Fréttablaðið - 08.05.2014, Page 28
FÓLK|TÍSKA
Fyrirsætur lifa og hrærast í heimi tísk-unnar og því kannski ekkert skrítið að tískuhúsin leiti til þeirra en æ fleiri
merki fá fyrirsætur til að hanna með sér
fatnað og fylgihluti. Slík samvinna tryggir
merkjunum ekki einungis pottþétta „look-
book“ heldur fylgja fyrirsætunum einnig
þúsundir eftir á samskiptamiðlum eins og
Twitter og Instagram. Margar þeirra halda
einnig úti sérstökum aðdáendasíðum þar
sem nánast er hægt að fylgjast með hverju
spori þeirra. Tískulína hönnuð af fyrirsætu
vekur athygli.
Það má auðvitað spyrja sig hvort sá stíll
sem hentar fyrirsætu og fer henni vel gerir
það sama fyrir „venjulegt“ fólk. Þær eru
ekki ofurfyrirsætur fyrir ekki neitt. Þrátt
fyrir það virðist slík samvinna skila sér.
Vörurnar rjúka út.
Þetta hófst allt með samstarfi Kate Moss
og TopShop árið 2007 en fór rólega af stað.
Tískumerkið RVCA vann árin 2009 og 2010,
með fyrirsætunni Erin Wasson, fleiri en eina
línu og hefur nýlega hafið samvinnu við
Ashley Smith. Árið 2012 sendi fyrirsætan
Agyness Deyn frá sér skólínu með Doc
Marten´s og á eftir fylgdi bylgja af tísku-
merkjum í samstarfi við fyrirsætur.
Fyrirsætan Lily Aldridge hefur hannað
fyrir tískumerkið Velvet by Graham and
Spencer. Warby Parker mun kynna gler-
augnalínu eftir Karlie Kloss, fyrirsætan
Alessandra Ambrosio hannaði línu í sam-
vinnu við Planet Blue og Behati Prinsloo
hannar línu af gallafatnaði og bolum með
THVM. Fyrirsætan Cara Delevingne hannaði
línu af handtöskum í samvinnu við Mul-
berry og ljóstraði því nýlega upp á Insta-
gram að meira væri á leiðinni.
Heimild: Fashonista.com
FYRIRSÆTURNAR HANNA FÖTIN
TÍSKA Fleiri og fleiri tískuhús fá fyrirsæturnar til að hanna heilu línurnar. Slík samvinna vekur ávallt athygli enda eiga fyrirsætur
sér jafnan stóran aðdáendahóp. Vörurnar rjúka út en fyrsta línan var afrakstur samstarfs Kate Moss og TopShop árið 2007.
AFSLAPPAÐUR STÍLL
Fyrirs ætan Agyness Deyn
þykir hafa afslappaðan stíl
en hún vann með Doc Mar-
ten´s að skólínu árið 2012.
SAMSTARF VIÐ
WARBY PARKER
Fyrisætan Karlie
Kloss vinnur að
gleraugnalínu
fyrir Warby
Parker.
HANNAR
GALLAFATNAÐ
Fyrirsætan Behati
Prinsloo hannar
línu gallabuxna
og stutt-
ermabola með
THVM.
HANNAR TÖSKUR
Fyrirsætan Cara
Delevingne
hannaði línu
af handtösk-
um í sam-
vinnu við
Mulberry
og ljóstraði
því upp á
Instagram
að meira
væri á
leiðinni.