Fréttablaðið - 08.05.2014, Qupperneq 58
8. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 46
FÓTBOLTI „Ég er bara að klára
að setja upp kvöldfundinn fyrir
stelpurnar,“ segir Freyr Alexand-
ersson, landsliðsþjálfari kvenna
í fótbolta, þegar Fréttablaðið
heyrir í honum hljóðið fyrir stór-
leikinn í undankeppni HM 2015
gegn Sviss sem fram fer í Nyon
klukkan 17.00 í dag.
„Mesta vinnan fer í að klippa
þessa leiki saman og nú er ég að
setja upp myndræna taktík fyrir
stelpurnar. Ég er að reyna að færa
það sem við höfum verið að gera
á æfingavellinum yfir á power-
point til að fara betur yfir það,“
bætir Freyr við.
Sviss er í efsta sæti riðilsins
með 16 stig, sjö stigum á undan
Íslandi, en okkar stelpur eiga tvo
leiki til góða á svissneska liðið.
Treysta á framherjana
Þegar liðin mættust á Laugar-
dals vellinum síðasta haust í
fyrsta leik riðlakeppninnar var
Freyr ný tekinn við liðinu en Sviss
vann þá öruggan 2-0 sigur. Spila-
mennska stelpnanna okkar var
hálfvandræðaleg en liðið hefur
tekið ótrúlegum framförum síðan
þá. Freyr hefur sett sitt mark á
liðið, það endaði í þriðja sæti
Algarve- bikarmótsins og er búið
að vinna sex leiki í röð í öllum
keppnum.
„Við vorum andlega illa undir-
búin fyrir þann leik. En ekki
bara það. Við spiluðum líka lág-
pressu sem virkaði engan veginn.
Núna ætlum við töluvert framar á
völlinn. Sviss beitir löngum send-
ingum mikið þrátt fyrir að skora
svona mikið (28 mörk í 6 leikjum).
Þær sparka mikið langt og þetta
er nokkuð einfaldur fótbolti. Við
munum reyna að loka á fyrsta
spil út frá vörn og á næstu línu,“
segir Freyr en svissneska liðið er
lítið breytt frá sigrinum í Dalnum
síðast liðið haust.
„Þær eru nánast á sama stað.
Þær spila á sama liðinu nánast í
öllum leikjum. Á sama tíma og við
vorum í Algarve-bikarnum voru
þær að keppa í Kýpur-bikarnum
sem er svipað mót. Þar neyddust
þær til að rúlla aðeins
á liðinu því Ramona
(Bach man, best i
framherji liðsins)
var aðeins meidd.
Þeim gekk ekki vel
á mótinu sem
sýnir kannski
hversu háðar
þær eru þessu framherjapari
sínu,“ segir Freyr.
Stelpurnar hafa í viðtölum í
aðdraganda leiksins mikið talað
um að veikleikar Sviss séu fundnir
og Freyr sé búinn að fara vel yfir
það hvar íslenska liðið ætlar að
ráðast á topplið riðilsins. Það er
fyrst og fremst þessi hápressa sem
Freyr talar um og að leyfa þeim
ekki að vera rólegar á boltanum í
öftustu línum. Þetta mun þó taka
sinn toll af leikmönnunum.
„Það verður mikil geðveiki í
okkar leik og það verður rosaleg
orka sem fer í þetta. En ég hef
fulla trú á að þetta heppnist. Það
er mikið sjálfstraust í liðinu og
maður finnur líka fyrir mikilli
samheldni. Þótt það sé samkeppni
um allar stöður þá eru allir til-
búnir að gefa af sér og reyna að
finna lausnir fyrir liðið til að
vinna leiki,“ segir Freyr.
Verðum að vinna
Sviss er sem fyrr segir á toppi
riðilsins með 16 stig, sjö stigum
á undan Íslandi sem á tvo leiki til
góða. Leikið er í sjö riðlum í Evr-
ópuhluta undankeppni HM og fara
sigurvegararnir sjö beint á
heimsmeistaramótið í Kanada
á næsta ári. Þau fjögur lið
með bestan árangur í öðru
sæti leika svo innbyrðis um
síðasta sætið.
„Þessi leikur er bara
upp á það hvort við ætlum
okkur fyrsta sætið eða
ekki. Ef við töpum er Sviss
komið áfram en ef við vinnum
er þetta í okkar höndum. Ég
er alveg meðvitaður um að
við eigum eftir tvo leiki gegn
Dönum en við höldum í þann
draum að ná fyrsta sætinu og
því munum við gera allt til þess
að vinna á morgun,“ segir Freyr.
tom@frettabladid.is
Leikurinn um 1. sætið
Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta mæta Sviss í undankeppni HM
2015 í Nyon í dag. Sigur skiptir öllu máli til að ná efsta sætinu í riðlinum.
UNGFRÚRNAR GÓÐU OG HÚSIÐ Freyr Alexandersson ræðir við stelpurnar okkar á æfingu í Nyon. MYND/KSÍ/HILMAR ÞÓR GUÐMUNDSSON
ÞESSA ÞARF AÐ PASSA Í KVÖLD
➜ Ramona Bachmann, framherji
Ramona Bachmann er einn besti framherji
Evrópu í dag. Hún leikur með Þóru B. Helga-
dóttur og Söru Björk Gunnarsdóttur hjá
Rósagarðinum í Svíþjóð (áður LdB Malmö)
og er búin að skora 63 mörk í síðustu 66
leikjum í sænsku úrvalsdeildinni.
Í fyrri leik Íslands og Sviss fiskaði hún víti,
skoraði eitt mark og réð lögum og lofum á
vellinum. Hún er búin að skora fimm mörk
í fimm leikjum í undankeppni HM.
FÓTBOLTI Norska liðið Viking
er mikið Íslendingalið en fimm
íslenskir fótboltamenn eru í aðal-
hlutverki hjá liðinu og þar af ber
einn þeirra, Indriði Sigurðsson,
fyrirliðabandið.
Viking er í 3. sæti norsku
úrvalsdeildarinnar eftir sjö
umferðir og er eina liðið sem
hefur ekki tapað leik. Þegar
markatölfræði Viking-liðsins er
skoðuð nánar sést fyrst hversu
mikið framlag íslensku leikmann-
anna hefur verið.
Viking hefur skorað tíu mörk í
þessum sjö leikjum og níu þeirra
hafa verið íslensk. Íslensku leik-
mennirnir hafa enn fremur gefið
sjö af átta stoðsendingum liðsins í
fyrstu sjö umferðunum.
Hinn 21 árs gamli Yann-Erik de
Lanlay er eini markaskorari Vik-
ing sem er ekki með íslenskt vega-
bréf og Trond Erik Bertelsen er
sá eini af leikmönnum liðsins sem
hefur gefið stoðsendingu en fædd-
ist ekki á Íslandi.
Þetta þýðir að íslensku leikmenn
liðsins eiga 17 af 19 markastigum
Viking í fyrstu sjö umferðunum.
Liðið hefur ekki enn skorað mark
í sumar án þátttöku Íslendings.
Yann-Erik de Lanlay sem skoraði
eina markið sem er ekki íslenskt
gerði það eftir stoðsendingu frá
Jóni Daða Böðvarssyni og Trond
Erik Bertelsen sem hefur gefið
einu stoðsendinguna sem ekki er
íslensk lagði þá upp mark fyrir
Steinþór Frey Þorsteinsson. - óój
Íslensku strákarnir sjá um mörkin í sumar
Íslenskir leikmenn eru með 89 prósent af mörkum og stoðsendingum Viking-liðsins á leiktíðinni.
ATKVÆÐAMESTUR Jón Daði Böðvars-
son er bæði með flest mörk og flestar
stoðsendingar hjá Viking í fyrstu sjö
umferðunum. MYND/AÐSEND
ÍSLENSKT, JÁ TAKK HJÁ VIKING Í SUMAR
LEIKMENN MEÐ ÞÁTT Í MARKI MÖRK STOÐS. MARKASTIG
Jón Daði Böðvarsson, Íslandi 3 3 6
Steinþór Freyr Þorsteinsson , Íslandi 2 2 4
Sverrir Ingi Ingason , Íslandi 2 1 3
Björn Daníel Sverrisson , Íslandi 1 1 2
Yann-Erik de Lanlay , Noregi 1 0 1
Trond Erik Bertelsen, Noregi 0 1 1