Fréttablaðið - 28.10.2014, Side 8
28. október 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST JEPPA
ERUM MEÐ NOKKRA DACIA DUSTER DÍSIL
þús. kr.
Upplýsingar um bílana veita sölumenn Bílalands
í síma 525 8000 / bilaland@bilaland.is
Fjórhjóladrifnir, ríkulega búnir
og beinskiptir með extra lágum gír.
Yfirfarnir af umboði
og í verksmiðjuábyrgð.
Dacia bílar eru framleiddir af Renault og Nissan í Evrópu.
Tökum notaða bíla upp í.
Eldsneytisnotkun frá 5,3 l/100 km*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
5
12
8
/
*
M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tri
MENNTAMÁL Kennurum við mennta-
skóla landsins mun að öllum líkind-
um fækka um 20, nái niðurskurður í
fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinn-
ar í menntamálum fram að ganga.
Nemendaígildum fækkar um 1.608
í fjárlagfrumvarpi ársins 2015
samanborið við fjárlagafrumvarp-
ið 2014, og ekki verður greitt fyrir
nemendur eldri en 25 ára. Formað-
ur Félags framhaldsskólakennara er
áhyggjufullur yfir niðurskurðinum.
„Það er augljóst að með þessum
niðurskurðarhugmyndum ríkis-
stjórnarinnar í málefnum fram-
haldsskólanna mun kennurum við
skólana fækka,“ segir Guðríður
Arnardóttir, formaður Félags fram-
haldsskólakennara.
Sú breyting verður á starfsemi
menntaskólanna að nemendum
sem náð hafa 25 ára aldri verður
ekki gert kleift að stunda nám við
framhaldsskóla landsins. Nemenda-
ígildum í menntaskólum landsins
mun fækka um 1.608 milli fjár-
lagafrumvarpa. Það þýðir að um 20
færri menntaskólakennarar verða
við störf á næsta skólaári.
Starfsgreinasamband Íslands er
ósátt við fyrirhugaðar breytingar
stjórnvalda. Í ályktun þess gagn-
rýnir sambandið breytingarnar
sem „munu bitna af þunga á nem-
endum eldri en 25 ára. Sú hugmynd
að fólk eldra en 25 ára sæki frek-
ar inn í fullorðinsfræðsluna væri
meira sannfærandi ef fjármagn
fullorðinsfræðslunnar ykist í jöfnu
hlutfalli. Svo er ekki og hættan er
sú að nemendur eldri en 25 ára
þurfi að greiða töluvert meira fyrir
nám en áður.“
„Þegar maður skoðar skólana úti
á landsbyggðinni, þar sem skóla-
stjórnendur berjast við að halda
tilætluðum fjölda nemenda í hverj-
um hóp, er einsýnt að þessar hug-
myndir munu leggjast mun þyngra
á þá skóla. Þannig getur þessi nið-
urskurður ýtt þeim skólum niður
fyrir línuna og gert rekstrargrund-
völl þeirra nærri óbærilegan,“
segir Guðríður.
Hún telur þessi áform ekki hafa
verið nægilega kynnt félagi fram-
haldsskólakennara. Það vanti til
að mynda að skýra fyrir félaginu
hvaða áhrif þessi áform stjórnvalda
eigi að hafa í för með sér. „Það þarf
einnig að ræða þetta í samhengi
við áform menntamálaráðherra
um styttingu náms til stúdents-
prófs. Við þurfum að fara að skoða
það hversu hratt ráðherra ætlar að
hrinda í framkvæmd þessari hug-
mynd um þriggja ára stúdentspróf.
En það er alveg ljóst að starfsmönn-
um mun fækka við þessi áform.“
sveinn@frettabladid.is
20 kennurum færra
í menntaskólunum
Nái áform ríkisstjórnarinnar fram að ganga munu um 20 menntaskólakennarar
missa vinnuna. Fækkun heilsársnema í fjárlagafrumvarpinu gefur það til kynna.
Stefnir rekstrargrundvelli skóla á landsbyggðinni í hættu, segir formaður FF.
FRAMHALDS-
SKÓLAR Nem-
endaígildum
fækkar um 1.608
milli fjárlaga-
frumvarpa 2014
og 2015.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN Hjúkrunarfræðing-
urinn Kaci Hickox losnaði úr ein-
angrun í gær, en henni var haldið
í einangrun á spítala í New Jersey
í Bandaríkjunum eftir að hún kom
heim frá Vestur-Afríku síðastliðinn
föstudag vegna gruns um að hún
væri smituð af ebólu. Hickox hefur
hótað málshöfðun vegna innilokun-
arinnar en hún sagði að einangrun-
in hefði verið ómannúðlega. Hickox
sagði jafnframt að sér hefði liðið
eins og glæpamanni miðað við þær
móttökur sem hún fékk er hún kom
til Bandaríkjanna.
Hún sýndi engin einkenni ebólu
og fór í tvær rannsóknir en greind-
ist ekki með ebólu.
- glp
Hjúkrunarfræðingur segir að brotið hafi verið á sér:
Laus úr einangrun
ÓMANNÚÐLEGT Hjúkrunarfræðingn-
um Kaci Hickox var haldið í einangrun
yfir helgina. NORDICPHOTOS/AFP