Fréttablaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 20
3. október 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT Okkar ástkæra systir, mágkona og frænka, DÓRA ÁSTVALDSDÓTTIR (STELLA) lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 1. október. Sólveig Ástvaldsdóttir Jóhannes Ástvaldsson Ásta G. Thorarensen Ásta Ástvaldsdóttir Gunnar Guðmannsson og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGIGERÐUR MAGNÚSDÓTTIR frá Orustustöðum, til heimilis að Álfhólsvegi 23, Kópavogi, lést fimmtudaginn 25. september á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 8. október kl. 15.00. Starfsfólki Sunnuhlíðar færum við bestu þakkir fyrir góða umönnun. Ingunn Erla Ásgeirsdóttir Óskar Kristinn Ásgeirsson Ágústa Pála Ásgeirsdóttir Einar Þór Ásgeirsson tengdabörn og fjölskyldur. Elín Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Jón G. Bjarnason útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta önnumst við alla þætti þjónustunnar Þegar andlát ber að höndum Með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Reynsla – Umhyggja – Traust Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA GUÐJÓNSDÓTTIR Goðheimum 1, Reykjavík, sem lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunar- heimilinu Eir þriðjudaginn 23. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. október kl. 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Þórsteins Bjarnasonar, sem styrkir sjónskerta til framhaldsnáms, reikningsnr. 0111-26-5712, kt. 571292-3199, skýring: Þórsteinssjóður. Valgerður Franklínsdóttir Hrafnkell Eiríksson Svanfríður Franklínsdóttir Guðni Axelsson og fjölskyldur. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma, systir og frænka, GUÐRÍÐUR TRYGGVADÓTTIR dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar þann 30. september. Einar Pálmi Árnason Yevgeniya Árnason Árni Einarsson Erla Rós Ásmundsdóttir Ásgeir Einarsson Harpa Tanja Unnsteinsdóttir Harpa Björk Einarsdóttir Viktoriya Solovyova Kristjana Tryggvadóttir Valgerður Hjördís Bjarnadóttir og langömmubörn. Elskulegur unnusti, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, GÍSLI ÖGMUNDSSON rafvirkjameistari, lést mánudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 8. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitina Mannbjörg í Þorlákshöfn, kt. 460387-2569, reikningsnúmer 0150-26-3757. Sigurbjörg Óskarsdóttir Hrefna Gísladóttir Jón K. Arnarson Elín S. Sævarsdóttir Ögmundur Gíslason Rósa Hrefna Gísladóttir Hlynur Tulinius Gísli Freyr Gíslason Sigrún Gilsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN BERGSDÓTTIR Kjarnagötu 12, Akureyri, lést á heimili sínu þriðjudaginn 23. september. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. október kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis. Páll Sigurðarson Bergur Pálsson Linda Hrönn Helgadóttir Jónína Pálsdóttir Sigurður Pétur Hjaltason Bjarki Páll, Baldur Leó, Marta Þyrí og Elvar Leví. „Fyrir tuttugu árum fannst mér fer- tugt fólk vera það elsta í heiminum. Ég er ekki alveg sammála því í dag. Allt er þetta bara hugarástand, þessi blessaði aldur. Ég varð sköllóttur á árinu, varð fertugur á árinu og verð pabbi á því nýja. Það þýðir ekkert annað en að brosa í gegnum tárin yfir því að eldast,“ segir Jón Gunn- ar Geirdal, oft kallaður frasakóngur Íslands. Hann fagnar fertugsafmæli sínu í dag og verða veisluhöldin ekki af lakara taginu. „Ég byrja á því að vakna og knúsa börnin mín. Svo er mér boðið í afmælisbröns sem systur mínar þrjár eru búnar að skipuleggja heima hjá móður minni. Síðan ætla ég að kíkja í kokteilboð hjá vinum mínum í RVK Studios og í kjölfarið borða eitthvað gott. Því næst verður blásið til veislu í Reiðhöllinni Spretti í Kópavogi þar sem ég ætla að henda upp litlu sveita- balli,“ segir Jón Gunnar, sem rekur fyrirtækið Ysland. Skemmtikraftar í afmælisveislunni eru ekkert slor. „Það eru forréttindi fyrir gamla manninn að hafa verið í bransan- um svona lengi og eiga svona marga vini. Þeir sem skemmta eru meðal annars Eiríkur Hafdal, Jón Jónsson, Kaleo, Skítamórall, Friðrik Dór, Páll Óskar og Blaz Roca. Síðan ætlar Ingó að vera með netta útgáfu af brekku- söng. Svo henda einhverjir af fyndnu vinum mínum, eins og Sveppi og Logi Bergmann, í gamanmál. Númer eitt, tvö og þrjú verður að brosa, hafa gaman og skála.“ Jón Gunnar lætur sér ekki nægja að halda eina afmælisveislu því hátíðahöldin halda áfram á morgun. „Félagarnir verða ræstir út í bröns á Laundromat um miðjan dag á laug- ardag. Þaðan verður haldið á Engl- ish Pub að horfa á annaðhvort Stjörn- una eða FH tryggja sér titilinn og síðan er ferðinni heitið á efri hæð- ina á Austur að sjá Nelson kyrkja Kanann. Við ætlum að borða þar og hirðplötusnúðurinn minn til margra ára, Margeir Ingólfsson, þeytir skíf- um. Þetta verður „double trouble“,“ segir Jón Gunnar. Hann hræðist ekki að eldast. „Ég er búinn að tala um mig í þriðju persónu í nokkur ár og kalla mig oft „gamla“. Það að verða fertug- ur er ekkert mál í mínum haus. Sköll- óttur, gamall, fertugur karl í Kópa- vogi. Það er bara mantran.“ En hvað stendur upp úr á þessum fjörutíu árum? „Ég verð að vera pínulítið væm- inn og segja fæðing barna minna. Ég á tvo litla gríslinga og einn á leiðinni þannig að það er að bætast í Geirdalaherinn. Svo hef ég verið blessaður með því að vinna með skemmtilegu fólki að skemmtilegum verkefnum í 25 ár.“ liljakatrin@frettabladid.is Hendir upp sveitaballi Jón Gunnar Geirdal er fertugur í dag. Hann segir fæðingu barna sinna standa upp úr þegar hann lítur yfi r síðustu fj ögur ár en hann á von á þriðja barninu á næsta ári. Ég er búinn að tala um mig í þriðju persónu í einhver ár og kalla mig oft gamla. Það að verða fertugur er ekkert mál í mínum haus. Sköllóttur, gamall, fertugur kall í Kópa- vogi. Það er bara mantran. UNGUR Í ANDA Jón Gunnar segir aldur vera hugarástand. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.