Fréttablaðið - 08.05.2014, Blaðsíða 26
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
Ástkær faðir okkar,
GESTUR GUNNARSSON
lést að heimili sínu mánudaginn 28. apríl.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 9. maí kl. 15.00.
Eyrún Gestsdóttir
Ragna Gestsdóttir
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANNES BALDVINSSON
(JÓI BALD)
Brekkugötu 38, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 5. maí.
Hulda Ellertsdóttir
Jónína Freydís Jóhannesdóttir Ingvi Þór Björnsson
Anna Hafdís Jóhannesdóttir Óskar A. Óskarsson
Agnes Bryndís Jóhannesdóttir Reimar Helgason
Jórunn Eydís Jóhannesdóttir Páll Viðar Gíslason
Hanna Vigdís Jóhannesdóttir Barði Westin
afa- og langafabörn.
Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
NJÁLS ÞORGEIRSSONAR
Fannborg 8, Kópavogi,
áður til heimilis að Laufásvegi 10,
Stykkishólmi.
Guðríður Þórðardóttir
Þórður Viðar Njálsson Auður Stefnisdóttir
Jóhanna Sigríður Njálsdóttir Ellert Vigfússon
Þorgeir Ingi Njálsson Kristjana Aradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
LILJA FANNEY KETILSDÓTTIR
andaðist á Sjúkraskýlinu í Bolungarvík,
1. maí sl. Hún verður jarðsungin frá
Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn
10. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Slysavarnastarfið í Bolungarvík.
Helga Sveinsdóttir Anton Ásgrímur Kristinsson
Jón Sveinsson Ingibjörg Bjarnadóttir
Kristján Ingi Sveinsson Kathleen Cheong
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ELÍSABET JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Hlíð, áður til heimilis
að Klettaborg 2, Akureyri,
lést sunnudaginn 4. maí. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 9. maí kl. 13.30.
Ásta Einarsdóttir Sigmar Sævaldsson
Sigurður Einarsson Sveinbjörg Sigurrós Aðalsteinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
Indverski stjórnmálaleiðtoginn Mahatma
Gandhi fór í nokkur hungurverkföll um
ævina til þess að mótmæla yfirgangi
Breta á Indlandi. Eitt hið frægasta þeirra
hófst þennan dag árið 1933 og stóð í
þrjár vikur. Gandhi fór fyrir sjálfstæðis-
hreyfingu Indlands og friðsamlegri
baráttu Indverja fyrir sjálfstæði frá
Bretum, hreyfingu sem tugir milljóna
Indverja tóku þátt í. Alla ævi hryllti
hann við tilhugsuninni um ofbeldi og
hryðjuverk. Heimspeki hans var frið-
samleg og hafði áhrif á friðsamlegar
fjöldahreyfingar innan lands sem utan.
Staða verkafólks og ánauðugra var slæm
á Indlandi, Bretar komu illa fram við
heimamenn í krafti valds nýlenduherr-
anna. Gandhi stakk upp á friðsamlegri
óhlýðni og enn fremur krafðist hann
þess að mótmælendur einbeittu sér
að mótmælum gegn harðstjórninni
vegna hins mannlega harmleiks og að
þeir myndu ekki tala um sjálfstæði. Er
Gandhi var tekinn höndum og ákærður
fyrir að vera valdur að þeim óróa sem
skapast hafði á Indlandi, mótmæltu
hundruð þúsunda handtökunni og
fangelsuninni fyrir framan fangelsið,
dómhús og lögreglustöðvar og kröfðust
þess að hann yrði látinn laus, sem
dómurinn að endingu gerði tilneyddur.
Eftir það skipulagði Gandhi mótmæli
og verkföll til að vinna gegn misrétti því
sem herraþjóðin beitti. Upp frá því var
Gandhi jafnan ávarpaður Bapa (faðir)
ellegar Mahatma (mikla sál).
