Fréttablaðið - 02.08.2014, Síða 24

Fréttablaðið - 02.08.2014, Síða 24
FÓLK| tók óvænta og örlagaríku stefnu síðastliðið sumar. Ingi Thor var viðburðastjóri hjá Reykjavíkur- borg og skipulagði ýmsa viðburði fyrir borgina. Hann sinnir því áfram í hlutastarfi frá Svíþjóð. Hann sat í stjórn vetrarhátíðar, jólaborgarinnar og fleiri slíkra hátíða hjá borginni. Sömuleiðis sér hann um alþjóðlegt samstarf tengt slíkum viðburðum. Nýlega var honum boðið virðingarstarf hjá Gay & Lesbian International Sport Association. Ingi starfaði meðal annars við að fá Heimsleik- ana til Íslands 2017. Ísland tapaði reyndar þeim slag fyrir Miami á Flórída. „Ég hef alltaf verið tengd- ur íþróttum, menningarmálum og mannréttindum,“ segir Ingi Thor sem keppti í sundi á Ólympíu- leikunum í Los Angeles 1984. „Mannréttindi skipta mig miklu máli og ég er með mörg verkefni í handraðanum sem tengjast þeim. Þótt við Íslendingar séum komnir nokkuð langt í baráttu samkyn- hneigðra er það hlutverk okkar að styðja aðrar þjóðir í þeirra réttindabaráttu. Við eigum að vera fyrirmynd í þessum málum. Þrátt fyrir að margt hafi áunnist á Íslandi er baráttan þó enn í gangi. Það er til dæmis mjög erfitt fyrir marga að koma út úr skápnum í litlum bæjarfélögum úti á landi,“ segir Ingi Thor. VILTU GIFTAST MÉR? Þegar við snúum tali okkar að örlagadeginum í fyrrasumar segir hann að þá hafi margt gerst í lífi hans. „Ég fór í sumarfrí til Sitges á Spáni í maí í fyrra. Þegar ég var kominn þangað fékk ég upp- hringingu um að faðir minn hefði látist. Ég ákvað því að snúa heim aftur þótt fríið væri rétt að hefj- ast. Vinir mínir, Magnús Lofts- son og Gunnar Ásgeirsson, komu síðar að máli við mig og sögðu að þeir væru að fara til Sitges í júlí „og þú átt að koma með okkur“. Þeir drógu mig sem sagt aftur til Sitges. Ég kom þangað seint um kvöld hinn 19. júlí 2013, tveimur dögum á eftir þeim. Ég ákvað að kíkja á barinn og fá mér einn drykk fyrir svefninn. Þar sem ég sit og virði fyrir mér umhverfið sé ég þennan mann koma. Þetta var ást við fyrstu sýn og ég hef aldrei upplifað aðrar eins tilfinningar,“ segir Ingi Thor og skellihlær þegar hann rifjar þetta upp. „Ég spurði hvort ég mætti bjóða honum upp á drykk. Hann samþykkti það. Í framhaldinu sagði ég: „Þú færð ekki drykk- inn nema þú lofir að giftast mér einn góðan veðurdag. Hann svaraði að það væri ekkert mál. Það tók mig þrettán mínútur að bjóða honum drykk og bera fram bónorð,“ segir Ingi Thor. „Morten fékk drykkinn og síðan höfum við verið óaðskiljanlegir. Næstu mán- uðir voru dýrir hjá okkur með endalausum ferðalögum á milli Ís- lands og Svíþjóðar. Það liðu aldrei meira en tvær, þrjár vikur á milli heimsókna.“ BRÚÐKAUP VARÐ AÐ JARÐARFÖR Ingi Thor er léttur í skapi og segir skemmtilega frá þessum fyrstu kynnum þeirra Mortens. Hann er danskur en hefur búið í Stokk- hólmi undanfarin ár þar sem hann er verslunarstjóri hjá hinu danska vöruhúsi Illum. Morten hafði aldrei komið til Íslands og vissi lítið um landið. „Núna er hann ofboðslega hrifinn af landi og þjóð. Ég á yndislega vini og fjölskyldu sem hafa tekið honum opnum örmum.“ Ingi segir að það hafi verið erfitt að þvælast stöðugt á milli landanna og loks tóku þeir þá ákvörðun að hann flytti út. „Það var ekki erfið ákvörðun,“ segir hann. „Ég bjó í Bretlandi í 24 ár en flutti heim til Íslands árið 2011, er því vanur að búa í útlöndum. Ég lærði leiklist í Eng- landi og starfaði við hin ýmsu verkefni en síðustu árin var ég framkvæmdastjóri norrænnar listahátíðar í fimm ár og fram- kvæmdastjóri stærsta listaseturs í Liverpool í þrjú ár. Það rann upp fyrir mér að annaðhvort ætti ég að fara að huga að heimferð eða setjast alfarið að í Bretlandi. Þegar staðan var auglýst hjá Reykjavíkurborg sótti ég um og fékk,“ segir Ingi Thor. „Þá varð ekki aftur snúið.