Fréttablaðið - 02.08.2014, Blaðsíða 24
FÓLK|
tók óvænta og örlagaríku stefnu
síðastliðið sumar. Ingi Thor var
viðburðastjóri hjá Reykjavíkur-
borg og skipulagði ýmsa viðburði
fyrir borgina. Hann sinnir því
áfram í hlutastarfi frá Svíþjóð.
Hann sat í stjórn vetrarhátíðar,
jólaborgarinnar og fleiri slíkra
hátíða hjá borginni. Sömuleiðis
sér hann um alþjóðlegt samstarf
tengt slíkum viðburðum. Nýlega
var honum boðið virðingarstarf
hjá Gay & Lesbian International
Sport Association. Ingi starfaði
meðal annars við að fá Heimsleik-
ana til Íslands 2017. Ísland tapaði
reyndar þeim slag fyrir Miami á
Flórída. „Ég hef alltaf verið tengd-
ur íþróttum, menningarmálum og
mannréttindum,“ segir Ingi Thor
sem keppti í sundi á Ólympíu-
leikunum í Los Angeles 1984.
„Mannréttindi skipta mig miklu
máli og ég er með mörg verkefni í
handraðanum sem tengjast þeim.
Þótt við Íslendingar séum komnir
nokkuð langt í baráttu samkyn-
hneigðra er það hlutverk okkar
að styðja aðrar þjóðir í þeirra
réttindabaráttu. Við eigum að
vera fyrirmynd í þessum málum.
Þrátt fyrir að margt hafi áunnist á
Íslandi er baráttan þó enn í gangi.
Það er til dæmis mjög erfitt fyrir
marga að koma út úr skápnum í
litlum bæjarfélögum úti á landi,“
segir Ingi Thor.
VILTU GIFTAST MÉR?
Þegar við snúum tali okkar að
örlagadeginum í fyrrasumar segir
hann að þá hafi margt gerst í lífi
hans. „Ég fór í sumarfrí til Sitges
á Spáni í maí í fyrra. Þegar ég
var kominn þangað fékk ég upp-
hringingu um að faðir minn hefði
látist. Ég ákvað því að snúa heim
aftur þótt fríið væri rétt að hefj-
ast. Vinir mínir, Magnús Lofts-
son og Gunnar Ásgeirsson, komu
síðar að máli við mig og sögðu að
þeir væru að fara til Sitges í júlí
„og þú átt að koma með okkur“.
Þeir drógu mig sem sagt aftur til
Sitges. Ég kom þangað seint um
kvöld hinn 19. júlí 2013, tveimur
dögum á eftir þeim. Ég ákvað
að kíkja á barinn og fá mér einn
drykk fyrir svefninn. Þar sem ég
sit og virði fyrir mér umhverfið sé
ég þennan mann koma. Þetta var
ást við fyrstu sýn og ég hef aldrei
upplifað aðrar eins tilfinningar,“
segir Ingi Thor og skellihlær
þegar hann rifjar þetta upp.
„Ég spurði hvort ég mætti
bjóða honum upp á drykk. Hann
samþykkti það. Í framhaldinu
sagði ég: „Þú færð ekki drykk-
inn nema þú lofir að giftast mér
einn góðan veðurdag. Hann
svaraði að það væri ekkert mál.
Það tók mig þrettán mínútur að
bjóða honum drykk og bera fram
bónorð,“ segir Ingi Thor. „Morten
fékk drykkinn og síðan höfum við
verið óaðskiljanlegir. Næstu mán-
uðir voru dýrir hjá okkur með
endalausum ferðalögum á milli Ís-
lands og Svíþjóðar. Það liðu aldrei
meira en tvær, þrjár vikur á milli
heimsókna.“
BRÚÐKAUP VARÐ AÐ JARÐARFÖR
Ingi Thor er léttur í skapi og segir
skemmtilega frá þessum fyrstu
kynnum þeirra Mortens. Hann er
danskur en hefur búið í Stokk-
hólmi undanfarin ár þar sem
hann er verslunarstjóri hjá hinu
danska vöruhúsi Illum. Morten
hafði aldrei komið til Íslands og
vissi lítið um landið. „Núna er
hann ofboðslega hrifinn af landi
og þjóð. Ég á yndislega vini og
fjölskyldu sem hafa tekið honum
opnum örmum.“
Ingi segir að það hafi verið
erfitt að þvælast stöðugt á milli
landanna og loks tóku þeir þá
ákvörðun að hann flytti út.
„Það var ekki erfið ákvörðun,“
segir hann. „Ég bjó í Bretlandi
í 24 ár en flutti heim til Íslands
árið 2011, er því vanur að búa í
útlöndum. Ég lærði leiklist í Eng-
landi og starfaði við hin ýmsu
verkefni en síðustu árin var ég
framkvæmdastjóri norrænnar
listahátíðar í fimm ár og fram-
kvæmdastjóri stærsta listaseturs
í Liverpool í þrjú ár. Það rann
upp fyrir mér að annaðhvort ætti
ég að fara að huga að heimferð
eða setjast alfarið að í Bretlandi.
Þegar staðan var auglýst hjá
Reykjavíkurborg sótti ég um og
fékk,“ segir Ingi Thor. „Þá varð
ekki aftur snúið.“
Ingi Thor hafði verið í sam-
búð í Bretlandi og brúðkaup var
fyrirhugað árið 1997. „Unnustinn
minn veiktist alvarlega og dó viku
fyrir brúðkaupið okkar. Giftingin
breyttist í jarðarför. Svona er
lífið, allt getur gerst,“ segir Ingi
sem er að verða 52 ára. „Lífið
getur líka tekið óvænta en afar
ánægjulega stefnu. Ég fann ástina
á ný og segi því að það sé von
fyrir alla.“
VEISLA Á HERRAGARÐI
Þegar Ingi Thor er spurður út í
brúðkaupið 19. júlí segir hann að
þetta hafi verið ótrúlegur dagur.
„Vinir okkar búa í Drottningholm
í Stokkhólmi en þeir höfðu þrýst
á að við létum verða af giftingu.
Þeir buðu okkur að halda veisl-
una við herragarð sem þeir eiga
á fallegum stað við vatnið. Á upp-
haflega gestalistanum voru sex
hundruð manns en við tókum þá
ákvörðun að hafa þetta smærra
í sniðum og enduðum í matar-
veislu fyrir 90 manns. Brúðkaups-
helgin stóð frá fimmtudegi en
flestir gestir okkar komu þá.
Fjölskylda og vinir frá Íslandi og
Danmörku.“
Giftingin sjálf var kl. 16 á
laugar deginum en þeir Morten
komu siglandi á fallegum báti að
bryggjunni við herragarðinn undir
ljúfri tónlist. Vinir og fjölskyldan
tóku á móti þeim. „Þetta var svo
magnað að það voru engin þurr
augu á svæðinu,“ segir Ingi en
veðrið var yndislegt þennan dag,
glampandi sól og hiti. Anna Krist-
insdóttir, mannréttindastjóri
Reykjavíkurborgar, gaf þá saman
við hátíðlega athöfn. Veislan var
haldin utanhúss. „Þetta var partí-
brúðkaup og allir skemmtu sér
konunglega til tvö um nóttina. Við
erum enn í skýjunum yfir hversu
vel þetta heppnaðist,“ segir Ingi.
Brúðkaupsferð til Sitges er síðan á
dagskrá í september.
GLEÐIN VIÐ VÖLD
Ingi á ekki von á öðru en að þeir
muni búa áfram í Svíþjóð. Hann
segir að þeir Morten eigi margt
sameiginlegt þótt þeir séu líka
ólíkir. „Við erum alltaf að upp-
götva skemmtilegar tengingar á
milli okkar. Ég get nefnt að bróðir
Mortens, Flemming Busk, er einn
aðalhúsgagnahönnuður Dana og
það eru húsgögn eftir hann í tón-
listarhúsinu Hörpu. Hann hefur
aldrei komið til Íslands en hefur
áhuga á landinu eftir að hann
frétti af húsgögnunum sínum í
Hörpu,“ segir Ingi Thor sem nýt-
ur gleðinnar í Stokkhólmi í dag
ásamt eiginmanni sínum. „Við
lítum björtum augum til fram-
tíðarinnar.“ ■ elin@365.is
GIFTING Anna Kristinsdóttir gefur herramennina Morten og Inga Thor Busk saman á bryggjunni í Drottningholm í Stokkhólmi. Ingi
samdi lag til Mortens sem flutt var síðar í veislunni. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
SIGLT TIL GESTA Það voru tár á hvörmum gesta þegar þeir
sigldu að bryggjunni undir ljúfri tónlist.
DROTTNINGHOLM Herragarðurinn þar sem brúðkaupið fór
fram. Veislan byrjaði með kokteil á fimmtudagskvöldi en giftingin
fór fram á laugardeginum.
ÁST ÁST ÁST
Þar sem ég sit og virði fyrir mér
umhverfið sé ég þennan mann
koma. Þetta var ást við fyrstu
sýn og ég hef aldrei upplifað
aðrar eins tilfinningar.“
HELGARSPJALL
Grensásvegi 8 - Sími 553 7300
Opið mánudaga – fimmtudaga 12–18
föstudaga 12–19 og laugardaga 12–17 SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
ÚTSALAN HAFIN
Verð að
komast á
útsöluna
í Soho
50-70%
afsláttur
af fatnaði
10-20%
afsláttur
af standard
bolum og
toppum
Aðhalds-
fatnaður
2.000 kr.
50% afsláttur af
skarti klútum og töskum
– 16