Fréttablaðið - 08.05.2014, Qupperneq 30
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
HENDA EÐA GEYMA?
SNYRTIVÖRUR Sumar snyrtivörur skemmast tiltölulega fljótt en aðrar má
geyma lengur en margan grunar. Mörgum veitist erfitt að henda hálf fullum
krukkum og hálfkláruðum snyrtivörum í ruslið þótt komið sé fram yfir
síðasta söludag. Til þess að huga að heilsu húðar, hárs, vara og augna er
þó gott að vera meðvitaður um aldur snyrtivaranna og hvenær kominn er
tími á að endurnýja.Vefsíðan fashionmagazine.com birti lista yfir nokkrar
algengar tegundir snyrtivara og tiltók hvort þeim skyldi henda eftir vissan
tíma eða hvort hægt væri að nota þær eftir að síðasti söludagur hefur liðið.
GEYMA
Naglalakk. Þótt naglalakk sé orðið þykkt
og kekkjótt er hægt að bjarga því með því
að bæta við naglalakksþynni (ekki eyði)
og hrista duglega. Þá mæla margir með
því að geyma naglalakk inni í ísskáp.
GEYMA
Augnskuggar. Þótt þeir séu þurrir og brotnir
má nota þá til að mynda augnlínur. Með því
að bleyta þunnan bursta og dýfa honum í
augnskuggann brotnar púðrið niður og nota
má burstann eins og augnpenna. Svo má
bæta augnskugga við varagloss eða varalit.
GEYMA
Burstar. Líkt og með svampa þá á að þvo förðunarbursta
reglulega. Þar sem þeir eru fremur dýrir ætti ekki að henda
þeim þótt þeir séu farnir að láta á sjá. Hægt er að taka frá
minni og þynnri burstana og nota til dæmis við naglalakka-
list. Smá hárin eru fullkomin til að útfæra minnstu smáatriði.
GEYMA
Varalitir. Ef slæm lykt er af varalit
er kominn tími til að henda honum.
Hins vegar er hægt að lengja líf-
tíma varalits með því að geyma
hann í ísskáp. Talið er að þannig
geti varalitir enst í allt að fjögur
ár. Þótt liturinn sé komin niður að
brún er óþarfi að henda honum
þar sem hægt er að nota varalita-
pensil til að ná því sem eftir er. Um
tuttugu prósent af varalitnum eru
neðan við brúnina.
HENDA
Maskarar. Við þá á að losa
sig við eftir sex mánuði frá
því þeir eru opnaðir fyrst. Þar
sem sífellt er verið að pumpa
lofti inn í og út úr túpunni
geta myndast kjöraðstæður
fyrir bakteríur. Sumir reyna að
drýgja maskara og bæta í hann
vatni en það þykir ekki óhætt.
HENDA
Andlits-, raka- og hreinsikrem. Slík krem
á ekki að nota lengur en sex mánuði. Þá
þarf einnig að passa að nota engin krem
með SPF-merkingu fram yfir síðasta sölu-
dag. Þessar vörur innihalda fitusýrur sem
geta þránað eftir vissan tíma.
HENDA
Svampar. Mælt er með að svömpum sé hent mánaðar-
lega því þrátt fyrir vikulegan þvott geta svampar valdið
útbrotum.
HENDA
Augnpennar. Ekki er mælt með
að nota augnpenna lengur en sex
mánuði. Ekki er hægt að drýgja
hann með neins konar þynni.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt fyrir flottar konur
stærðir 38-58
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
kr. 12.900.-
str. 40-56
Flottir (pleður)jakkar :-)
Litir:
rautt, svart,
perluhvít t,
sveppabrúnt.
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 11–16.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Stærð 36 - 46/48
Verð 8.900 kr.