Fréttablaðið - 02.08.2014, Qupperneq 22
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 22
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Að venju efna Borgarbókasafn og Reykjavík Bókmenntaborg til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá les-
endur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og skila í kassa sem eru í öllum söfnum Borgarbókasafns. Vikulega
er dregið eitt nafn úr kassanum og Lestrarhestur vikunnar útnefndur, sem hlýtur bók að launum frá Forlaginu.
Embla Dís Ómarsdóttir sex áraLestrarhestur vikunnar
Krakkaleikur
Hvað er skemmtilegast við
bækur? „Mér finnst skemmti-
legast að skoða þær.“
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
„Bækurnar um Einar Áskel eru í
uppáhaldi hjá mér.“
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar? „Mér
finnst skemmtilegast að lesa
prinsessu bækur.“
Hvaða bók lastu síðast og
hvernig var hún? „Ég man það
bara ekki, ég les svo margar.“
Í hvaða skóla gengur þú?
„Í barnaskólann Öskju í
Öskjuhlíð.“
Ferðu oft á bókasafnið?
„Já, mjög oft.“
Hver eru þín helstu áhugamál?
„Mér finnst gaman að fara í
sund og í bíó og svo auðvitað
að lesa og skoða bækur.“
Ertu búin að lesa Bétveir -
Bétveir eftir Sigrúnu Eldjárn?
„Já, ég hef skoðað hana í skól-
anum mínum.“
Elva María, geturðu lýst
aðeins hlutverkinu þínu í
Grafir og bein? „Ég leik stelpu
sem heitir Perla en svo má ég
ekki segja meira.“
Hvar fóru tökurnar fram?
„Mest í Hvalfirði, kvikmynda-
liðið leigði gamlan bóndabæ
sem er í dag notaður sem gisti-
heimili.“
Voru tökurnar tímafrekar? „Já,
mjög, ég þurfti að sleppa skóla
mjög oft auk þess sem það voru
einu sinni næturtökur frá átta
um kvöldið til átta um morg-
uninn.“
Nú er titill myndarinnar frekar
óhugnanlegur. Hvernig leið
þér þegar þú varst beðin að
leika í henni? „Ég var mjög
spennt af því að þetta er fyrsta
myndin sem ég hef leikið í sem
er í fullri lengd, svo fannst mér
hlutverkið mitt hljóma mjög
spennandi.“
Hlakkar þú til frumsýning-
arinnar? „Já, ég er verulega
spennt að sjá útkomuna, ég veit
samt ekki hvort ég treysti mér
á myndina sjálfa, hún virkar
mjög óhugnanleg ef marka má
stikluna.“
Hefurðu leikið áður og ef svo
er, hver eru stærstu hlutverk-
in? „Ég hef leikið í þremur stutt-
myndum, þremur leikritum og
er að æfa fyrir það fjórða sem
er Lína Langsokkur. Það verður
sýnt í Borgarleikhúsinu næsta
vetur. Svo auðvitað Grafir og
bein og þar er ég í stærsta hlut-
verkinu mínu hingað til.“
Hvort finnst þér áhugaverðara
að leika í myndum eða á sviði
og af hverju? „Ég get ómögu-
lega valið á milli, mér finnst
hvort tveggja svo gaman.“
Ertu í fleiri listgreinum og
þá hvaða? „Já, ég er að æfa á
fiðlu.“
Var gaman að taka þátt í
Ísland got talent? „Það var
rosalegt ævintýri sem ég var
ekkert smá heppin að hafa
fengið að upplifa.“
„Hvað finnst þér skemmtileg-
ast í heiminum að gera? „Að
leika, syngja, vera úti og hoppa
á trampólíninu mínu.“
Veit ekki hvort ég
treysti mér á myndina
Elva María Birgisdóttir leikur í kvikmynd sem heitir því drungalega nafni Grafi r
og bein og verður frumsýnd í október. Þótt hún sé bara ellefu ára hefur hún
talsverða reynslu af leiklistinni en þetta er stærsta hlutverk hennar til þessa.
ELVA MARÍA Var einu sinni í næturtökum frá átta um kvöldið til átta um morguninn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leikur: Mjálmaðu nú kisa mín
Börnin setjast hvert á sinn stól og raða sér í hring og einn er fenginn
til að „ver‘ann“. Trefill er bundinn fyrir augu hans og honum snúið
í hring. „Blindinginn“ á að þreifa sig áfram þangað til hann finnur
einhvern og setjast ofan á fórnarlambið. Þegar hann er sestur segir
hann: „Mjálmaðu nú kisa mín“ og á þá fórnarlambið að mjálma og
er það gjarnan gert ámátlega. Þá má sá sem „er‘ann“ giska á hver
mjálmar. Giski hann rétt eru höfð hlutverkaskipti. Hægt er að setja
reglur um að sá sem „er‘ann“ megi giska þrisvar sinnum, eða jafnvel
eins oft og menn vilja.
Bragi Halldórsson
107
„Þetta er nú meira veggskriflið,“ sagði Kata, þar sem þau komu að
hlaðinni steingirðingu. „Hér vantar nánast annan hvern stein,“ bætti hún
við með fyrirlitningu. „En hann er nú bara að verða gamall,“ sagði Konráð.
„Það gerir hann ekki endilega að vondum vegg, bara laslegum,“ bætti
hann við. „Það vantar til dæmis ansi marga steina í þetta gat hérna fyrir
framan okkur,“ sagði Kata og hélt áfram að úthúða veggnum. Konráð varð
að viðurkenna að það vantaði jú ansi marga steina í þetta gat. “En við
verðum að troða okkur í gegnum það ef við ætlum að komast
eitthvað áfram,“ sagði Kata. “Spurning hvort það vanti það marga steina
að við komumst í gegnum gatið,“ bætti hún við.
Hversu marga steina
skyldi vanta?
Getur þú talið þá?
A 20
B 25
D 30
Svar: B