunnum
Ef ákvörðun verður tekin fljót-
lega um að fara þessa leið, má í
framhaldinu byrja að fylla upp
svæðið undir nýja norður-suður-
flugbraut og er slík framkvæmd
miklu ódýrari en ella, ef þarna er
tímanlega opnaður tippur fyrir
burðarhæft efni úr húsgrunnum
(nýr Landspítali, hótel og þétt-
ing byggðar). Fyllingarsvæðið
undir flugbrautirnar er brot af
þeirri stækkun á hafnarsvæðum
Reykjavíkur sem Reykjavíkur-
höfn/Faxaflóahafnir hafa staðið
fyrir undanfarin ár og þar hefur
þessari aðferð verið beitt – að
undirbúa verkið tímanlega og
fá þannig ódýrt fyllingarefni á
svæðið.
Sáttin
Það er talað um nauðsyn þess
að ná sátt í málum. Það er engin
sátt um að Reykjavíkurflugvöllur
verði áfram óbreyttur og það er
engin sátt um að loka honum. Til-
lögu A4 tel ég að megi kalla sátta-
tillögu.
Ég læt þetta gott heita um
Reykjavíkurflugvöll. Seinni
grein mín verður um Sundabraut
og birtist hún vonandi fljótlega í
Fréttablaðinu.
Tengillinn á grein mína í Verk-
tækni haustið 2012 er: http://www.
vfi.is/utgafa/verktaekni/ og var
greinin birt í tölublaði 4 það ár.
Reykjavíkurfl ugvöllur,
er sáttin að færa hann?
SKIPULAG
Bjarni
Gunnarsson
verkfræðingur
➜ Það er talað um nauðsyn
þess að ná sátt í málum. Það
er engin sátt um að Reykja-
víkurfl ugvöllur verði áfram
óbreyttur og það er engin
sátt um að loka honum.
Kolvetnaskert,
próteinríkt og fitulaust
Hentar
fyrir LKL
mataræði
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
AFMÆLISRÁÐSTEFNA
KRABBAMEINSSKRÁRINNAR
OG LEITARSTÖÐVAR
KRABBAMEINSFÉLAGSINS
Háskólanum í Reykjavík, stofu M208,
föstudaginn 9. maí kl. 15:00-17:50
15:00
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
15:10
Kristján Oddsson yfirlæknir Leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins
15:20
Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri
Krabbameinsskrárinnar
15:40
Jón Gunnlaugur Jónasson yfirlæknir
Krabbameinsskrárinnar
16:00 Kaffihlé
16:20
Stefan Lönnberg yfirmaður leghálskrabbameinsleitar
hjá Krabbameinsskrá Noregs
16:50
Mireille Broeders, Radboud háskóla, Miðstöð í
læknavísindum, Nijmegen, Hollandi
17:20
17:40
Jakob Jóhannsson formaður Krabbameinsfélags
Íslands
Fundarstjóri: Ragnheiður Haraldsdóttir
forstjóri Krabbameinsfélags Íslands
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis