Fréttablaðið - 09.07.2014, Side 17

Fréttablaðið - 09.07.2014, Side 17
ÞJÓÐDANSAMÓT Þjóðdansafélagið í samvinnu við Nordlek stendur fyrir norrænu þjóðdansa- og þjóðlaga- móti í Mosfellsbæ dagana 9. til 12. júlí. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinni við Varmá. Nánar á www.mosfellsbaer.is. Maturinn í Perú var ljúffengur og fengum við meðal annars að prófa þjóðarrétt Perúmanna sem er steiktur naggrís,“ segir Ásgerður, sem er ekki smeyk við að leggja sér til munns framandi rétti þegar hún er á faraldsfæti um heiminn. „Naggrísakjötið minnti svolítið á önd; var brúnt, stökkt og virkilega gott. Kjötið sér maður á öllum mörkuðum í Perú og sérstaklega í fjöllunum.“ ÞÚSUND BÆKUR FYRIR FÁTÆK BÖRN Ásgerður er heilluð af landi og þjóð eftir ríflega tveggja vikna ferðalag um Perú. „Forsprakki ferðarinnar var Sigrún Klara Hannesdóttir, fyrrverandi lands- bókavörður, sem bjó og starfaði í Perú fyrir hartnær fjörutíu árum. Ferðin var því eins konar pílagrímsferð vina og fjöl- skyldu Sigrúnar Klöru um gamalkunnar slóðir,“ útskýrir Ásgerður, sem ásamt þremur öðrum vinkonum Sigrúnar Klöru slóst í hópinn til Perú. Sigrún Klara stofnaði árið 2007 sam- tökin Vini Perú sem styður meðal annars barnaskóla í fjallaþorpinu Chosecani. „Þannig hafa Vinir Perú meðal annars byggt eldhús til að tryggja að börnin fái morgunmat því með mettan maga læra þau betur í skólanum,“ segir Ásgerður. Á ferð sinni um Perú heimsóttu ferða- félagarnir barnaskólann í Chosecani og fleiri skóla í fátækrahverfum Líma. „Sigrún Klara varð sjötug í fyrra en afþakkaði þá afmælisgjafir og óskaði í staðinn eftir fjárframlögum til að geta opnað skólabókasafn í fátækrahverfinu Quebrada Verde í Líma. NAGGRÍS Í MATINN FERÐIR Ásgerður Kjartansdóttir bókasafnsfræðingur er vinur Perú. Hún hekl- aði 145 gullfallegar húfur sem hún færði fátækum börnum í Andesfjöllunum. MACHU PICCHU Ásgerður í Inkaborg- inni Machu Picchu í Perú. Hún segir fegurð og orku staðarins óraunverulega. Nú er vetur í Perú og tók héluð jörð á móti ferðafólkinu frá Íslandi. MYND/ÚR EINKASAFNI ▲ DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara Sjónmælingar í Optical Studio Tímapantanir í síma: Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Optical Studio í Leifsstöð, 4250500

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.