Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 20.12.1979, Page 19

Fréttir - Eyjafréttir - 20.12.1979, Page 19
 HANN AT SIG í HEL! Aó vísu á ekki aö nota sögnina aö éta um mann- fólkið, heldur aö borða, en þaö er víst óhætt aö nota hana um þennan náunga. Hann fékk sér 35 þylsur meö öllu í morgunverð og í há''jgismatinn gjarnan fjögur þund af lifur eöa 10 vínarsnittur. Auk þess renndi hann matinum alltaf niöur meö fjórum lítrum aö öli. Þaö kallar maður át í lagi! Þaö var því ekki aö ástæðulausu sem Franz Wetstein (kallaöur ,,Búbbi" af vinum sínum), var feitasti maöur í Evrópu. Hann vó 311 kíló. Nú er ,,Búbbi" dáinn. Hann át sig í hel. Átta sterkustu menn í Dingolfing í Bæheim, Vestur-Þýskalandi, báru hann til grafar í sér- smíóari, járnbentri kistu. Kistan var 1.95 m á lengd, en 1.20 m á breidd. Hann varö aðeins tvítugur. ,,Búbbi" lést á þorpssjúkrahúsinu eftir aö hafa legið þar í þrjá daga og verið á ströngum matarkúr. Hjarta hans, æóakerfi og lifur brugöust. Líkaminn þoldi ekki þessa óstöövandi matarlyst. Dauöinn var sársaukalaus. ,,Búbbi" varö bara þreyttari og þreyttari og sofnaöi loksins út af. V N / Ungfrú „EITTHVAÐ 1990” Foreldrar þessara litlu telpna borga rúmlega hálfa milljón króna fyrir þær árlega, og þá er hvorki fæði né húsnæði talið með. Þessi greiðsla er fyrir söng-, dans- og framkomukennslu. Þær eiga heima í Bandaríkjunum og telpurnar, sem allar eru þriggja ára, vonast til að vera kjörnar „ungfrú" eitt eða annað árið 1990. Kennslan fer fram í „ungfrú- ar-skóla“ í Hollywood og auk alls fjárins, sem for- eldrarnir greiða fyrir kennsluna, þurfa veslings mæðurnar að þvo marga metra af blúndum og píf- um daglega, strjúka þær og sterkja, þvi að elsk- urnar litlu eiga að líta vel út næsta dag. Bresk- bandaríski hárgreiðslumaðurinn, Vidal Sassoon, maðurinn, sem tekur 35 þúsund krónur fyrir lagn- ingu, hafði telpurnar með í sjónvarpsþætti sínum. Hann hrósaði þessu framtaki hástöfum. — Æi, já.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.