Fréttablaðið - 09.07.2014, Síða 20

Fréttablaðið - 09.07.2014, Síða 20
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjalausnir í ferðaþjónustu MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 20142 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Umsjónarmenn auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, s. 512 5446, jonatan@365.is Segway-hjólum hefur fjölgað jafnt og þétt undan farin ár hérlendis og eru aðilar í ferðaþjónustu farnir að taka þau í þjónustu sína. Í dag eru þrjár leigur starfandi hérlendis sem sérhæfa sig í Segway-ferðum, ein í Vest- mannaeyjum og tvær í Reykjavík. Jón Guðmann Jakobsson, mark- aðs- og sölustjóri Léttitækni, sem er umboðsaðili fyrir Segway-hjól hérlendis, segir þau bæði öruggan og þægilegan ferðamáta fyrir ferðamenn og aðra. „Í grunn- inn eru þetta tvær týpur af hjól- um. Annars vegar er það I2-götu- hjólið. Hægt er að bæta ýmsum aukabúnaði á það þannig að nota- gildi þess henti ólíkum hópum, t.d. ferðamönnum, öryggisvörðum og f leiri starfsstéttum. Hins vegar er um X2-útgáfuna að ræða sem er torfæruútgáfan. Það er einnig hægt að bæta aukabúnaði á það hjól, t.d. sérstökum dekkjum og búnaði fyrir golftösku þannig að hjólið hentar frábærlega vel fyrir golfara.“ Auk fyrrnefndra leiga getur yngri kynslóðin leigt sér hjól í Húsdýragarðinum í Reykjavík undir eftirliti foreldra. Segway-hjólin henta við marg- víslegar aðstæður að sögn Jóns. „Þau eru frábær viðbót við ferða- þjónustuna. Það verður sífellt vinsælla fyrir smærri hópa að fara saman í stutta túra á Segway, hvort sem það er innanbæjar eða úti í náttúrunni. Lögreglan og ör- yggisfyrirtæki víða um heim hafa notað Segway með góðum ár- angri enda er hægt að spara tölu- vert með notkun þeirra auk þess sem starfsmennirnir verða miklu sýnilegri fyrir vikið.“ Segway gengur fyrir rafgeymi sem hægt er að stinga í hleðslu nær alls staðar. „Flestir stinga þeim í samband yfir nóttina enda er það þægilegast. Við héldum að rafhlaðan myndi duga í fáein ár en nú er komin sjö ára reynsla á þær þannig að þær duga ansi lengi.“ Engin sérstök próf þarf til að nota Segway-hjólin en Léttitækni lætur þó alla sem kaupa hjólin ljúka námskeiði hjá þeim. „Það skiptir miklu máli enda vinnum við eftir ströngum reglum frá framleiðanda þeirra.“ Nánari upplýsingar má finna á www.lettitaekni.is. Frábær ferðamáti Undanfarin ár hefur Segway-hjólum fjölgað á Íslandi. Þau eru sérstaklega hentug fyrir ferðaþjónustur enda bjóða þau upp á marga skemmtilega möguleika. Segway er öruggur, skemmtilegur og þægilegur ferðamáti fyrir ferðamenn. MYND/ÚR EINKASAFNI Síðustu þrjú ár hefur aukn- ing ferðamanna verið hlut- fallslega meiri að vetri til en að vori, sumri og hausti. Reyndar voru slegin fjölda- met í hverjum mánuði síð- ustu tvö árin en aukningin fór yfir tíu prósent í öllum mánuðum frá 2011 til 2013. Aukningin var mest (60 prósent) í nóvember 2012 og var yfir 40 prósentum í þremur mánuðum árið 2013; í febrúar, mars og desember. Þetta kemur fram í töl- fræðibæklingi Ferðamála- stofu, Ferðaþjónusta í tölum. Þar sést einnig að þó að flestir ferðamenn, eða 44 prósent, komi hingað að sumri (júní-ágúst) þá kemur ríflega fjórðungur að vori eða hausti og um fjórðungur að vetri til. Ferðamenn frá Mið- og Suður-Evrópu voru áberandi yfir sumar- mánuðina í fyrra en Norðurlandabúar, Bandaríkjamenn og ferða- menn frá löndum sem flokkast undir annað dreifðust talsvert jafnar yfir árið. Bretar skera sig hins vegar úr, en helmingur þeirra kom yfir vetrarmánuðina. Helmingur breskra túrista kemur að vetri Einhverjir sjá það sem einfalt og þægilegt verk til að ná sér í smá aukapening að leigja út heimili sitt eða aukaherbergi í íbúðinni til ferðamanna í ákveðinn tíma. Málið er þó ögn flóknara en marga grunar. Rekstur gistingar er leyfisskyld starfsemi enda mikil ábyrgð að bjóða gistingu án þess að hafa til dæmis brunavarnir í lagi. Gisti- staðir teljast staðir þar sem boðin er gisting til lengri eða skemmri tíma gegn endurgjaldi. Á þetta við um heimagistingu, gistingu í íbúðum, sumarhúsum, hótelum, gistiheimilum og gistiskálum. Til að rekstraraðila sé heimilað að starfrækja starfsemi sína, leigja út heimili eða herbergi til gistingar, þarf viðkomandi að hafa þar til gert starfsleyfi að því tilskildu að hann uppfylli viðeigandi ákvæði laga og reglugerða. Til að sækja um leyfi þarf að framvísa vott orðum frá fimm mismunandi aðilum, hafa staðfest virðisaukanúmer og teikningu samþykkta af byggingafulltrúa. Umsóknareyðublöð varðandi starfsleyfi er hægt að nálgast hjá sýslumannsembættum eða lögregluembættum um allt land. Þegar formleg umsókn hefur borist sýslumanni þarf samþykki frá vinnu- eftirliti, heilbrigðiseftirliti, eldvarnareftirliti og sveitarstjórn á við- komandi svæði. Ekki einungis er það mikil skriffinnska sem fylgir þessum ætlaða auðfengna gróða af gistisölunni heldur er ákveðinn kostnaður sem þarf að reiða af hendi til þess að fá rekstrarleyfi. Samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs er gjald fyrir rekstrarleyfi vegna heimagist- ingar 24 þúsund krónur. Leyfið er veitt til fjögurra ára í senn og hægt er að sækja um endurnýjun leyfis að þeim tíma liðnum. Fyrir endur- nýjun leyfis þarf að greiða 7.100 krónur. Heimildir: ferdamalastofa.is, syslumenn.is, saf.is Rekstur gistingar í heimahúsi er leyfisskyld starfsemi. MYND/VALLI Flókið ferli að fá leyfi fyrir heimagistingu Þau eru frábær viðbót við ferðaþjónustuna. Það verður sífellt vinsælla fyrir smærri hópa að fara saman í stutta túra á Segway, hvort sem það er innanbæjar eða úti í náttúrunni. Fjölgun ferðamanna mældist mest í nóvember 2012 eða um 60 prósent. Rekstrarvörur - vinna með þér

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.