ÞETTA GERÐIST: 8. MAÍ 1933
Gandhi fór í hungurverkfall í þrjár vikur
„Þessi sýning er ákveðin framþróun hjá
mér, ég hef verið að taka saman þessa
mörgu anga sem eru á manni sem lista-
manni,“ segir listmálarinn Daði Guð-
björnsson. Hann verður sextugur í
næstu viku og því verður opnuð sýn-
ing á nýjum málverkum listamanns-
ins í Galleríi Fold laugardaginn 10. maí
klukkan þrjú. „Ég hef verið að stunda
það sem heitir sahaja-jóga sem hefur
gert það að verkum að maður verður
mun markvissari og fágaðri og meira í
jafnvægi í því sem maður er að gera.“
Daði útskrifaðist úr Lista akademíunni
í Amsterdam árið 1984 en áður hafði
hann lokið námi frá Myndlistaskóla
Reykjavíkur árið 1976 og verið áber-
andi í íslensku listalífi síðan hann hélt
sína fyrstu sýningu árið 1980. „Ég er
ekki að mála neinar týpískar nýaldar-
myndir, ég er meira að vinna upp úr því
sem ég var að gera áður,“ segir Daði.
Sýninguna kallar hann Landslag, sjó-
lag og sólin þar sem viðfangsefnið eru
frumefni náttúrunnar, menn, sjórinn og
sólin. „Þetta eru þessi mest áberandi
frumelement í manninum,“ segir Daði.
„Fjallið stendur fyrir grunninn í mann-
inum, síðan er vatnið sem er eiginlega
það sem ruglar mann svolítið í ríminu
og kemur manni úr jafnvægi eins og
hafið, það ólgar. Síðan er það sólin sem
er drifkrafturinn, eins og í náttúrunni,
eins konar eldsneyti í þetta allt saman.“
Daði bætir því við að vissulega séu
fleiri element í manninum en honum
finnist þessi áðurnefndu vera mest áber-
andi. „Allavega í sjálfum mér hingað til
eru það þessi sem ég hef mest verið að
glíma við,“ segir listamaðurinn. „Það er
þannig í jógafræðunum að þessi element
sem eru innra með okkur eru líka til í
náttúrunni. Þegar maður er að fást við
sjálfan sig þá er maður líka að fást við
náttúruna, þess vegna gengur manni
svona illa að temja sjálfan sig.“
Eins og áður hefur komið fram verður
sýningin opnuð á laugardaginn í Galleríi
Fold klukkan þrjú og verður boðið upp á
afmælisköku af því tilefni. - bþ
Frumelement mannsins
Listmálarinn Daði Guðbjörnsson verður sextugur í næstu viku en í tilefni þess heldur
hann stóra sýningu í Gallerí Fold sem ber nafnið Landslag, sjólag og sólin.
Þegar maður er að fást
við sjálfan sig þá er maður
líka að fást við náttúruna,
þess vegna gengur manni
svona illa að temja sjálfan sig.
1636 Eldgos varð í Heklu.
1752 J.C. Pingel, amtmanni Íslands, vikið
úr embætti vegna skulda.
1835 Fyrstu ævintýri H.C. Andersen voru
gefin út í Danmörku, þar á meðal Eld-
færin og Prinsessan á bauninni.
1945 Síðari heimsstyrjöldinni lauk í
Evrópu með uppgjöf Þjóðverja.
1970 Tólfta og síðasta breiðskífa
Bítlanna, Let it be, kom út.
1979 Félag frjálshyggjumanna var
stofnað á Íslandi.
1987 Á Norður-Írlandi sat breska sér-
sveitin fyrir Austur-Tyrone-herdeild IRA,
átta mönnum, og tók þá af lífi.
1996 Stjórnarskrá Suður-Afríku tók gildi.
Stjórnarskráin þykir nokkuð nýstárleg því
hún tryggir ríkisborgurum víðtæk réttindi
og valddreifingu.
STUNDAR SAHAJA-JÓGA
Daði Guðbjörnsson hefur verið
áberandi í íslensku listalífi.