Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 24
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24 Kortagrunnur 2012: Samsýn ehf. Mars 2014 Útfært af BG/Hnit hf. Haustið 2012 skrifaði undir ritaður tvær greinar um samgöngumál og birt- ust þær í Verktækni, blaði verk- og tæknifræðinga. Nú í aðdraganda sveitar- stjórnarkosninga og vegna breyttra forsendna leyfi ég mér að rifja upp til- lögur mínar varðandi þessi tvö stóru samgöngu- mál og er hér fyrri grein mín um Reykjavíkurflug- völl. Framtíð hans hefur verið í umræðunni síðan ég man eftir mér og erum við þá að ræða um rúmlega hálfa öld. Staða flugvall- arins núna er sú að nefnd hefur verið skipuð undir forsæti Rögnu Árnadóttur til að finna lausnir varðandi framtíð flugvallar- ins. Sú nefnd skoðar væntanlega gamlar og nýjar til lögur og leitar að nýjum til- lögum og er ég hér að von- ast til að mín tillaga verði skoðuð líka. Valkostur A4 Tillaga mín um Reykja- víkurflugvöll gengur út á að þar verði tvær flug- brautir til frambúðar og engu að síður flytjist flug- völlurinn að mestu leyti úr Vatnsmýrinni. Til grundvallar til- lögu minni er skýrslan „Reykja- víkurflugvöllur – Úttekt á fram- tíðarstaðsetningu, apríl 2007“ unnin af Samráðsnefnd samgöngu- ráðuneytisins og Reykjavíkur- borgar. Þar er fjallað um valkosti A1, A2 og A3, en ég legg til val- kost A4, sem er blanda af valkosti A1 (þar er núverandi norðvestur- suðausturbraut framlengd út í sjó um rúmlega hálfan km) og val- kosti A3 (þar er byggð ný norður- suðurbraut) og er valkostur A4 sýndur á meðfylgjandi mynd. Hér vil ég telja upp helstu kosti þessarar tillögu, áfanga í bygg- ingu og gróft áætlaðan kostnað sem byggir á uppfærðum kostn- aði úr áðurnefndri skýrslu: 1. Reykjavíkurflugvöllur verður áfram aðalinnanlandsflugvöllur landsmanna. 2. Reykjavíkurflugvöllur getur áfram verið varaflugvöllur fyrir millilandaflug. 3. Stór hluti Vatnsmýrar verður byggingarhæft land (gróft áætlað um tveir þriðjuhlutar svæðisins). 4. Núverandi mannvirki nýtast eins og best verður á kosið og samgöngumiðstöð fær góðan stað. 5. Tillögu A4 er auðvelt að byggja í tveimur aðaláföngum án þess að trufla innanlandsflugið að ráði. Áfangar og kostnaður Áfangarnir tveir eru eftirfarandi og er kostnaður þeirra áætlaður út frá áðurnefndri skýrslu: 1. áfangi: Bygging nýrrar norður- suðurflugbrautar. Áætlaður kostnaður er um 4 milljarðar kr. við landgerð og fyllingar og um 1 milljarður kr. við flugbrautir og flughlöð, samtals um 5 millj- arðar kr. Framkvæmdatíminn gæti verið árin 2018 til 2020 til að mæta ósk Reykjavíkurborgar um að loka norður-suðurflugbrautinni fyrr en seinna. 2. áfangi: Lenging núverandi norðvestur-suðausturbrautar um rúman hálfan km til norð vesturs. Áætlaður kostnaður er um 3 millj- arðar kr. við landgerð, um 0,5 milljarðar kr. við flugbrautir og um 1 milljarður kr. við vegstokka undir flugbrautir, samtals um 4,5 milljarðar kr. Framkvæmda- tíminn gæti verið á árunum 2025 til 2030 til að mæta ósk Reykja- víkurborgar um að fá sem mest landrými í Vatnsmýrinni við lok gildis tíma Aðalskipulags Reykja- víkur 2010-2030. Til viðbótar ofangreindum kostnaði kemur allur kostnaður við nýja samgöngumiðstöð, nýja aðstöðu Flugfélags Íslands, endur- nýjun á búnaði sem hefur verið illa viðhaldið undanfarið o.fl. og má segja að slíkur kostnaður komi til óháð því hvar aðalinnan- landsflugvöllur Íslands verður í framtíðinni. Þessi kostnaður er auk þess líklega í lágmarki í til- lögu A4. Uppgröftur úr húsgrunnum Ef ákvörðun verður tekin fljót- lega um að fara þessa leið, má í framhaldinu byrja að fylla upp svæðið undir nýja norður-suður- flugbraut og er slík framkvæmd miklu ódýrari en ella, ef þarna er tímanlega opnaður tippur fyrir burðarhæft efni úr húsgrunnum (nýr Landspítali, hótel og þétt- ing byggðar). Fyllingarsvæðið undir flugbrautirnar er brot af þeirri stækkun á hafnarsvæðum Reykjavíkur sem Reykjavíkur- höfn/Faxaflóahafnir hafa staðið fyrir undanfarin ár og þar hefur þessari aðferð verið beitt – að undirbúa verkið tímanlega og fá þannig ódýrt fyllingarefni á svæðið. Sáttin Það er talað um nauðsyn þess að ná sátt í málum. Það er engin sátt um að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram óbreyttur og það er engin sátt um að loka honum. Til- lögu A4 tel ég að megi kalla sátta- tillögu. Ég læt þetta gott heita um Reykjavíkurflugvöll. Seinni grein mín verður um Sundabraut og birtist hún vonandi fljótlega í Fréttablaðinu. Tengillinn á grein mína í Verk- tækni haustið 2012 er: http://www. vfi.is/utgafa/verktaekni/ og var greinin birt í tölublaði 4 það ár. Reykjavíkurfl ugvöllur, er sáttin að færa hann? SKIPULAG Bjarni Gunnarsson verkfræðingur ➜ Það er talað um nauðsyn þess að ná sátt í málum. Það er engin sátt um að Reykja- víkurfl ugvöllur verði áfram óbreyttur og það er engin sátt um að loka honum. Kolvetnaskert, próteinríkt og fitulaust Hentar fyrir LKL mataræði H VÍ TA H Ú SI Ð / S ÍA AFMÆLISRÁÐSTEFNA KRABBAMEINSSKRÁRINNAR OG LEITARSTÖÐVAR KRABBAMEINSFÉLAGSINS Háskólanum í Reykjavík, stofu M208, föstudaginn 9. maí kl. 15:00-17:50 15:00 Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra 15:10 Kristján Oddsson yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins 15:20 Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsskrárinnar 15:40 Jón Gunnlaugur Jónasson yfirlæknir Krabbameinsskrárinnar 16:00 Kaffihlé 16:20 Stefan Lönnberg yfirmaður leghálskrabbameinsleitar hjá Krabbameinsskrá Noregs 16:50 Mireille Broeders, Radboud háskóla, Miðstöð í læknavísindum, Nijmegen, Hollandi 17:20 17:40 Jakob Jóhannsson formaður Krabbameinsfélags Íslands Fundarstjóri: Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.