Fréttablaðið - 02.08.2014, Page 13

Fréttablaðið - 02.08.2014, Page 13
LAUGARDAGUR 2. ágúst 2014 | HELGIN | 13 Það er alltaf hægt að fara út á land, allar helgar sumarsins, en þetta er helgin sem maður vill halda sig í bænum,“ segir Berglind Sunna Stef-ánsdóttir, annar skipuleggjandi Innipúkans sem verður haldinn í miðbæ Reykjavíkur um helgina. „Við erum að skipuleggja þriggja daga tónleikaveislu í Naustinni á skemmtistöðunum Húrra og á Gauknum.“ Berglind Sunna segir að mikið hafi verið lagt upp úr því að hafa mikla breidd í vali á tónlist og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Það eru ríflega þrjátíu hljómsveitir að spila, bæði minni og stærri bönd.“ Dagskráin spannar þrjá daga á stöðunum tveimur. „Á Húrra verður almenn dagskrá ef við getum kallað það svo,“ útskýrir Berglind. Á Gauknum verða þemakvöld, þannig geta þungarokkarar þanið raddböndin á föstu- deginum, aðdáendur electro stigið dans á laugardeginum og hipphoppsenan tekur öll völd á sunnudeginum. Meiri heildarhátíðarstemning verður yfir Innipúk- anum í ár en hefur verið þar sem skipuleggjendur fengu leyfi til þess að loka af götunni hjá Naustinni. Þar stend- ur til að koma upp setuaðstöðu. „Þar verður húllumhæ á laugardeginum þegar við höldum lunch beat,“ segir Berglind. Plötusnúðurinn Ívar Pétur úr FM Belfast stýr- ir þeirri uppákomu en hann er þekktur fyrir að spila ein- staklega skemmtilega danstónlist. Á sunnudeginum verður PubQuiz undir stjórn þeirra Loga Höskuldssonar úr Sudden Weather Change og Teits Magnússonar úr Ojba Rasta. Berglind segir ekki uppselt á hátíðina enn. „En ég er hrædd um að miðarnir fari hratt núna.“ Nanna Elísa Jakobsdóttir nanna@frettabladid.is Hefð hefur verið fyrir því á hátíðinni að leiða saman þekktan og farsælan tónlistarmann af gamla skólanum og hljómsveit sem hefur nýlega náð vinsældum. Í ár verður engin breyting á því og mun hápunktur hátíðar- innar vera á sunnudags- kvöldinu þegar Megas og Grísalappalísa stíga saman á svið. „Tónlistin hans hafði sérstaklega mikil áhrif á mig og Baldur sem semjum textana,“ sagði Gunnar Ragnarsson, söngvari Grísalappalísu, en hljómsveitin er að hans sögn spennt fyrir tónleikunum. Áherslan verður lögð á tónlist Megasar en þó verða tekin tvö lög eftir Grísalappalísu. Tónlist Megasar haft áhrif á Grísalappalísu STEMNING Sveitin Grísa- lappa lísa er þekkt fyrir mikið stuð á tónleikum sínum og má gera ráð fyrir að þakið rifni af húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SNÆRÓS DAGSKRÁIN Á HÚRRA Föstudagur 21.00 Snorri Helgason 21.45 Dj flugvél og geimskip 22.30 Justman 23.15 Borko + Futuregrapher 00.00 Orphic Oxtra 00.45 Ojba Rasta Laugardagur 21.00 Loji 21.45 Kvöl 22.30 Low Roar 23.15 Benni Hemm Hemm 00.00 Mr. Silla 00.45 Amaba Dama Sunnudagur 21.00 Fufanu 21.45 Mosi Musik 22.30 Markus & The Diversion Session 23:15 Ólöf Arnalds 00.00 Boogie Trouble 00.45 Megas + Grísalappalísa DAGSKRÁIN Á GAUKNUM Föstudagur 21.15 Börn 22.05 Pink Street Boys 22.55 Kælan Mikla 23.45 Logn 00.35 Muck Laugardagur 21.15 Good Moon Deer 22.05 Quadruplos 22.55 Futuregrapher 23.45 Tanya & Marlon 00.35 Sísý Ey Dj Myth & Lazy Bones (dj set) Sunnudagur 21.15 Shades of Reykjavík 22.05 Cryptochrome 22.55 7berg 23.45 Reykjavíkurdætur 00.35 Kött Grá Pje INNIPÚKINN ER HALDINN Í 13. SKIPTI Í ÁR OG STENDUR YFIR Í ÞRJÚ KVÖLD 34 tónlistarmenn hafa boðað komu sína– allir íslenskir. 600 manns komast inn á hvorn staðinn. 6.500 krónur kostar armband á hátíðina. 3.000 krónur kostar aðgangur á stakt kvöld. 2 staðir verða vettvangur tón- leikaveislunnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.