Fréttablaðið - 09.07.2014, Síða 32
9. júlí 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Fyrirmyndargleymska
★★★★ ★
Neil Young & Crazy Horse
Tónleikar
LAUGARDALSHÖLL 7. JÚLÍ
Tónleikar Neils Young og hljóm-
sveitar hans Crazy Horse í Laugar-
dalshöllinni voru þeir fyrstu á
tónleikaferð þeirra um Evrópu og
sömuleiðis þeir fyrstu hér á landi.
Mörkuðu þeir upphaf tónlistar-
hátíðarinnar All Tomorrows
Parties sem lýkur á laugardags-
kvöld í Ásbrú. Tónleikarnir voru
einnig þeir fyrstu án stofnmeð-
lims Crazy Horse, bassaleikarans
Billy Talbot , sem veiktist í síðasta
mánuði.
Hinn 68 ára Young vakti fyrst
athygli á sjöunda áratugnum með
hljómsveitinni Buffalo Springfield
og síðar með Crosby, Stills, Nash
& Young. Fyrsta sólóplatan kom út
1968 en sú nýjasta í apríl síðast-
liðnum, tekin upp í hljóðveri rokk-
arans Jacks White.
Eftirvæntingin hjá Hallar-
gestum var að sjálfsögðu mikil
að berja kanadísku goðsögnina
augum og skemmtileg tilbreyting
var að sjá að fyrir framan sviðið
höfðu, í stað unglinga, safnast
saman rokkáhugamenn af eldri
kynslóðinni ákveðnir í að sjá
meistarann loksins í návígi. Til að
stytta biðina hitaði Mugison upp
einn með kassagítarinn og spilaði
þar tvö ný lög sem lofuðu góðu.
Upphafslag Neil Young &
Crazy Horse var Love and Only
Love af plötunni Ragged Glory
og hafði maður það á tilfinning-
unni að Young og félagar væru
að djamma sig í gang, enda lagið
um tíu mínútna langt. Raunin
varð sú að flest lögin á tónleik-
unum voru af plötum sem Young
hefur tekið upp með Crazy Horse
(eðlilega), þar af þrjú af Ragged
Glory. Biðin eftir því að heyra
lag sem aðrir en bara hörðustu
aðdáendurnir könnuðust við tók
langan tíma, eða tæpa klukku-
stund. Þá mætti Young einn á
sviðið með kassagítar og munn-
hörpu, spilaði hið fallega Only
Love Can Break Your Heart,
Dylan-lagið Blowin’in the Wind
og eitt sitt frægasta lag, Heart of
Gold, af snilldarverkinu Harvest.
Því næst mætti Crazy Horse
aftur á sviðið og spilaði fjögur
lög. Þar á meðal frumfluttu þeir
félagar Who’s Gonna Stand Up and
Save the Earth, sem umhverfis-
verndarsinninn Young klæddur
EARTH-stuttermabol söng af mik-
illi innlifun. Skömmu áður hafði
hann lofað því að koma aftur til
Íslands og gefa tónleikagestum
sams konar bol, við mikinn fögn-
uð viðstaddra.
Lokalagið fyrir uppklapp var
Rockin’ in the Free World, eitt
besta lag Youngs. Sannarlega
hápunktur tónleikanna og magn-
að var að heyra lagið nánast fjara
út en byrja svo aftur undir styrkri
stjórn hljómsveitarstjórans Young,
sem var í fínu formi á tónleikun-
um.
Eftir uppklapp var röðin komin
að öðru gömlu og góðu, Like a Hur-
ricane. Það voru samt ákveðin
vonbrigði að heyra ekki fleiri
lög eftir uppklappið en eftir tæp-
lega tveggja tíma spilamennsku
hjá þessum gömlu kempum var
kannski ekki hægt að ætlast til
meira af þeim. Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA Flottir tónleikar með
Neil Young í góðu formi en fleiri fræg
lög hefðu mátt hljóma.
Gamlar kempur í góðu formi
Í GÓÐU
FORMI
Neil Young
rokkaði
á sviðinu
og var í
fantaformi.
