Fréttablaðið - 02.08.2014, Qupperneq 2
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FIMM Í FRÉTTUM FÁTÆKT, FAÐMARI OG FACEBOOK-ÁSKORUN
Vilborg Oddsdóttir, félagsráð-
gjafi Hjálparstarfs kirkjunnar,
mun leiða vinnuhóp nýrrar vel-
ferðarvaktar sem fj alla á um sára
fátækt á Íslandi. Hún segir að
samkvæmt tölum Hagstofunnar
búi um sex til sjö þúsund manns við sára fátækt.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra komst enn og aft ur í fj öl-
miðla í vikunni vegna lekamálsins. Nú
er hún borin sökum um að hafa þrýst á
Stefán Eiríksson lögreglustjóra við rann-
sókn málsins og hefur verið hvött til
þess að svara spurningum fj ölmiðla hreint út.
Stefán Magnússon, skipuleggj-
andi Eistnafl ugs, vakti athygli í
vikunni þegar áskorun um að
hætta að halda hátíðir komi upp
kynferðisafb rot fór á fl ug á sam-
félagsmiðlum. Hann hefur lýst því
yfi r að slíkt verði ekki liðið á Eistnafl ugi og hefur
aldrei verið kærð nauðgun eft ir hátíðina.
Rannveig Gunnarsdóttir,
forstjóri Lyfj astofnunar, var
ósátt við það í vikunni að
stofnunin fær ekki að nýta
sértekjur sínar.
Nikulás Ari Hannig-
an hleypur til styrktar
Parkinsonsamtök-
unum í Reykjavíkur-
maraþoninu í ágúst.
Hann safnar
áheitum með
því að kasta
kveðju
á fólk,
knúsa
eða
gera
dyraat.
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
VIKAN 27.06.➜02.08.2014
VITA er lífið
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444
Skráðu þig
í netklúbbinn - VITA.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
V
IT
7
00
61
0
7/
20
14
Örfá sæti lausKrít
14. ágúst
Verð frá frá 79.900 kr.*
*Flug fram og til baka með flugvallasköttum.
Skoðið tilboðin á www.vita.is
Íslendingur sem var farþegi í
flugi Primera Air frá Spáni til
Íslands síðastliðinn miðvikudag
lagaði bilun í vélinni þannig að
ekki þurfti að seinka ferðinni
hingað til lands um sólarhring.
Farþeginn, sem heitir Davíð
Aron Guðnason, er flugvirki að
mennt og bjargaði þarna hundrað og áttatíu farþegum frá
því að verja nóttinni á hóteli. Davíð var ekki nema um hálf-
tíma að gera við vélina og hlaut mikið lófatak frá öðrum
farþegum vélarinnar þegar þeim var tilkynnt um afrekið.
Íslenskur farþegi lagaði
bilun í flugvél
SUNNUDAGUR Mikill viðbúnaður Lögreglan í
Noregi var með mikinn viðbúnað vegna gruns um
hryðjuverk á mánudeginum. Kostnaður vegna þessa
hljóp á milljónum.
MÁNUDAGUR Ótækt húsnæði Tveir ungir vinir á
Hellissandi tóku sig til og sendu Snæfellsbæ bréf þar
sem þeir biðja um betra húsnæði undir félagsmið-
stöðina sína.
ÞRIÐJUDAGUR Gasaátök sem útrýmingarherferð
Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Pal-
estína, ritaði opið bréf til Baracks Obama Bandaríkjafor-
seta þar sem hann skorar á hann að stöðva blóðbaðið.
Í bréfinu líkti hann árásum Ísraela við útrýmingarbúðir
nasista í seinni heimstyrjöldinni.
MIÐVIKUDAGUR Endurskoða þarf meiðyrðalög-
gjöf Skýrsla Alþjóðlegu fjölmiðlastofnunarinnar leiddi
í ljós að meiðyrðalöggjöf á Íslandi er nokkuð ströng í
samanburði við Evrópu. Björg Thorarensen, prófessor við
lagadeild HÍ, segir kominn tíma á endurskoðun.
FIMMTUDAGUR Klórklúður í Vesturbænum
Barnalaugin í Vesturbæjarlaug var lokuð vegna of mikils
klórmagns sem stóðst ekki kröfur Heilbrigðiseftirlitsins.
FÖSTUDAGUR Ný hola í Surtsey Magnús Tumi
Guðmundsson jarðeðlisfræðingur fer ásamt samstarfs-
mönnum í Surtsey til þess að gera rannsóknir. Hann
hefur ekki rannsakað eyna áður.
LAUGARDAGUR Hallalausum fjárlögum stefnt
í hættu
„Það er ekki útséð með það
að markmið ríkisstjórnar-
innar gangi eftir. Margir
liðir eru á leið fram úr
áætlun. “ SÍÐA 6
Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri
hreyfi ngarinnar græns framboðs, um
fj árlög ársins 2014.
PERSÓNUVERND „Búð sem er með
eftirlitsmyndavél má ekki setja
þetta á netið, það er ekki hennar
hlutverk. Hún má bara afhenda
lögreglu upptökuna,“ segir
Þórður Sveins son, forstöðu maður
lögfræðisviðs Persónu verndar.