“ Ingi Thor hafði verið í sam- búð í Bretlandi og brúðkaup var fyrirhugað árið 1997. „Unnustinn minn veiktist alvarlega og dó viku fyrir brúðkaupið okkar. Giftingin breyttist í jarðarför. Svona er lífið, allt getur gerst,“ segir Ingi sem er að verða 52 ára. „Lífið getur líka tekið óvænta en afar ánægjulega stefnu. Ég fann ástina á ný og segi því að það sé von fyrir alla.“ VEISLA Á HERRAGARÐI Þegar Ingi Thor er spurður út í brúðkaupið 19. júlí segir hann að þetta hafi verið ótrúlegur dagur. „Vinir okkar búa í Drottningholm í Stokkhólmi en þeir höfðu þrýst á að við létum verða af giftingu. Þeir buðu okkur að halda veisl- una við herragarð sem þeir eiga á fallegum stað við vatnið. Á upp- haflega gestalistanum voru sex hundruð manns en við tókum þá ákvörðun að hafa þetta smærra í sniðum og enduðum í matar- veislu fyrir 90 manns. Brúðkaups- helgin stóð frá fimmtudegi en flestir gestir okkar komu þá. Fjölskylda og vinir frá Íslandi og Danmörku.“ Giftingin sjálf var kl. 16 á laugar deginum en þeir Morten komu siglandi á fallegum báti að bryggjunni við herragarðinn undir ljúfri tónlist. Vinir og fjölskyldan tóku á móti þeim. „Þetta var svo magnað að það voru engin þurr augu á svæðinu,“ segir Ingi en veðrið var yndislegt þennan dag, glampandi sól og hiti. Anna Krist- insdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, gaf þá saman við hátíðlega athöfn. Veislan var haldin utanhúss. „Þetta var partí- brúðkaup og allir skemmtu sér konunglega til tvö um nóttina. Við erum enn í skýjunum yfir hversu vel þetta heppnaðist,“ segir Ingi. Brúðkaupsferð til Sitges er síðan á dagskrá í september. GLEÐIN VIÐ VÖLD Ingi á ekki von á öðru en að þeir muni búa áfram í Svíþjóð. Hann segir að þeir Morten eigi margt sameiginlegt þótt þeir séu líka ólíkir. „Við erum alltaf að upp- götva skemmtilegar tengingar á milli okkar. Ég get nefnt að bróðir Mortens, Flemming Busk, er einn aðalhúsgagnahönnuður Dana og það eru húsgögn eftir hann í tón- listarhúsinu Hörpu. Hann hefur aldrei komið til Íslands en hefur áhuga á landinu eftir að hann frétti af húsgögnunum sínum í Hörpu,“ segir Ingi Thor sem nýt- ur gleðinnar í Stokkhólmi í dag ásamt eiginmanni sínum. „Við lítum björtum augum til fram- tíðarinnar.“ ■ elin@365.is GIFTING Anna Kristinsdóttir gefur herramennina Morten og Inga Thor Busk saman á bryggjunni í Drottningholm í Stokkhólmi. Ingi samdi lag til Mortens sem flutt var síðar í veislunni. MYNDIR ÚR EINKASAFNI SIGLT TIL GESTA Það voru tár á hvörmum gesta þegar þeir sigldu að bryggjunni undir ljúfri tónlist. DROTTNINGHOLM Herragarðurinn þar sem brúðkaupið fór fram. Veislan byrjaði með kokteil á fimmtudagskvöldi en giftingin fór fram á laugardeginum. ÁST ÁST ÁST Þar sem ég sit og virði fyrir mér umhverfið sé ég þennan mann koma. Þetta var ást við fyrstu sýn og ég hef aldrei upplifað aðrar eins tilfinningar.“ HELGARSPJALL Grensásvegi 8 - Sími 553 7300 Opið mánudaga – fimmtudaga 12–18 föstudaga 12–19 og laugardaga 12–17 SOHO/MARKET Á FACEBOOK ÚTSALAN HAFIN Verð að komast á útsöluna í Soho 50-70% afsláttur af fatnaði 10-20% afsláttur af standard bolum og toppum Aðhalds- fatnaður 2.000 kr. 50% afsláttur af skarti klútum og töskum – 16

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.