Að sögn
gagnrýnanda
hefðu fleiri
lög mátt
hljóma en
hápunkt-
urinn var
þegar Young
tók Rockin’in
the Free
World.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Æ HVAÐ ég er fegin að sjá þetta, við
þurfum að vera góð fyrirmynd,“ sagði
vegfarandi við mig þegar við mæðg-
urnar reiddum hjólin okkar yfir gang-
braut. Ég fór hjá mér við þetta hrós.
Ég var nefnilega hjálmlaus á ferð
þennan dag, eins og svo oft áður.
Ég hefði líklega ekki einu sinni
reitt hjólið yfir götuna, nema af
því að dóttir mín var með mér.
Það var ekki svo langt síðan
skólafélagi hennar sá til mín
bruna þvert yfir götu á hjólinu og
kallaði hneykslaður á eftir mér:
Hva, áttu ekki að reiða hjólið?
Ég man ekki hvaða afsökun
ég kallaði á móti. Eða jú,
ég man það alveg. „Ó, ég
gleymdi því!“
ELDRI manni í umferð-
inni varð eitt sinn svo um
þegar ég hjólaði hjálm-
laus á gangstéttinni við
hlið hans, að hann skrúfaði
niður bílrúðuna og jós yfir
mig skömmum. Hvurslags
þetta væri eiginlega?! Ég
reyndi ekki að bera fyrir mig gleymsku
í það skiptið. Steig bara pedalana
hraðar og lét mig hverfa inn á milli
runna með hjartað í buxunum.
GLEYMSKA er heldur ekki ástæðan,
nógu oft staglast ég á hjálmnotkun
þegar börnin eiga í hlut. Oft á dag!
Enda rata þeir undantekningalaust á
hausinn á þeim, sem betur fer. Sjálf
hef ég enga afsökun. Það er ekki eins
og ég viti ekki hvað gerist ef óvarinn
haus skellur í malbikið. Samt sest ég
hjálmlaus á hnakkinn aftur og aftur, og
hjóla í vinnuna, niður í bæ, út í búð og
það svo börnin sjái til. Eins og ég telji
mig ósnertanlega þegar ég þeytist um
bæinn með blóm á körfunni. Þetta er
svo stutt, hugsa ég. Ég fer svo varlega,
hugsa ég. Ég fer svo hægt, hugsa ég.
BÍLARNIR keyra ekkert á mig!“ sagði
sá fimm ára við mig galvaskur þegar
ég brýndi fyrir honum að líta til beggja
hliða áður en við gengjum yfir götuna.
„Hvernig dettur þér þetta í hug, barn?“
gall í mér, áður en ég vissi upp á mig
sökina.
SHORT TERM 12
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI
FRÍTT INN
HOLLAND - ARGENTÍNA
KL. 20.00
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EARTH TO ECHO 4, 6, 8
DELIVER US FROM EVIL 10
TEMJA DREKANN SINN 2D 5
22 JUMP STREET 8, 10:20
MILLIOM WAYS, DIE WEST 10:10
VONARSTRÆTI 4:30, 7:30
ÍSL TAL
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
CHICAGO SUN TIMES PORTLAND OREGONIAN
LOS ANGELES TIMES TOTAL FILM
BYGGÐ Á FRÁSÖGN
LÖGREGLUMANNS Í NEW YORK
DELIVER US FROM EVIL
DELIVER US FROM EVIL LÚXUS
EARTH TO ECHO
THE SALVATION
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
AÐ TEMJA DREKANN 2 3D ÍSL. TAL
22 JUMP STREET
VONARSTRÆTI
VONARSTRÆTI LÚXUS
KL. 5 - 8 - 10.35
KL. 8 - 10.35
KL. 3.40 - 5.45
KL. 8 - 10.10
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 8 - 10.30
KL. 8 - 10.40
KL. 5
DELIVER US FROM EVIL
EARTH TO ECHO
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
TRAIN. . . DRAGON 3D ENS. TAL ÓTEXT.
22 JUMP STREET
X-MEN 3D
FAULT IN OUR STARS
VONARSTRÆTI
Miðasala á:
KL. 8 - 10.35
KL. 5.50
KL. 5.45
KL. 8
KL. 10.40
KL. 10.10
KL. 5.20 - 8 - 10.40
KL. 5.20 - 8
-T.V., BIOVEFURINN.IS-H.S.S., MBL -D.M.S., MBL
-DV S.R.S