Stofnunin gaf í gær út tilkynn-
ingu á vef sínum til að árétta
reglur um opinbera birtingu
mynda úr eftirlitsmyndavélum.
„Það er verið að gera athuga-
semd við það að þeir sem vakta
setji myndirnar sjálfir á netið,“
segir Þórður. Hann segist hafa
orðið var við ítrekuð dæmi um
þetta í fjölmiðlum.
Í flestum tilfellum er tilgang-
urinn með því að birta slíkt
myndefni sá að hafa uppi á ein-
hverjum sem grunaður er um
refsivert athæfi. Samkvæmt
persónuverndarlögum má hinn
almenni borgari ekki afhenda
neinum þetta efni öðrum en lög-
reglu, og þá þarf að eyða öðrum
eintökum af efninu.
Þórður bendir á að lögreglu
kunni þó að vera heimilt að birta
myndirnar á netinu í leit að grun-
uðum samkvæmt þeim lögum
sem hún starfar eftir. Persónu-
vernd hefur þó ekki tekið efnis-
lega afstöðu til þessa.
Að sögn Þórðar hefur Pers-
ónuvernd í gegnum tíðina sent
þeim bréf sem birt hafa mynd-
efni sjálfir, minnt á reglurnar
og í að minnsta kosti einu tilfelli
úrskurðað að aðili hafi brotið
gegn reglum um persónuvernd.
Það var árið 2011 þegar öryggis-
myndband sem virtist sýna
þjófnað var sett á Youtube en
ekki afhent lögreglu.
- bá
Verslunareigendur mega ekki birta efni úr öryggismyndavélum verslananna:
Lög um birtingu brotin ítrekað
ÖRYGGISMYNDAVÉL Dæmi eru um að
almenningur reyni sjálfur að hafa uppi
á aðilum með dreifingu efnis úr öryggis-
myndavélum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
STJÓRNSÝSLA Stefán Eiríksson, frá-
farandi lögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu, gerir engar athugasemdir við
frásögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
innanríkisráðherra af samskiptum
þeirra tveggja á meðan lekamálið svo-
kallaða var til rannsóknar hjá embætti
Stefáns. Hanna Birna segist í bréfi til
umboðsmanns Alþingis hafa átt fjóra
fundi með Stefáni frá því að rann sóknin
hófst en að enginn þeirra hafi verið
boðaður til að ræða lekamálið sérstak-
lega.
„Ég geri engar athugasemdir við það
sem kemur fram í þessu bréfi,“ segir
Stefán. Hann segist jafnframt hafa
komið þeirri gagnrýni, sem Hanna
Birna kom á framfæri við hann í þess-
um samtölum, áleiðis til ríkissaksókn-
ara en í bréfi Hönnu Birnu segir að hún
hafi spurt lögreglustjórann um hvenær
rannsókn málsins lyki og um öryggi
gagna sem lögreglan fékk aðgang að
vegna rannsóknarinnar.
Bréf Hönnu Birnu var svar við fyrir-
spurn umboðsmanns Alþingis sem ósk-
aði fyrr í vikunni eftir upplýsingum um
samskipti þeirra Stefáns eftir að fullyrt
var í frétt DV að Stefán hefði sagt upp
störfum vegna „undirliggjandi hótana“
og „ítrekaðra afskipta“ Hönnu Birnu
meðan á rannsókn lekamálsins stóð.
Hanna Birna svarar því í bréfinu að
hún hafi „á engum tímapunkti reynt að
hafa áhrif á rannsóknina“ og að hún
hafi spurt Stefán sérstaklega hvort
honum þætti á einhvern hátt „óviðeig-
andi eða óþægilegt“ að hún ræddi við
hann um málið. Stefán hafi svarað því
að svo væri ekki og þetta undirstrikar
hann í samtali við Fréttablaðið.
„Mér þykir ekkert óþægilegt að tala
við ráðherra,“ segir Stefán.
Í fyrirspurn umboðsmanns Alþingis
er einnig óskað eftir tiltækum gögn-
um um símtöl Hönnu Birnu og Stefáns
á þessu tímabili. Hanna Birna segir í
svari sínu að hún eigi eðli málsins sam-
kvæmt oft í samskiptum við forstöðu-
menn undirstofnana ráðuneytis hennar
án þess að haldin sé skrá um þau sam-
skipti.
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður
Alþingis, segir að afstaða verði tekin til
þess á næstu dögum hver næstu skref í
málinu verða. bjarkia@frettabladid.is
Stefán Eiríksson tekur
undir með ráðherra
Hanna Birna Kristjánsdóttir segist aldrei hafa boðað Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóra,
sérstaklega á fund til að ræða lekamálið. Stefán gerir engar athugasemdir við frásögn hennar.
Umboðsmaður Alþingis tekur afstöðu til þess á næstu dögum hver næstu skref í málinu verða.
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR Ráðherrann segist á engum tímapunkti hafa reynt að hafa
áhrif á rannsókn málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mér þykir
ekkert óþægilegt
að tala við ráð-
herra.“
Stefán Eiríksson, fráfarandi
lögreglustjóri.