Fréttablaðið - 03.10.2014, Síða 8
3. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
BANDARÍKIN, AP Líberísk yfirvöld
hafa í hyggju að sækja Thomas
Eric Duncan til saka fyrir að hafa
logið þegar hann fyllti út spurn-
ingarlista sem honum var gert
að fylla út áður en hann yfirgaf
Líberu. Duncan varð fyrstur til
að greinast með ebólusýkingu í
Bandaríkjunum og talið er að hann
hafi smitast í Líberíu.
Áður en hann steig um borð í
flugvélina sem flytja átti hann til
Dallas í Texas þar sem hann ætl-
aði að heimsækja fjölskyldu sína,
þurfti hann að fylla út skjal sem
fullt var af spurningum tengd-
um venjum hans og heilbrigði
yfir þann tíma sem hann dvaldi
í landinu. Í því var meðal annars
spurt um hvort hann hefði verið
í nálægð við ebólusmitaðan ein-
stakling eða snert líkama ein-
staklings sem hefði látist úr þess-
um mannskæða sjúkdómi.
Duncan svaraði þessari spurn-
ingu neitandi og setja yfirvöld
spurningarmerki við trúverðug-
leika svarsins.
Greint var frá mögulegri
ákæru á hendur Duncans á viku-
legum fundi sem haldinn er í
höfuð borg Líberíu, Monróvíu, til
að upplýsa stöðu mála í barátt-
unni við ebólusýkinguna.
Isaac Jackson, aðstoðarupplýs-
ingamálaráðherra Líberíu, full-
yrti á fundinum að Duncan yrði
ákærður fyrir að ljúga eiðsvar-
inn.
Talið er að Duncan, sem starfar
sem bílstjóri í Líberíu, hafi smit-
ast þegar hann hjálpaði veikri
barnshafandi konu inn í leigubíl
fyrir skömmu.
Duncan lenti í Dallas þann 20.
september síðastliðinn og heim-
sótti þá fjölskyldu sína en veiktist
svo nokkrum dögum síðar. Hann
sótti sér læknisaðstoð í kjölfarið
en var sendur aftur heim, þrátt
fyrir að hafa sagst vera að koma
frá Vestur-Afríku, þar sem sjúk-
dómurinn er einmitt hvað verstur.
Það var þó ekki nema nokkrum
dögum síðar sem Duncan leitaði
læknis á ný og hafði heilsu hans
hrakað mikið.
Sú ákvörðun heilbrigðisyfir-
valda í Texas að leyfa Duncan að
fara heim í millitíðinni gæti hafa
stofnað heilsu fjölda fólks í hættu.
Í dag liggur Duncan hins vegar
í einangrun á spítala og er heilsa
hans mjög slæm. Heilbrigðisyfir-
völd í Texas hafa haft eftirlit með
hátt í hundrað manns sem hafa
átt í samskiptum við Duncan að
undanförnu. Fjórum ættingjum
Duncans hefur verið skipað að
halda sig heima og þá er talið að
á milli tólf og átján manns hafi
verið í snertingu við Duncan.
Afar vel er fylgst með þessu fólki
til að ganga úr skugga um mögu-
legt smit.
gunnarleo@frettabladid.is
Ákærður vegna ebólunnar
Thomas Eric Duncan er fyrsti maðurinn sem greinist með ebólusýkingu í Bandaríkjunum. Talið er að hann
hafi smitast í Líberíu. Hann er sagður hafa logið þegar hann fyllti út spurningalista áður en hann fór úr landi.
MÖGULEG
ÁKÆRA Thomas
Eric Duncan á
yfir höfði sér
ákæru fyrir að
hafa logið eið-
svarinn.
NORDICPHOTOS/AFP
Snemma árs 2014 fór að bera
á ebólu í Vestur-Afríku. Fyrstu
tilfellin greindust í Gíneu en
veikin barst fljótlega til Síerra
Leóne og Líberíu og tilfellum fór
hratt fjölgandi. Í dag eru smit-
tilfellin komin yfir 7.000.
Í Vestur-Afríku hafa yfir 3.300
manns látist úr þessum mann-
skæða sjúkdómi.
Flest dauðsföllin hafa þó
orðið í Líberíu en þar hafa um
2.000 manns látið lífið.
➜ Ebólufaraldurinn í
Vestur-Afríku
BRETLAND Lögmenn Vilhjálms
Bretaprins og Katrínar eiginkonu
hans hafa beðið ljósmyndara
nokkurn um að hætta að áreita
Georg prins, son þeirra. Í yfir-
lýsingu frá talsmönnum hjónanna
segir að þau hafi þurft að grípa
til aðgerða eftir að maðurinn sást
nærri barninu, sem er fjórtán
mánaða, í skemmtigarði í mið-
borg Lundúna.
Í yfirlýsingunni segir að hjónin
ætli ekki að höfða mál gegn ljós-
myndaranum, en muni hugs-
anlega gera það í framtíðinni.
Lögmenn ljósmyndarans, Niraj
Tanna, segja hann ekki hafa gert
neitt rangt og hann muni halda
áfram að vinna sína vinnu. - jhh
Vilhjálmur og Katrín ósátt:
Hóta málsókn
vegna áreitni
FÓLK Framkvæmdastjórn Söngva-
keppninnar 2015 sem haldin verður
á RÚV hefur ákveðið að hætta við
að setja kynjakvóta á þátttakendur.
„Fyrirkomulag lagavals helst
því í meginatriðum óbreytt,“ segir
í yfirlýsingu frá framkvæmda-
stjórn Söngvakeppninnar. „Öll lög
verða áfram dæmd í „blindu laga-
vali“, þ.e. valnefnd fær aðeins dul-
nefni höfunda í hendur og veit því
ekki deili á höfundum innsendra
laga.“
Framkvæmdastjórn Söngva-
keppninnar muni eftir sem áður
einsetja sér að leita leiða til að
tryggja sem jöfnust kynjahlutföll.
- aí
Söngvakeppni ekki breytt:
Hætta við
kynjakvótann
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
0
4
6