Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 13
LAUGARDAGUR 2. ágúst 2014 | HELGIN | 13
Það er alltaf hægt að fara út á land, allar helgar sumarsins, en þetta er helgin sem maður vill halda sig í bænum,“ segir Berglind Sunna Stef-ánsdóttir, annar skipuleggjandi Innipúkans sem verður haldinn í miðbæ Reykjavíkur um helgina.
„Við erum að skipuleggja þriggja daga tónleikaveislu í
Naustinni á skemmtistöðunum Húrra og á Gauknum.“
Berglind Sunna segir að mikið hafi verið lagt upp úr
því að hafa mikla breidd í vali á tónlist og því ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Það eru ríflega
þrjátíu hljómsveitir að spila, bæði minni og stærri bönd.“
Dagskráin spannar þrjá daga á stöðunum tveimur. „Á
Húrra verður almenn dagskrá ef við getum kallað það
svo,“ útskýrir Berglind. Á Gauknum verða þemakvöld,
þannig geta þungarokkarar þanið raddböndin á föstu-
deginum, aðdáendur electro stigið dans á laugardeginum
og hipphoppsenan tekur öll völd á sunnudeginum.
Meiri heildarhátíðarstemning verður yfir Innipúk-
anum í ár en hefur verið þar sem skipuleggjendur fengu
leyfi til þess að loka af götunni hjá Naustinni. Þar stend-
ur til að koma upp setuaðstöðu. „Þar verður húllumhæ
á laugardeginum þegar við höldum lunch beat,“ segir
Berglind. Plötusnúðurinn Ívar Pétur úr FM Belfast stýr-
ir þeirri uppákomu en hann er þekktur fyrir að spila ein-
staklega skemmtilega danstónlist.
Á sunnudeginum verður PubQuiz undir stjórn þeirra
Loga Höskuldssonar úr Sudden Weather Change og Teits
Magnússonar úr Ojba Rasta.
Berglind segir ekki uppselt á hátíðina enn. „En ég er
hrædd um að miðarnir fari hratt núna.“
Nanna Elísa Jakobsdóttir
nanna@frettabladid.is
Hefð hefur verið fyrir því
á hátíðinni að leiða saman
þekktan og farsælan
tónlistarmann af gamla
skólanum og hljómsveit
sem hefur nýlega náð
vinsældum. Í ár verður
engin breyting á því og
mun hápunktur hátíðar-
innar vera á sunnudags-
kvöldinu þegar Megas og
Grísalappalísa stíga saman á svið.
„Tónlistin hans hafði sérstaklega mikil áhrif
á mig og Baldur sem semjum textana,“ sagði
Gunnar Ragnarsson, söngvari Grísalappalísu,
en hljómsveitin er að hans sögn spennt fyrir
tónleikunum.
Áherslan verður lögð á tónlist Megasar en þó
verða tekin tvö lög eftir Grísalappalísu.
Tónlist Megasar
haft áhrif á
Grísalappalísu
STEMNING
Sveitin Grísa-
lappa lísa er þekkt
fyrir mikið stuð á
tónleikum sínum
og má gera ráð
fyrir að þakið
rifni af húsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/SNÆRÓS
DAGSKRÁIN
Á HÚRRA
Föstudagur
21.00 Snorri Helgason
21.45 Dj flugvél og geimskip
22.30 Justman
23.15 Borko + Futuregrapher
00.00 Orphic Oxtra
00.45 Ojba Rasta
Laugardagur
21.00 Loji
21.45 Kvöl
22.30 Low Roar
23.15 Benni Hemm Hemm
00.00 Mr. Silla
00.45 Amaba Dama
Sunnudagur
21.00 Fufanu
21.45 Mosi Musik
22.30 Markus &
The Diversion Session
23:15 Ólöf Arnalds
00.00 Boogie Trouble
00.45 Megas + Grísalappalísa
DAGSKRÁIN
Á GAUKNUM
Föstudagur
21.15 Börn
22.05 Pink Street Boys
22.55 Kælan Mikla
23.45 Logn
00.35 Muck
Laugardagur
21.15 Good Moon Deer
22.05 Quadruplos
22.55 Futuregrapher
23.45 Tanya & Marlon
00.35 Sísý Ey
Dj Myth &
Lazy Bones (dj set)
Sunnudagur
21.15 Shades of Reykjavík
22.05 Cryptochrome
22.55 7berg
23.45 Reykjavíkurdætur
00.35 Kött Grá Pje
INNIPÚKINN ER HALDINN Í 13. SKIPTI Í ÁR OG STENDUR YFIR Í ÞRJÚ KVÖLD
34
tónlistarmenn
hafa boðað komu
sína– allir íslenskir.
600
manns komast
inn á hvorn
staðinn.
6.500
krónur kostar
armband á
hátíðina.
3.000
krónur kostar
aðgangur á
stakt kvöld.
2
staðir verða
vettvangur tón-
leikaveislunnar.