Fréttablaðið - 02.08.2014, Síða 18
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
6. Húsdýr og hljóðfæri
Í Hólmi á Mýrum í Hornafirði
er dýragarður með hænsnfugla,
endur og kanínur af ýmsum
ættum, auk hreindýrs og algengra
húsdýra. Á kvöldin gefst kostur
á fjöruferð með leiðsögn og labbi
um flæðarmálið. Svo er veitinga-
stofa í Hólmi og í henni safn hljóð-
færa sem vel spilandi gestir geta
gripið í.
7. Kíkt heim til Kára
Á Fjallsárlóni í Öræfum er siglt
með ferðamenn á sumrin innan
um ísjaka. Bakland lónsins er
mikil náttúrusmíð, krosssprunginn
Fjallsjökull með Ærfjall og Breiða-
merkurfjall hvort á sína hönd en
framan við það síðarnefnda bjó
Kári Sölmundarson eftir að hafa
hefnt brennumanna.
www.fjallsarlon.is.
8. Á jökulsporði
Frá Skaftafelli í Öræfum eru
Íslenskir fjallaleiðsögumenn með
reglulegar ferðir að Svínafellsjökli
í sömu sveit. Þeir gefa fólki kost á
tveggja klukkustunda göngu um
jökulsporðinn, vopnuðu ís öxum,
hjálmum, broddum og öðrum
öryggisbúnaði sem fyrirtækið
leggur til. Lágmarksaldur í ferð-
irnar er átta ár.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Útivist og afþreying
Stutt er frá þjóðveginum á fjölmarga áhugaverða staði
SUÐAUSTURLAND
9
11
1
5
2
3
4
6
78
10
6
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MYND/BJARNI SIGURÐUR GRÉTARSSON
10
1
10. Á danskan máta
Kaffi Nýhöfn er nýr veitingastaður í
elsta íbúðarhúsi Hafnar, kaupmanns-
húsinu á Hafnarbraut 2. Það hefur
danskt „smörrebröd“ í öndvegi enda
smurbrauðsjómfrú þar að störfum sem
smurði ofan í Dani í sautján ár. Auk þess
eru þar fínar kökur, kaffi og öl. Opið er
milli 10.30 og 18.30. www.nyhofn.is.
11. Hjá Sobeggi afa
Í Þórbergssetri á Hala er alltaf kaffi
á könnunni og heimabakað meðlæti,
einnig kjötsúpa og smáréttir úr heima-
ræktaðri bleikju. Á kvöldin er mat seðill
í gildi með hefðbundnum íslenskum
réttum.
Hægt er að panta upplestur úr verkum
Þórbergs undir borðum. Opið er frá 7.30
til 22 út ágúst en frá 8 til 21 í september
og október. Á veturna er betra að hafa
samband fyrir fram. www.thorbergur.is.
Neytum og njótum
Danskt og íslenskt í öndvegi
9. Fjölskyldan Sundlaugin á Höfn er fjölskylduvæn og vinsæl
af heimamönnum og gestum. Auk aðallaugarinnar er barna-
laug með kynjadýrum og kátum bunustrák, gufubað og tveir
heitir pottar, annar þeirra með nuddi. Þrjár mislangar renni-
brautir bjóða upp á salíbunur og sólbaðssvæði er á bakkanum. Aðgengi
fyrir fatlaða er gott, meðal annars er lyftustóll á laugarbakkanum.
Bunustrákur í barnalaug
2. Strandganga
Á Streitishvarfi er góð gönguleið
meðfram ströndinni út frá afleggj-
aranum að gamla vitanum. Hár
klettur er nærri þjóðveginum. Þar
ku búa risi sem kemur aðeins út á
nýársnótt og ræðir þá við bræður
sína sem búa í Papey og Skrúði.
3. Graníteggin
Listaverkið Eggin í Gleðivík á
Djúpavogi er unnið í granít af Sig-
urði Guðmundssyni myndlistar-
manni. Um nákvæmar eftirlík-
ingar eggja þrjátíu og fjögurra
íslenskra varpfugla er að ræða,
nema hvað þessi eru stærri.
4. Til heiðurs lögsögumanni
Skammt vestan við Reyðará í Lóni,
rétt við þjóðveg 1, er minnisvarði
um Úlfljót sem tók saman fyrstu
lög íslenska þjóðveldisins og bjó að
Bæ í Lóni. Við minnisvarðann er
líka hringsjá.
5. Ævintýradalur
Í Hoffelli í Hornafirði er boðið upp
á fjórhjólaferðir með leiðsögn um
ósnortinn dal með lyngi, litríkum
fjöllum og giljum og Hoffellsjökul
í bakgarðinum. Hægt er að skella
sér í heita potta á eftir.
Skriðjöklarnir skreyta svæðið
Suðausturlandið ber svipmikla náttúru sem einkennist af andstæðum. Þeir sem ferðast um strandlengju þess mæta
til skiptis eyðisöndum og grösugum sveitum og hafa ískalda jökla og hlýlegar skógarbrekkur fyrir augum. Austan til eru
vogar og firðir og svo tekur endalaus sandströnd við. Há og tindótt fjöllin hafa hinn volduga Vatnajökul sem bakhjarl.
DJÚPIVOGUR Hjarta Djúpavogs slær við höfnina. Hótel
Framtíðin, veitingastofan Við voginn og Langabúð með
söfn sín og kaffihús eiga sinn þátt í því. Frá bryggjunni
er siglt daglega á sumrin út í Papey. Þar er elsta og jafn-
framt minnsta timburkirkja Íslands, byggð árið 1807.
3 7
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR