Fréttablaðið - 01.09.2014, Qupperneq 29
GLAÐHEIMAR. 4RA – 5 HERB NEÐRI HÆÐ. Mjög góð
137,8 fm. 4ra - 5 herbergja neðri hæð í þessu eftirsótta hverfi miðsvæðis í Reykja-
vík, ásamt 31,4 fm bílskúr sem er innréttaður sem stúdío íbúð. Í kjallara er 13,4
fm. herbergi með aðgangi að snyrtingu. Rúmgóðar stofur með útgengi á flísalagðar
suðursvalir. Þrjú herbergi. Húsið stendur á stórri gróinni baklóð. Sér bílastæði sem
rúmar 2-3 bíla. Búið er að endurnýja allt gler í íbúðinni.
Móaflöt – Garðabæ Glæsilegt 210,4 fm. einbýlishús á einni hæð að meðtöldum 48,8 fm. innréttuðum
bílskúr á Flötunum í Garðabæ. Húsið var nánast allt endurnýjað hið innra og ytra fyrir ca. 5 árum síðan og er í mjög góðu
ástandi. Gólfefni eru ný og gólfhitalagnir í öllu húsinu. Allar innréttingar, innihurðir, eldhús, baðherbergi og lýsing í loftum eru
endurnýjuð. Rúmgóð setustofa, borðstofa og stór skáli opinn við stofu. Hjónasvíta með miklum fataskápum. Að utan var húsið
einangrað uppá nýtt og klætt með flísum. 1.046 fm. gróin lóð með verönd til suðurs og fallegri lýsingu
Nýhöfn 2-6, Sjálandi, Garðabæ.Nýjar 4ra herbergja íbúðir.
Glæsilegar íbúðir í 3ja hæða nýju fjölbýli í Sjálandinu við smábátahöfnina. Sjávarútsýni er frá stofum og eldhúsum í öllum íbúðum.
Um er að ræða íbúðir frá 123,5 fm. upp í 150,1 fm. ásamt lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Íbúðirnar eru ýmist með góðum
svölum eða stórum timburveröndum. Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum.
Staðsetning er frábær við sjávarsíðuna í Garðabæ og stutt í frábær útivistarsvæði,
sem og alla þjónustu. Byggingaraðili: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars
SKRÚÐÁS – GARÐABÆ. Mjög fallegt, vandað og vel skipulagt 235,9
fm. einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 37,1 fm. bílskúr á útsýnisstað í
Garðabæ. Fimm rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu. Mikil lofthæð er í stærstum
hluta hússins og innfelld lýsing í loftum að stórum hluta. Allar innréttingar, innihurðir
og loftaklæðningar að mestu eru úr beyki. Stórar verandir með skjólveggjum og
rúmgóður flísalagður bílskúr með mikilli lofthæð og háum innkeyrsludyrum.
Framlóð hellulögð og með hitalögnum í innkeyrslu og stéttum.
STALLASEL - REYKJAVÍK. EINBÝLISHÚS Á ÚTSÝNISSTAÐ.
377,1 fm. einbýlishús, tvær hæðir auk kjallara að meðtöldum 41,7 fm. innb.
tvöföldum bílskúr. Sér íbúð er í kjallara. Rúmgóð stofa og borðstofa. Eldhús með
eikarinnréttingu. 5 herbergi. Gengið út á svalir/bílskúrsþak af stigapalli. Í kjallara eru
auk sér íbúðar herbergi/hobbýherbergi og góðar geymslur. Húsið er afar vel staðsett
í enda götu og nýtur mikils útsýnis af báðum hæðum. Lóðin er ræktuð 800,0 fm. að stærð
NÝBÝLAVEGUR – KÓP. GISTIHEIMILI Í FULLUM REKSTRI.
Nýlega uppgert (2010) 277,3 fermetra gistiheimili með 10 herbergjum fyrir 23-24
manns í mjög vel staðsettu húsnæði Dalbrekkumegin við Nýbýlaveg í Kópavogi.
Húsnæðið er með 7 tveggja manna herbergjum, 2 þriggja manna herbergjum og
einu 3-4 manna herbergi með sér baðherbergi, flísalögðu með sturtuklefa.
Frábært tækifæri til að hefja eigin rekstur. Reksturinn hefur fengið verðlaun bæði
fyrirþjónustu og hreinlæti. Stöðug aukning ár frá ári. Allar nánari upplýsingar
veittar á skrifstofu.
SJÁVARGRUND- G.BÆ. 5-6 HERB ÍBÚÐ 5-6 herbergja íbúð
með sérinngangi. Íbúðin er á tveimur hæðum með sér andyri á 1.hæð auk herbergis
án glugga og geymslu í kjallara samtals að birtu flatarmáli 170,9 fm. Auk þess fylgir
bílastæði í bílakjallara 20,5 fm. Birt stærð heildareignarinnar er 191,4 fm. Opið eld-
hús með nýlegri innréttingu. Rúmgóð stofa með góðri lofthæð og útgangi á svalir til
suðurs. 4 herbergi. Hringstigi af svölum niður í aflokaðan húsagarð
SUMARHÚS Á EIGNARLANDI Í BLÁSKÓGABYGGÐ.
Fallegt og vel staðsett 49,6 fm. sumarhús í næsta nágreni við Syðri-Reyki,
Reykholt og Laugarvatn á 4.957 fm. grónu eignarlandi. Sumarhúsið er vel við
haldið á skjólgóðum stað og með góðu útsýni. Hitaveita og rafmagn. Eldhús og
stofa í rúmgóðu rými með stórum gluggum, arni og útgengi á verönd. 2 herbergi
auk svefnlofts.
VERÐ 46,0 millj
VERÐ 64,9 millj
VERÐ 73,9 millj
VERÐ 46,0 millj VERÐ 14,9 millj
VERÐ TILBOÐ.
NÝHÖFN 2-6,
SJÁLANDI, GARÐABÆ.
Nýjar 4ra herbergja íbúðir.
4RA -6 HERBERGJA
SUMARHÚS
SÉRBÝLI ATVINNUHÚSNÆÐI
Glæsileg 149,2 fm. íbúð á 4. hæð í glæsilegu
lyftuhúsi í Skuggahverfinu með tvennum svölum
og sjávarútsýni. Íbúðin er innréttuð á vandaðan og
smekklegan hátt. Samliggjandi rúmgóðar stofur. Úr
stofum er útsýni út á sundin og að Esjunni. Svalir
til austurs út af báðum herbergjum. Glæsilegt
baðherbergi. Tvær geymslur í kjallara fylgja íbúðinni
auk sér bílastæðis í lokaðri og upphitaðri bíla-
geymslu. Rafmagnsopnanir eru á öllum útihurðum
og mynddyrasímakerfi er í íbúðinni
Verð 74,9 millj
Eignin verður til sýnis frá kl. 17.15 - 17.45
Björt og nánast algjörlega endurnýjuð 111,4 fm.
jarðhæð með sérinngangi og verönd til suðurs á
góðum stað á Seltjarnarnesi. Íbúðin hefur öll verið
endurnýjuð á sl. árum, t.d. raflagnir og rafmagns-
tafla, innihurðir, eldhúsinnrétting og tæki, gólfefni,
baðherbergi og fleira. Verið er að taka húsið í gegn
að utan. Staðsetning eignarinnar er frábær og stutt
er í alla þjónustu, skóla og leikskóla.
Verð 37,9 millj
Verið velkomin
Melabraut 9 – Seltjarnarnesi. 4ra herbergja með sérinngangi.
Vatnsstígur. Glæsileg íbúð með tvennum svölum og sjávarútsýni.
Suðurgata. Heil húseign.
Virðulegt timburhús á steinkjallara við Suðurgötu 12 í Reykjavík. Húsið er
kjallari og tvær hæðir, samtals 357,2 fm. að gólffleti auk 21,8 fm. bílskúrs.
Húsið stendur á fallegri og gróinni um 900 fm. lóð. Átta bílastæði eru
á baklóð hússins og möguleiki er á að fjölga bílastæðum á lóðinni enn
frekar. Húsið var reist árið 1899 af Ásgeiri Sigurðssyni kaupmanni. Fyrir
rúmlega 20 árum var húsið allt endurnýjað að utan sem innan. Undanfarin
25 ár hafa verið starfræktar læknastofur í húsinu og hentar það mjög vel
undir hvers konar þjónustustarfsemi auk þess sem það myndi sóma sér
vel sem glæsilegt íbúðarhús í hjarta borgarinnar.
OP
IÐ H
ÚS
Á M
ORG
UN
MÓAFLÖT – GARÐABÆ